Jólatendrun á Tálknafirði
laugardaginn 28. nóvember kl. 16:00–17:00
Lækjartorg
Sjá á korti
Laugardaginn 28. nóvember kl. 16:00 verða ljósin tendruð á jólatrénu á Lækjartorgi við gatnamót Strandgötu og Lækjargötu á Tálknafirði.
Boðið verður upp á heitt súkkulaði og smákökur og dansað í kringum jólatréð. Foreldrafélag Tálknafjarðarskóla sér um skipulagningu viðburðarins.
Öll eru hjartanlega velkomin og gestir eru hvattir til að taka með sér eigin bolla undir kakóið.