Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi viðburður endaði fyrir u.þ.b. 2 ári síðan.

Opinn fundur - endur­skoðun áfanga­staða­áætl­unar

  • þriðjudaginn 28. mars kl. 17:00–19:00

  • Félagsheimilið Vindheimar, Tálknafirði
    Sjá á korti

Verið er að vinna að endurskoðun aðgerðaáætlunar Áfangastaðaáætlunar Vestfjarða vorið 2023. Farið verður í fundaröð um öll svæði aðgerðaáætlana Vestfjarða sem hefst með opnum fundi á sunnanverðum Vestfjörðum. Fundurinn fer fram í Vindheimum á Tálknafirði þriðjudaginn 28. mars og verða léttar veitingar í boði. Ferðaþjónar, kjörnir fulltrúar og önnur sem hafa áhuga á uppbyggingu ferðaþjónustu á sunnanverðum Vestfjörðum eru hvött til að mæta.

Fyrir nánari upplýsingar má hafa samband við Steinunni, verkefnastjóra Áfangastaðaáætlunar Vestfjarða á netfangið steinunn@vestfirdir.is.

Skoða viðburð á Facebook