Athugið að þessi viðburður endaði fyrir 4 mánuðum síðan.
Íbúafundur um ofanflóðavarnir á Patreksfirði
þriðjudaginn 11. nóvember kl. 18:00–19:30
Félagsheimili Patreksfjarðar
Sjá á korti
Íbúum á Patreksfirði er boðið að kynna sér fyrirhugaðar ofanflóðavarnir við Stekkagil og Sigtún þriðjudaginn 11. nóvember.
Á fundinum verður kynnt frumathugun á snjótæknilegri hönnun varna og tillögur að landmótun og mótvægisaðgerðum á svæðinu. Frumathugunina kynnir Gísli S. Pétursson frá Verkís, Aðalheiður Kristjánsdóttir frá Landmótun fjallar um mótvægisaðgerðir og Kristín Martha Hákonardóttir frá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu fer yfir tímalínu verkefnisins.
Fjóla Jóhannesdóttir frá Framkvæmdasýslu ríkisins verður einnig á fundinum.
Öll eru hjartanlega velkomin.