Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi viðburður endaði fyrir u.þ.b. 1 mánuði síðan.

Svavar Knútur með söngvaskálda­tón­leika

  • föstudaginn 14. júní kl. 20:00–22:00

  • Skrímslasetrið Bíldudal, Strandgötu 7
    Sjá á korti

Svavar Knútur söngvaskáld fagnar nú útgáfu á nýjustu plötu sinni, Ahoy! Side B, með tónleikum um landið vítt og breitt og auðvitað er mikilvægt að heimsækja vini og vellunnara og frændfólk á Bíldudal og syngja fyrir gesti, gangandi og hvers kyns skoffín, fjörulalla og skrípalinga á Skrímslasetrinu, föstudagskvöldið 14. júní kl. 20.00.
Samhliða Ahoy! Side B kemur út Tvöfaldur vínill, Ahoy!, þar sem Side B rennur saman við systurplötu sína Ahoy! Side A, sem kom út 2018. Loksins sameinaðar!
Á tónleikunum mun Svavar Knútur syngja lög vítt og breitt af ferli sínum og segja sögur af ferðlögum, löndum og lýðum. Börn eru auðvitað velkomin í fylgd með foreldrum.
Aðgangseyrir er litlar kr. 3.500, en ókeypis er fyrir börn og unglinga undir 18 ára í fylgd með foreldrum eða afa/ömmu.
Sjáumst eldhress!

Miðasala á tix.

Skoða viðburð á Facebook