Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 11. nóvember 2025 og hófst hann kl. 14:00
Nefndarmenn
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Almenn erindi
1. Ofanflóðavarnir Patreksfirði
Fulltrúar Ofanflóðasjóðs, Framkvæmdasýslu ríkisins, Verkís og Landmótunar mættu á fund bæjarráðs og kynntu fyrirhugaðar ofanflóðaframkvæmdir við Sigtún og Stekkagil á Patreksfirði.
Á fundinum var farið yfir helstu atriði verkefnisins, þar á meðal hönnun og umfang varnargarða og tímasetningar framkvæmda.
Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna.
2. Álagningarhlutfall útsvars 2026
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að útsvarshlutfall fyrir árið 2026 haldist óbreytt frá fyrra ári 14,97%
3. Fjárhagsáætlun 2025 - viðaukar
Lagður fram viðauki 6 við fjárhagsáætlun 2025. Viðauki 6 er lagður fram vegna kaupa á húsgögnum og lausum búnaði fyrir Bíldudalsskóla 16,5 milljónir.
Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu í A hluta, né A og B hluta. Handbært fé lækkar um 16,5 milljónir og verður í A hluta 16,7 milljónir og í A og B hluta 83,7 milljónir.
Bæjarráð samþykkir viðaukann og vísar honum áfram til samþykktar bæjarstjórnar.
Til kynningar
5. Fundargerðir 2025 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram til kynningar fundargerð 987. fundar stjórnar Sambandsins frá 21.október 2025.
6. Beiðni um tilnefningar í Breiðafjarðarnefnd 2025-2029
7. Ágóðahlutagreiðsla 2025
Lagt fram til kynningar bréf til aðildarsveitarfélaga EBÍ er varðar ákvörðun stjórnar EBÍ um ágóðahlutagreiðslu ásamt yfirliti yfir greiðslur til hvers og eins sveitarfélags.
8. Mál nr. 136 um flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana
Lagður fram til kynningar tölvupóstur atvinnuveganefnd Alþingis dags. 30. október sl. með ósk um umsögn um frumvarp til laga um flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana.
9. Breiðafjarðarnefnd - Niðurstöður úr rannsókn um framandi tegundir og dultegundir á Breiðafirði
Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Breiðafjarðarnefnd dags. 31. október sl. þar sem vakin er athygli á rannsókn um framandi tegundir og dultegundir á Breiðafirði.
10. Umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2025
Umsóknir Vesturbyggðar í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða árið 2025 lagðar fram til kynningar. Sótt var um fyrir uppbyggingu áningarstaðar og salernisaðstöðu í Flókatóftum annars vegar og hins vegar fyrir deiliskipulagsgerð og hönnun útsýnispalls á Strengfelli á Bíldudal.
11. Fundur með efnahags- og viðskiptanefnd og minnisblað um tollfrelsi
Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags 5. nóvember sl. með upplýsingum um fund með efnahags- og viðskiptanefnd og minnisblaði um tollfrelsi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30