Lokahátíð Púkans — Sjór, land og sólmyrkvi
fimmtudaginn 7. maí kl. 16:30–17:30
Skjaldborgarbíó
Sjá á korti
Ykkur er boðið á þessa lokahátíð Púkans í Skjaldborgarbíói kl. 16:30 á fimmtudag. Það verður frumsýnt nýtt og dásamlegt myndband sem krakkarnir unnu á vinnusmiðjum í vor, tónlist sem þau sömdu og hefur verið fallega útsett verður frumflutt, og Stjörnu-Sævar sýnir okkur hvernig sólmyrkvi virkar og við hverju má búast í sumar. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.