Hoppa yfir valmynd

Vatns­litanám­skeið

Hjördís Alexandersdóttir myndlistakona heldur vatnslitanámskeið í vinnustofu Arnheiðar Jónsdóttur í Verbúðinni dagana 8.–11. maí 2026. Námskeiðið er samtals 12 klukkustundir, kennt yfir fjóra daga (3 klst. í senn): föstudag 8. maí kl. 18:30–21:30, laugardag 9. maí kl. 10:00–13:00, sunnudag 10. maí kl. 10:00–13:00 og mánudag 11. maí kl. 18:30–21:30. Farið er yfir grunnatriði vatnslitamálunar, tækni, litablöndun og annað sem þarf til að byrja að mála. Allt efni er innifalið í verði, en þátttakendur fá lista yfir einföld heimilisáhöld sem þarf að koma með. Verð er 48.000 kr., þar af 5.000 kr. óendurkræft staðfestingargjald við skráningu. Skráning er hjá Arnheiði Jóns í síma 863 0961 eða með skilaboðum og lýkur 30. apríl.

Einnig verður boðið upp á sýnikennslu í garnlitun föstudaginn 8. maí og mánudaginn 11. maí kl. 10:30–13:00. Þar verða sýndar helstu aðferðir við að lita garn, farið yfir litablöndur og hlutföll og gefnar uppskriftir. Verð er 15.000 kr. og skráning fer fram á sama hátt, með lokaskráningu 30. apríl.