Hoppa yfir valmynd

Bæjarráð #25

Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 26. maí 2025 og hófst hann kl. 14:00

Nefndarmenn
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
  • Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Fundargerð ritaði
  • Nanna Lilja Sveinbjörnsd sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Almenn erindi

1. Ársreikningur 2024

Lagður fram í fyrri umræðu Ársreikningur Vesturbyggðar og stofnana hans fyrir árið 2024.

Bæjarráð vísar ársreikningi 2024 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Fjárhagsáætlun 2026

Lagðar fram reglur um fjárhagsáætlunarferlið 2025 vegna áætlunar 2026 - 2029 ásamt drögum að dagsetningum við vinnu fjárhagsáætlunar.

Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim áfram til staðfestingar bæjarstjórnar.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Fjárhagsáætlun 2025 - viðaukar

Lagður fyrir viðauki 3 við fjárhagsáætlun Vesturbyggðar 2025.
Viðauki 3 er lagður fram vegna endurgerðar götunnar Móatúns í Tálknafirði en ekki náðist að ljúka verkinu á síðasta ári, kr 12 milljónir. Götuhönnunar á Stekkum Patreksfirði kr 2,6 milljónir og varmadæluhúss við Bíldudalsskóla 4,5 milljónir. samtals 19,1 milljónir.

Viðaukanum er mætt með lántöku.

Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu í A og B hluta.

Bæjaráð samþykkir viðaukann og vísar honum áfram til staðfestingar bæjarstjórnar.

Málsnúmer4

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Dunhagi umsókn um menningarstyrk Vesturbyggðar

Lagður fram tölvupóstur frá Guðmundi Má Ástþórssyni fyrir hönd Dunhaga Tálknafirði dags. 24. febrúar sl. með umsókn um menningarstyrk Vesturbyggðar til greiðslu á álögðum fasteignagjöldum.

Á 20. fundi bæjarráðs þann 11. mars sl. var málinu frestað og bæjarstjóra falið að kalla eftir frekari gögnum sem nú liggja fyrir.

Bæjarráð samþykkir að veita kr 200þús í styrk samkvæmt reglum um mennignarstyrk Vesturbyggðar til greiðslu á álögðum fasteignagjöldum. Heimild er að veita styrk í allt að þrjú ár en athygli er vakin á því að sækja þarf um styrk árlega.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Til umsagnar 351. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis

Lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um veiðigjald (aflaverðmæti í reiknistofni), 351. mál.

Bæjarráð Vesturbyggðar gerir ekki athugasemd við sanngjarna gjaldtöku af auðlindum þjóðar, þar á meðal sjávarafurðum.

Bæjarráð Vesturbyggðar leggur ríka áherslu á að samhliða framlagningu frumvarpsins verði skýrt og gagnsætt hvernig áætlað er að ráðstafa þeim fjármunum sem innheimtir verða í gegnum hækkuð veiðigjöld. Sérstaklega telur bæjarráðið mikilvægt að sýnt verði fram á með hvaða hætti þessi aukna tekjuöflun ríkisins nýtist til uppbyggingar innviða. Slík tenging milli auðlindanýtingar og innviðafjárfestinga er lykilatriði í að efla traust á veiðigjaldakerfinu og sýna fram á að auðlindir landsins skili ávinningi til samfélaganna sem þær byggja á.

Gæta þarf þess að frumvarpið verði ekki of íþyngjandi fyrir smærri útgerðir, þar sem hækkun á frítekjumarki kemur þeim ekki að gagni. Margar þeirra hafa þegar verið undir gildandi frítekjumarki, og því mun gjaldtakan koma inn af fullum þunga hjá þeim. Þetta leiðir til þess að hlutfallsleg byrði breytinganna lendir mest á þeim.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. til umsagnar frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu), 298. mál

Lagt fram frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu) lagt fyrir til umsagnar. Mál nr. 298.

Bæjaráð Vesturbyggðar fagnar framlagningu frumvarpsins enda kom kvótasetning á grásleppu sérstaklega illa út fyrir rekstraraðila í Vesturbyggð þar sem nýleg veiðireynsla var ekki metin til kvóta.

Patreksfjörður var sú höfn sem kom verst út í kvótasetningu á grásleppu sem tók gildi 1.september 2024. Grásleppuveiðar eru að mestu bundnar við ákveðin landsvæði, einkum á Vestfjörðum, og skipta miklu fyrir útgerð í Vesturbyggð. Þar eru þessar veiðar mikilvægur hluti af heildarmynstri smábátaútgerðar. Í Vesturbyggð hefur átt sér stað nýliðun í greininni, þar sem einstaklingar hafa hafið smábátaútgerð með áherslu á grásleppu, sem hefur reynst lykilþáttur í árstekjum þeirra. Með því að sameina grásleppuveiðar og strandveiðar hefur tekist að lengja veiðitímabilið og skapa stöðugri grundvöll fyrir rekstur smábáta.

Bæjarráð Vesturbyggðar getur ekki séð að sú breyting á lögum um grásleppu sem gerð voru þjóni hagsmunum atvinnugreinarinnar né nytjastofnsins og þar með ekki hagsmunum almennings.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

7. Fundargerðir Svæðisskipulagsnefndar Vestfjarða 2025

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 13., 14., 15., 16. og 17. funda svæðisskipulagsnefndar Vestfjarða.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


8. Bíldudalsskóli og Tjarnarbrekka Hönnun og undirbúningur

Lagðar fram til kynningar 12. og 13. fundargerðir verkfunda vegna Bíldudalsskóla.

Málsnúmer13

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


9. Fundargerðir 2025 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Lögð fram til kynningar fundargerð 979. fundar stjórnar Sambandsins frá 16. maí 2025.

Málsnúmer8

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


10. Fundargerðir 2025 Breiðafjarðarnefndar

Lagðar fram til kynningar fundargerðir fyrir 230. fund, sem var haldinn 4. mars 2025, og 231. fund Breiðafjarðarnefndar, haldinn 20. mars 2025.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00