Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 24. febrúar 2026 og hófst hann kl. 14:00
Nefndarmenn
- Maggý Hjördís Keransdóttir (MHK) varamaður
- Jenný Lára Magnadóttir (JLM) varaformaður
- Gunnþórunn Bender (GB) varamaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Almenn erindi
1. Hitaveituframkvæmdir Patreksfirði
Lagt fyrir erindi frá Orkubúi Vestfjarða. Fulltrúar Orkubúsins komu inn á fundinn til þess að fara yfir erindið og framkvæmdir Orkubúsins í sumar og haust í tengslum við lagningu hitaveitulagna á Patreksfirði.
Sölvi Sólbergsson framkvæmdarstjóri orkusviðs og Elena Dís Víðisdóttir sérfræðingur á orkusviði frá Orkubúinu sátu fundinn undir liðnum. Einnig sátu Geir Gestsson sviðstjóri umhverfis- og framkvæmdarsviðs, Magnús Árnason verkefnastjóri á framkvæmdasviði og Elfar Steinn Karlsson byggingarfulltrúi fundinn undir liðnum.
Framkvæmdin nær yfir mest alla Strandgötu að gatnamótum Bjarkargötu, Urðargötu og Aðalstrætis og hluta af Sigtúni. Erindinu fylgir teikning er sýnir grófa legu lagna.
Áformaður verktími verður sumar og haust 2026. Í ljósi þess er jafnframt óskað eftir því að áformaðri malbikun á Strandgötu verði frestað um eitt ár, með það að leiðarljósi að koma í veg fyrir tvíverknað og rask á svæðinu.
Umsókn um framkvæmdaleyfi verður kynnt fyrir skipulags- og framkvæmdaráði og heimastjórn Patreksfjarðar þegar hún liggur fyrir.
Bæjarráð tekur vel í erindið og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram í samvinnu við Orkubúið.
2. Fyrirspurn um skólahúsnæðið að Dalbraut 2 Bíldudal
Kristinn Sigvaldason og Jenný Magnúsdóttir frá Borgarverki komu inn á fundinn til að fara yfir fyrirspurn sína um Dalbraut 2 á Bíldudal, en áhugi er hjá Borgarverki að fá húsnæðið til afnota á meðan á framkvæmdum á ofanflóðavörnum á Bíldudal stendur.
Geir Gestsson sviðstjóri umhverfis- og framkvæmdarsviðs, Magnús Árnason verkefnastjóri á framkvæmdasviði og Elfar Steinn Karlsson byggingarfulltrúi sátu fundinn undir liðnum.
Bæjarráð þakkar fulltrúum Borgarverks fyrir sýndan áhuga. Samþykkt er að bjóða þeim að koma og skoða húsnæðið við fyrsta hentugleika. Að skoðun lokinni verður tekin afstaða til frekari viðræðna.
3. Frístundastyrkir
Lögð fram drög að reglum um frístundastyrki
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi reglur og felur sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að auglýsa reglurnar og vinna að innleiðingu þeirra þannig að styrkurinn komi til framkvæmdar. Umsóknarferlið verður rafrænt og unnið í gegnumskráningarkerfið Abler, með það að markmiði að einfalda umsóknir, bæta yfirsýn og tryggja skilvirka afgreiðslu styrkja.
4. Starf eldri borgara á Bíldudal
Lögð fram bókun frá 3. fundi öldungarráðs þar sem óskað er eftir samtali varðandi framtíðarlausn á húsnæðis- og aðstöðuleysi fyrir félagsstarf eldri borgara á Bíldudal
Bæjarráð tekur undir áhyggjur eldri borgara á Bíldudal. Unnið er að framtíðarlausn fyrir félagsstarfið.
5. Akstursþjónusta
Lögð fram bókun frá 3. fundi öldungaráðs þar sem ráðið óskar eftir því að bæjarráð kanni möguleika á akstursþjónustu fyrir eldri borgara í sveitarfélaginu.
