Athugið að þessi viðburður endaði fyrir 10 mánuðum síðan.
Hlaupanámskeið með Silju Úlfars
23. til 25. maí kl. 00:00
Vatneyrarvöllur, Patreksfirði
Sjá á korti
Silja Úlfarsdóttir hlaupaþjálfari og hlaðvarpsstjórnandi Klefans kemur til okkar og verður með hlaupaæfingar. Silja hefur verið með spretthlaups námskeið síðustu 18 ár, þjálfað frjálsíþróttafólk og annað afreksfólk úr öllum íþróttagreinum sem hefur viljað bæta hraða og sprengikraft. Þá hefur Silja verið að aðstoða marga hlaupara að koma sér af stað og meðal annars stofnaði hún hlaupahóp FH á sínum tíma.
Sprettæfingar fyrir íþróttafólk (10-16 ára) – þar verður farið yfir hlaupastíl og líkamsbeitingu, þá verða sprettir teknir og sprengikrafts æfingar.
Hlaupaæfingar fyrir eldri (17 ára og eldri) – þar verður fókusinn á aðeins meiri rólegheit, hlaupastíl, styrk, líkamsbeitingu og fleira.
Námskeiðið hentar fyrir öll, ef þig hefur einhvern tímann langað að komast af stað í hlaupum, þá er þetta staðurinn til að mæta á!
Nánari upplýsingar um tímasetningar og skráningu má finna á Facebooksíðu og heimasíðu HHF.