Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi viðburður endaði fyrir u.þ.b. 3 ári síðan.

Minn­ing­ar­at­höfn - 40 ár frá snjóflóðum

  • sunnudaginn 22. janúar kl. 14:00–17:00

  • Patreksfjarðarkirkja og félagsheimili Patreksfjarðar
    Sjá á korti

Minningarathöfn um þau sem létust í krapaflóðunum sem féllu á Patreksfjörð 1983 verður haldin sunnudaginn 22. janúar næstkomandi í tilefni þess að þá verða 40 ár liðin frá atburðinum.

14:00 – Minningarstund í Patreksfjarðarkirkju. Séra Kristján Arason heldur minningarstund að viðstöddum Kristjáni Björnssyni vígslubiskupi. Tónlistarfólk af svæðinu flytur tónlistaratriði. Streymt verður frá minningarathöfninni á eftirfarandi slóð https://www.youtube.com/watch?v=2BH8HEcpJpE 

14:40 – Gengið að minnisvarðanum. Viðbragðsaðilar verða í broddi fylkingar og lagður verður blómasveigur og kerti við minnisvarðann.

15:15 – Minningarathöfn í félagsheimili Patreksfjarðar. Til máls taka:
– Úlfar Thoroddsen, fyrrverandi sveitarstjóri Patreksfjarðarhrepps.
– Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar.
– Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Að lokinni dagskrá býður slysavarnardeildin Unnur upp á kaffi og veitingar.

Öll eru hjartanlega velkomin.