Hoppa yfir valmynd

Jóla­t­endrun á Patreks­firði

  • fimmtudaginn 3. desember kl. 16:00–⁠17:00

  • Friðþjófstorg
    Sjá á korti

Fimmtudaginn 3. desember kl. 16:00 verður haldin jólatendrun á Friðþjófstorgi, á milli pósthússins og Skjaldborgarbíós á Patreksfirði.

Byrjað verður á heitu súkkulaði og smákökum áður en dagskráin hefst, svo börn og foreldrar hafi tíma til að mæta eftir leikskóla- og frístundastarf.

Að tendrun lokinni verður kvikmyndin Músajól sýnd í Skjaldborgarbíói kl. 17:00 í boði sveitarfélagsins.

Öll eru hjartanlega velkomin og gestir eru hvattir til að taka með sér eigin bolla undir kakóið.