Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 10. júní 2025 og hófst hann kl. 14:00
Nefndarmenn
- Maggý Hjördís Keransdóttir (MHK) varamaður
- Jenný Lára Magnadóttir (JLM) varaformaður
- Páll Vilhjálmsson (PV) formaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði
- Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri
Almenn erindi
1. Framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu
Sigríður Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu og Gylfi Ólafsson formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga mættu til fundarins og fóru yfir helstu verkefni sem unnin eru í samstarfi sveitarfélaga á Vestfjörðum í gegnum Vestfjarðastofu og Fjórðungssambandið.
Bæjarráð þakkar yfirferðina.
2. Umsókn um framkvæmdaleyfi. Mjólkárlína 2 í sunnanverðum Arnarfirði
Erindi frá Landsnet hf, dags. 4. júní 2025. í erindinu er óskað eftir samþykki Vesturbyggðar fyrir breyttri legu háspennustrengs í landi Hóls á Bíldudal. Áður var áformuð strengleið um dalinn í landi Litlu-Eyrar en samkvæmt uppfærðum áformum er óskað eftir því að strengurinn verði innan landamerkja Vesturbyggðar í dalnum. Lagnaleiðin var unnin í samráði við Golfklúbb Bíldudals. Erindinu fylgja uppfærð samningsdrög sem miða við legu strengsins innan Hóls í samræmi við breytta legu, einnig fylgir uppfærð teikning af legu strengsins.
Bæjarráð samþykkir breytta legu strengsins.
Til kynningar
4. Tálknafjarðarhöfn, viðhaldsþörf
Heimastjórn Tálknafjarðar hvetur bæjarráð Vesturbyggðar til að leggja fram tillögur til samgönguáætlunar um að fá fjármagn í endurbætur á Tálknafjarðarhöfn við endurskoðun samgönguáætlunar.
5. Friðlandið í Vatnsfirði. Beiðni Orkubús Vestfjarða um breytingu á friðlýsingarskilmálum.
Lögð fyrir til kynningar skýrsla Rannsóknarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri um hvort fyrir hendi séu nægilega brýnir samfélagslegir hagsmunir til að breyta friðlýsingarskilmálum friðlandsins í Vatnsfirði, sbr. 44. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd.
6. Fundargerðir 2025 stjórnar Náttúrustofa Vestfjarða
7. Bíldudalsskóli og Tjarnarbrekka Hönnun og undirbúningur
8. Fundargerðir Svæðisskipulagsnefndar Vestfjarða 2025
Lagðar fram til kynningar fundargerðir 18.og 19 fundar Svæðisskipulagsnefndar Vestfjarða, frá 26.05.2025 og 03.06.2025
9. Fundargerðir 2025 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
10. Fundargerðir sorphirða Verkfundargerðir Verktaka og Verkkaupa
11. Sorphirðusamningur
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00