Hoppa yfir valmynd

ÓMUR — Mynd­list­ar­sýning

  • sunnudaginn 24. maí kl. 15:00–16:00

  • Listasafn Samúels í Selárdal
    Sjá á korti

ÓMUR – Sýning Listvinnzlunnar í Listasafni Samúels, í Selárdal á Listahátíð í Reykjavík 2026.

Listvinnzlan opnar sýninguna ,,ÓMUR” sunnudaginn 24. maí kl. 15:00 í Listasafni Samúels, í Selárdal . Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík 2026.
Sýningin stendur til 1. september og er opin alla daga í sumar.

Í Selárdal, þar sem verk Samúels Jónssonar rísa úr landslaginu eins og minningar mótaðar í steypu, mætast ólíkar raddir í sameiginlegum hljómi. Á sýningunni sýnir listafólk sem vinnur að verkum sínum í Listvinnzlunni ný verk sem unnin eru í samtali við einstakan höggmyndagarð Samúels og verða hluti af umhverfi hans.

Megináhersla sýningarinnar er á skúlptúra og verk undir berum himni. Með sýningunni skapast lifandi samtal milli samtímalistar og alþýðulistar, fortíðar og nútíðar, miðju og jaðars.

Sýningarstjóri er Margrét M. Norðdahl.

Sýnendur eru Andrea Gavern, Atli Már Indriðason, Ásdís Ásgeirsdóttir, Benedikta Rostan, Birkir Sigurðsson, Elín S.M. Ólafsdóttir ESMÓ, Elín Fanney Ólafsdóttir, Elísabet Sóldís Þorsteinsdóttir, Erlingur Örn Skarphéðinsson, Frida Adriana Martins, Gígja Garðarsdóttir, Guðbjörg Lára Viðarsdóttir Guðmundur Stefán Guðmundsson Gunnar Már Pálsson, Harpa Rut, Helga Matthildur Viðarsdóttir, Hjördís Árnadóttir, Kári Hrafn Jónsson, Ingimar Azzad Torossian, Ísak Óli Sævarsson, Kolbeinn Jón Magnússon Kristján B Rostan, Leona Krlínová, Lilja Dögg Birgisdóttir, Luiza Katarzyna Kierzk, Margrét M. Norðdahl, Óskar Theódórsson, Rut Ottósdóttir, Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Veronica M. Jarosz,  Þórir Gunnarsson Listapúkinn og Þorvaldur Arnar Guðmundsson.

Listvinnzlan er skapandi og inngildandi vettvangur á sviði lista og menningar sem leitast við að skapa faglegt rými fyrir listsköpun, samvinnu, sýnileika og inngildingu innan íslensks menningarlífs.

Skoða viðburð á Facebook