Jólatendrun á Bíldudal
laugardaginn 21. nóvember kl. 16:00–17:00
Baldurshagi
Sjá á korti
Laugardaginn 21. nóvember kl. 16:00 verða ljósin tendruð á jólatrénu við félagsheimilið Baldurshaga að Tjarnarbraut 4 á Bíldudal, beint eftir jólamarkað slysavarnadeildarinnar Gyðu.
Boðið verður upp á heitt súkkulaði og smákökur og dansað í kringum jólatréð. Öll eru hjartanlega velkomin að njóta jólastemningarinnar saman.
Gestir eru hvattir til að taka með sér eigin bolla undir kakóið.