Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 15. maí 2025 og hófst hann kl. 15:00
Nefndarmenn
- Maggý Hjördís Keransdóttir (MHK) varamaður
- Jenný Lára Magnadóttir (JLM) varaformaður
- Páll Vilhjálmsson (PV) formaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði
- Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri
Almenn erindi
1. Byggðamerki sameinaðs sveitarfélags
Valgerður María Þorsteinsdóttir menningar- og ferðamálafulltrúi kynnir stöðu á verkefninu um val á nýju byggðarmerki.
Bæjarráð þakkar Valgerði fyrir yfirferðina.
2. Styrkumsóknir til menningar- og ferðamála 2025
Lagðar voru fyrir styrkbeiðnir sem bárust í annari úthlutun ársins 2025. Alls bárust þrjár umsóknir.
Menningar- og ferðamálafulltrúi Vesturbyggðar sat fundinn undir liðnum.
1. Sögufélag Barðastrandarsýslu sækir um styrk fyrir útgáfu Árbókar Barðastrandarsýslu. Sótt er um 210 þúsund króna styrk.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk að upphæð 150 þúsund krónur í samræmi við reglur sjóðsins.
2. 10. bekkur Patreksskóla sækir um styrk fyrir útskriftar- og menningarferð til Salou á Spáni. Sótt er um 100 þúsund króna styrk.
Bæjarráð samþykkir styrkbeiðnina.
3. Sunna Gunnlaugsdóttir sækir um styrk fyrir verkefnið Jón úr Vör fer vestur. Haldnir verða tónleikar í Félagsheimili Patreksfjarðar þar sem flutt verða lög við ljóð Jóns úr Vör. Sótt er um 150 þúsund króna styrk.
Bæjarráð samþykkir styrkbeiðnina.
3. Umsóknir Vesturbyggðar í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2024
Valgerður María Þorsteinsdóttir menningar- og ferðamálafulltrúi fer yfir úthlutum úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða.
Vesturbyggð sótti um styrki í tvö verkefni, annars vegar um uppbyggingu aðstöðuhúss við Krossneslaug og hins vegar um hönnun útsýnispalls á Strengfelli. Ekki fengust styrkir í þessi verkefni.
4. Listaverk á gafl Verbúðar
Lagt fram erindi frá Westfjords Adventures þar sem óskað er eftir leyfi fyrir að fá að setja upp vegglistaverk eftir listamanninn Juan á gafl verbúðarinnar á Patreksfirði. Verkið mun snúa að íþróttavellinum. Listaverkið yrði vísun í sjávarþorpið Patreksfjörð og kostað af Westfjords Adventures.
Bæjarráð tekur vel í erindið og felur menningar og ferðamálafulltrúa að vinna málið áfram með Westfjords Adventures.
5. Stekkar gatnahönnun
Lagt fram minnisblað umhverfis- og framkvæmdarsviðs vegna endurgerðar á Stekkum gatnagerð Patreksfirði. Óskað er eftir að heimild til að taka tilboði Eflu ehf í hönnun og gerð útboðsgagna.
Gert var ráð fyrir 3,5 milljónum í hönnunarvinnu við Stekka í fjárhagsáætlun ársins 2024. Tilboðið hljóðar uppá 6,1 milljón.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna viðauka við fjárhagsáætlun sem nemur 2,6 milljónum og í kjölfarið ganga til samninga við Eflu um hönnun á Stekkum.
Til kynningar
6. Samgönguáætlun 2026-2030 endurskoðun áætlunar - Hafnaframkvæmdir og sjóvarnir
Lagt fram til kynningar erindi Vegagerðarinnar dags. 6. maí 2025 varðandi hafnargerð og sjóvarnir á samgönguáætlun 2026-2030. Frestur til að skila inn tillögum er til 20. júní 2024.
7. Fundargerðir 2025 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lagðar fram til kynningar fundargerðir 977.og 978 fundar stjórnar Sambandsins frá 11. og 30 apríl 2025
8. Aðalfundur Landskerfis bókasafna hf. 2025
Lagður fram til kynningar ársreikningur 2024, tillögur til hækkunar á hlutafjár og samþykktir sem verður lagt fyrir aðalfund Landskerfis bókasafna hf
9. Fundargerðir 2025 stjórnar Vestfjarðastofu
Lagðar fram til kynningar fundargerðir 67 og 68 frá Vestfjarðarstofu frá 12.03.2025 og 09.04.2025
10. Fundargerðir 2025 Hafnasambands Íslands
Lögð fram til kynningar fundargerð 472. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands frá 28. apríl 2025.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30