Tölum saman um líðan og tengsl — Barnaheill og Geðhjálp á Patreksfirði
fimmtudaginn 10. september kl. 19:30–21:00
Patreksskóli
Sjá á korti
Barnaheill og Geðhjálp hafa tekið höndum saman og ferðast nú um Vesturland og Vestfirði frá 7.–11. september með viðkomu á Grundarfirði, Hólmavík, Ísafirði og Patreksfirði. Félögin efna til fundar við ungmenni um allt land til að ræða líðan og veruleika ungs fólks á hverjum stað.
Á fimmtudagsmorgun er nemendum í efstu bekkjum grunnskólanna í Vesturbyggð boðið í vinnustofu þar sem áhersla er lögð á líðan, samskipti (heilbrigð og óheilbrigð) og jákvæða þætti sem mætti styrkja innan hvers samfélags.
Unnið verður úr skilaboðum ungmennanna samdægurs og þau rædd með forsjáraðilum og forráðafólki sveitarfélaganna á opnum íbúafundi í Patreksskóla fimmtudagskvöldið 10. september. Þar verða einnig umræður í lokin með áherslu á jákvæð skilaboð sem hægt er að byggja á í áframhaldandi vinnu innan hvers samfélags og á hverju heimili.
Á þennan fund eru öll velkomin en þó er ekki æskilegt að börn yngri en 12 ára mæti. Forsjáraðilar, sveitarstjórnarfólk, starfsfólk í skóla- og frístundamálum, heilbrigðis- og velferðarþjónustu svæðisins og lögregla eru sérstaklega hvött til að mæta og taka þátt í samtalinu. Dagskráin á hverjum stað endar svo á stuttum tónleikum með Unnsteini Manuel.
Patreksskóli 10. september kl. 19:30 — dagskrá
- Geðhjálp/Barnaheill opna fundinn og fara yfir dagskrána
- Hópstórar og/eða nemendur kynna niðurstöður hvers hóps
- Samtal um niðurstöður
- Jákvæð skilaboð fundarins – hvað er gott og hvað er hægt að bæta?
- Ljúfir tónar frá Unnsteini Manuel
- Fundi lýkur