Hoppa yfir valmynd

Almannavarnarnefnd #9

Fundur haldinn í Brellum, fundarsal ráðhúsi Vesturbyggðar, 25. mars 2026 og hófst hann kl. 15:00

Nefndarmenn
Starfsmenn
  • Ágúst Gunnarsson (ÁG) áheyrnafulltrúi
  • Andri Fannar Helgason (AFH) áheyrnafulltrúi
  • Hildur Elísabet Pétursdóttir (HEP) áheyrnafulltrúi

Fundargerð ritaði
  • Davíð Rúnar Gunnarsson

Almenn erindi

1. Öryggi i fjarskiptum í Tálknafirði

Lagt var fram minnisblað frá Lilju Magnúsdóttur sem hún vann fyrir heimastjórn Tálknafjarðar. Tvö stór rafmagnsleysi hafa verið á svæðinu, annars vegar 11.des og hins vegar 31.des. Við þessi rafmagnsleysi kom í ljós að öryggiskerfi virkuðu ekki sem skyldi.

Útsendingar hjá RÚV rás 2 sem skilgreind er sem hluti af öryggiskerfi landsins datt út í bæði skiptin. Fram kemur að RÚV lagfærði varaafl sitt í janúar.

Tetra kerfi viðbragðsaðila náði ekki sambandi út fyrir svæðið í seinna rafmagnsleysinu í eina klukkustund og 20 mín. Fram kemur að Míla hefur farið í úrbætur á varafli í janúar.

Almannavarnarnefnd lýsir áhyggjum af því að þessi staða geti komið upp og að heilt þorp sé sambandslaust við umheiminn í skemmri eða lengri tíma.
Nefndin beinir því til fyrirtækja sem sjá um öryggisfjarskipti að yfirfara sinn búnað á öðrum stöðum til að koma í veg fyrir að sú staða geti komið upp.

Bæjarstjóra falið að senda bókun nefndarinnar til rekstraraðila fjarskipta og öryggiskerfa.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Fjarskiptasamband í Vesturbyggð í ljósi lokunar á 2G og 3G

Ljóst er að lokun á 2G og 3G sendum hefur áhrif á útbreiðslu GSM sambands á svæðinu. Sérstaklega er slæmt að ekki sé GSM samband á öllum helstu vegum til öryggis fyrir vegfarendur.

Almannavarnarnefnd beinir því til símafyrirtækja og fjarskiptastofu að halda áfram uppbyggingu GSM kerfa og sjá til þess að allir vegir séu með sambandi.

Bæjarstjóra falið að áframsenda bókun nefndarinnar.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Sólmyrkvi 12 ágúst 2026

Farið yfir stöðuna vegna sólmyrkva. Búið er að skipa vinnuhópa á landsvísu til að samræma aðgerðir.

Vegagerðin hefur unnið greiningu á bílastæðum á leiðinni að Látrabjargi.

Sveitarfélagið mun opna söfnunarstaði við félagsheimilin þar sem hægt verður að leggja bílum og salernisaðstaða er til staðar.

Lögreglan hefur sent spurningar til viðbragðsaðila varðandi viðbragð og er að vinna málin áfram.

Verið er að skoða fjarskiptakerfi vegna atburðarins. Neyðarlínan er að vinna áæltun um að styrkja Tetra kerfið.
Varðandi almenn fjarskipti þá kemur ríkið ekki með sérstakt framlag vegna þeirra.
Eftir er að skoða hvað hvert og eitt símafyrirtæki gerir.

Áætlað er að halda upplýsingafund fyrir íbúa um mánaðarmótin maí/júní

Málsnúmer6

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

4. Snjómokstur að Bíldudalsflugvelli

Lagt fram til kynningar samskipti Heimastjórnar Arnarfjarðar varðandi snjómokstur að Bíldudalsflugvelli og áhyggjur af vetrarþjónustu á Bíldudalsvegi.
Máli var tekið fyrir í heimastjórn og bæjarstjórn.

Málsnúmer5

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Til umsagnar 322. mál-Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030

Lögð fram til kynningar umsögn Vesturbyggðar vegna þingsályktunar um samgönguáætlun 2026-2040

Málsnúmer5

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Áskorun til almannavarnanefnda á Vestfjörðum

Lögð fram til kynningar áskorun frá Vestfjarðastofu um að hefja vinnu við undirbúning vegna sólmyrvans. Almannavarnarnefnd þakkar ábenginguna og hefur þegar sett vinnu af stað í tengslum við sólmyrkvann 12. ágúst næstkomandi.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30