Bókunin er svohljóðandi:
Rætt um möguleika á aukinni akstursþjónustu fyrir eldri borgara. Í dag mætir Heilbrigðisstofnun Vestfjarða sínum þjónustuþegum úr hópi eldri borgara í einhverjum tilvikum með akstri á stofnunina og aftur heim til að sækja margvíslega þjónustu á heilsugæslu á Patreksfirði. Eyrarsel hefur boðið upp á það að sækja eldri borgara sem sækja þar félagsstarf. Að þessu undanskildu er engin akstursþjónusta í sveitarfélaginu. Rætt um möguleika á akstri fyrir heimsóknir milli sela.
Öldungaráð vísar því til bæjarráðs að kanna möguleika á akstursþjónustu fyrir eldri borgara í sveitarfélaginu.
Bæjarráð þakkar öldungaráði fyrir að vekja athygli á málinu. Allar almenningssamgöngur og akstursþjónusta í sveitarfélaginu er nú til skoðunar og verið er að kanna ýmsa möguleika í þeim efnum svo hægt sé að bæta þjónustuna.
6. Snjómokstur að Bíldudalsflugvelli
Lögð fram bókun frá 17 fundi heimastjórnar Arnarfjarðar sem er líst er áhyggjum að ástandi Bíldudalsvegar inn að Bíldudalsflugvelli.
bókunin er svohljóðandi:
Heimastjórn Arnarfjarðar lýsir áhyggjum sínum af ástandi Bíldudalsvegar inn að Bíldudalsflugvelli þar sem brýnt er að tryggja aukna vetrarþjónustu á þeim kafla og þá sérstaklega hálkuvörn sem þarf að vera hluti af vetrarþjónustunni. Á kaflanum eru tvær einbreiðar brýr auk þess sem slitlag vegarins er orðið það skemmt að um einbreiðan veg er að ræða stærstan hluta leiðarinnar. Þessi leið er gríðarlega mikilvæg fyrir samfélagið á sunnanverðum Vestfjörðum þar sem Bíldudalsflugvöllur gegnir hlutverki sjúkraflugvallar og því nauðsynlegt að tryggja samgöngur við völlinn sem allra best. Við endurbyggingu Bíldudalsvegar sem er í drögum að samgönguáætlun, er brýnt að þessi kafli verði tekinn sem hluti af þeirri framkvæmd en ekki skilinn eftir eins og lítur út fyrir í þeim drögum sem nú liggja frammi. Samþykkt samhljóða.
Bæjarráð tekur undir bókun heimastjórnar Arnarfjarðar og felur bæjarstjóra ræða við Vegagerðina um málið.
Til kynningar
8. Öryggi varaafls og fjarskipta í Arnarfirði
Lögð fram til kynningar svör Orkubús Vestfjarða og fjarskiptafyrirtækja vegna bókunar heimastjórnar Arnarfjarðar um öryggi varaafls og fjarskipta í Arnarfirði.
9. Úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga 20252026 - Bíldudalur - Brjánslækur - Patreksfjörður - Tálknafjörður - Vesturbyggð
Lagt fram til kynningar bréf frá Innviðaráðuneytinu með niðurstöðu á tillögu sveitarstjórnar um sérstök skilyrði (sérreglur) vegna
byggðakvóta fiskveiðiárið 2025-2026
10. Fundargerðir 2025 stjórnar Vestfjarðastofu
Lagðar fram til kynningar fundargerðir 73.74 og 75 2025 frá stjórnarfundi Vestfjarðarstofu
11. Fundargerðir 2025 stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga nr 91.- 92.- og 93 frá 2025
12. Fundargerðir 2025 Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum
Lagðar fram til kynningar fundargerðir nr. 80-87 frá stjórnarfundi Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum.
13. Fundargerðir 2026 Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum
Lögð fram til kynningar fundargerð nr. 88 frá stjórnarfundi Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum.
14. Fundargerðir 2026 Svæðisskipulagsnefndar Vestfjarða
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00