Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 10. febrúar 2026 og hófst hann kl. 14:00
Nefndarmenn
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði
- Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri
Almenn erindi
1. Árangursstjórnun í fjármálum
Fulltrúar KPMG koma inn fundinn til að kynna verkefnið
Undir liðnum sátu sviðsstjórar hjá Vesturbyggð ásamt hafnarstjóra.
Unnið er að greiningu á rekstri sveitarfélagsins, markmiðasetningu og uppsetningu mælaborðs. Farið yfir uppsetningu, markmið og tímalínu. Næsta skref er að halda vinnustofu með stjórnendum sveitarfélagsins sem ráðgert er að verði í lok febrúar.
2. Endurskoðun húsnæðisáætlana 2026
Lögð fram Húsnæðisáætlun Vesturbyggðar 2026. Húsnæðisáætlunin er hér lögð fram með sama sniðu og gert var árið 2025. Áætluninni er skilað rafrænt og á stöðluðu formi til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Markmið með þessu formi húsnæðisáætlana er að auðvelda sveitarfélögum gerð þeirra ásamt því að auðvelda samanburð á milli sveitarfélaga og þannig bæta yfirsýn um stöðu og horfur á húsnæðismarkaði.
Húsnæðisáætlun Vesturbyggðar 2026 var unnin með hliðsjón af stefnuskjölum bæjarstjórnar Vesturbyggðar s.s. áætlun um mannfjöldaþróun skv. fjárhagsáætlun 2026-2029. Bæjarstjóri ásamt sviðsstjórum Vesturbyggðar héldu utan um öflun upplýsinga í áætlunina í samstarfi við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Bæjarráð samþykkir húsnæðisáætlunina og vísar henni áfram til bæjarstjórnar til staðfestingar.
3. Endurskoðun úthlutunarreglna styrkja til menningar- og ferðamála
Nýjar úthlutunarreglur styrkja bæjarráðs til menningar- og ferðamála lagðar fram til samþykktar.
Menningar- og ferðamalafulltrúi sat fundinn undir liðnum.
Bæjarráð samþykkir reglurnar og felur menningar- og ferðamálafulltrúa að kynna þær á heimasíðus sveitarfélagsins.
4. Styrkumsóknir til menningar- og ferðamála 2026
Lagðar voru fyrir styrkumsóknir sem bárust í fyrstu úthlutun ársins 2026. Alls bárust þrjár umsóknir.
Menningar- og ferðamálafulltrúi sat fundinn undir liðnum og gerði grein fyrir umsóknum í samræmi við reglur menningar- og ferðamálasjóðs Vesturbyggðar.
1. Kvenfélagið Sif sækir um styrk vegna kostnaðar við hljómsveit og hljóðmann á þorrablóti. Sótt er um 150 þúsund króna styrk.
Bæjarráð telur styrkbeiðnina ekki samræmast markmiðum sjóðsins og er henni hafnað.
Þórkatla Soffía Ólafsdóttir vék af fundi.
2. Verbúðin sækir um styrk fyrir kostnaði vegna tónleika Bríetar sem munu fara fram þann 2. apríl nk. Sótt eru um 150 þúsund króna styrk.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk að upphæð 90 þúsund krónur.
Þórkatla Soffía Ólafsdóttir kom aftur inná fundinn.
3. Orig ehf. sótti um styrk fyrir sýningunni Future. Sótt er um 80 þúsund króna styrk.
Bæjarráð samþykkir styrkbeiðnina.
6. Til umsagnar 322. mál-Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030
Lögð fram til kynningar umsögn Vesturbyggðar um Samgönguáætlun fyrir árin 2026 - 2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026 - 2030. Efni umsagnar hafði áður verið rædd á síðasta fundi bæjarraðs sem haldinn var 3. febrúar 2026.
Til kynningar
5. Hvatning til umsagnar um þingsályktunartillögu um staðsetningu þyrlu Landhelgisgæslunnar
Lagður fram til tölvupóstur frá Atlantsflugi ehf hvatning til umsagnar um þingsályktunartillögu um staðsetningu þyrlu Landhelgisgæslunnar frestur er tl 12 febrúar 2026
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:15