Hoppa yfir valmynd

Bæjarráð #49

Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 10. mars 2026 og hófst hann kl. 14:00

Nefndarmenn
  • Friðbjörg Matthíasdóttir (FM) aðalmaður
  • Jenný Lára Magnadóttir (JLM) varaformaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
  • Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Fundargerð ritaði
  • Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Almenn erindi

1. Kópanes, sskr. 1985. Tjón í Tálknafjarðarhöfn 25.feb 2026

Hafnarstjóri kynnti stöðu máls vegna bátsins Kópaness (sskr. 1985) sem sökk í Tálknafjarðarhöfn 25. febrúar sl. Við atvikið kom upp olíubrák og gripið var til tafarlausra mengunarvarna. Eigandi skipsins hefur upplýst að hann hafi ekki bolmagn til að standa straum af kostnaði við að ná skipinu upp. Unnið er að því að afla tilboðs í björgun skipsins og lagði hafnarstjóri fram beiðni um heimild til að ráðast í aðgerðir ef eigandi gerir það ekki.

Bæjarráð felur hafnarstjóra að vinna málið áfram og grípa til nauðsynlegra aðgerða.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Samstarfssamningur milli Vesturbyggðar og Héraðsambandsins Hrafnaflóka

Lagður fyrir til samþykktar samstarfsssamningur Vesturbyggðar og Héraðssambandsins Hrafnaflóka.

Bæjarráð lýsir ánægju sinni með samninginn sem hefur það að markmiði að efla íþrótta- og tómsundarstarf í sveitarfélaginu.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Móttöku og inngildingaráætlun íbúa af erlendum uppruna

Lagt fyrir erindi frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur, verkefnastjóra hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða, dags. 12. desember 2025, þar sem kynnt eru drög um samræmda móttöku og inngildingu íbúa af erlendum uppruna hjá sveitarfélögum á Vestfjörðum.

Bæjarráð samþykkir áætlunina og vísar henni áfram til bæjarstjórnar til staðfestingar.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Vinnufyrirkomulag heimastjórna í Vesturbyggð

Lögð fyrir drög að vinnufyrirkomulagi heimastjórna og verklagsreglur vegna starfs heimastjórna og aðkomu starfsmanna.

Bæjarráð samþykkir drögin að vinnufyrirkomulaginu og vinnureglurnar og felur bæjarstjóra að birta fyrirkomulagið á heimasiðu Vesturbyggðar.

Málsnúmer5

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Öryggi vegfarenda á Raknadalshlíð

Rætt um öruggi vegfaranda á Raknadalshlíð.

Bæjarráð Vesturbyggðar lýsir yfir áhyggjum af öryggi vegfarenda um Raknadalshlíð í ljósi þess að samkvæmt fyrirliggjandi samgönguáætlun er ekki gert ráð fyrir fjármagni til að ráðast í aðgerðir sem miða að því að bæta öryggi á þessum vegkafla.

Vesturbyggð hefur ítrekað bent á mikilvægi þess að ráðist verði í úrbætur á Raknadalshlíð og komið því skýrt á framfæri í umsögnum sveitarfélagsins um samgönguáætlun og til Vegagerðarinnar. Að mati bæjarráðs er mikilvægt að þessi mál fái nauðsynlega athygli í forgangsröðun framkvæmda.

Undanfarnar vikur hefur Vegagerðin ítrekað lýst yfir hættustigi vegna snjóflóðahættu á Raknadalshlíð og hefur snjóflóð fallið á veginn með þeim afleiðingum að loka þurfti hlíðinni. Þessar aðstæður undirstrika viðkvæma stöðu samgangna á svæðinu og mikilvægi þess að unnið sé að lausnum sem auka öryggi vegfarenda.

Raknadalshlíð er mikilvæg samgönguleið fyrir íbúa og atvinnulíf. Daglega fara þar um vegfarendur, þar á meðal skólabörn, starfsfólk og þjónustuaðilar. Það er því mikilvægt að tryggja að öryggismál á leiðinni séu eins góð og kostur er.

Í umræðu um mögulegar úrbætur hafa meðal annars verið nefndar lausnir á borð við uppsetningu svokallaðra vegskála á þeim stöðum þar sem þekkt er að snjóflóð falli. Bæjarráð telur mikilvægt að slíkar eða aðrar raunhæfar lausnir verði skoðaðar með markvissum hætti, með það að markmiði að bæta öryggi vegfarenda til framtíðar.

Málsnúmer6

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Uppbygging virkjunar í Ósá í Patreksfirði

Rætt um drög að samningi um virkjun í Ósá í Patreksfirði. Vesturbyggð birti markaðskönnun á heimasíðu sinni þar sem auglýst var eftir áhugasömum framkvæmdaraðilum. Einn framkvæmaraðili sýndi verkefninu áhuga og hefur síðan verið unnið að drögum að samningi um uppbyggingu og rekstur virkjunar í Ósá í Patreksfirði á grundvelli þeirra viðræðna.

Bæjarstjóra er falið að vinna áfram að gerð samnings.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


7. Flugsamgöngur til Bíldudals

Rætt um áætlunarflug til Bíldudals.

Bæjarstjóri fór yfir samtöl og fundi sem átt hafa sér stað með fulltrúum Vegagerðarinnar, Isavia og Norlandair þar sem rætt hefur verið um áætlunarflug til og frá Bíldudal.

Í síðasta útboði um áætlunarflug sem tók gildi í nóvember sl. var ferðum fækkað um tvær á viku. Áður höfðu um hluta árs verið farnar tvær ferðir á dag tvisvar í viku sem gerði íbúum kleift að fara til og frá höfuðborgarsvæðinu samdægurs.

Bent er á að þessar ferðir skipta miklu máli fyrir íbúa svæðisins, meðal annars til að sækja nauðsynlega þjónustu á borð við læknisþjónustu og aðra sérhæfða þjónustu sem einungis er aðgengileg á höfuðborgarsvæðinu, án þess að þurfa að gista þar yfir nótt.

Vesturbyggð beinir því til Vegagerðarinnar að endurskoða forsendur núverandi áætlunarflugs og kanna hvort unnt sé að bæta þessum ferðum aftur inn í áætlun. Bæjarstjóra er falið að koma þeirri afstöðu sveitarfélagsins á framfæri við Vegagerðina.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


8. María Júlía BA - 36

Lagt fram minnisblað dagsett 23. janúar 2026 varðandi málefni skipsins Maríu Júlíu BA-36 og kröfu Ísafjarðarbæjar á hendur Minjasafni Egils Ólafssonar á Hnjóti vegna kostnaðar sem fallið hefur til vegna skipsins.

Í minnisblaðinu er rakið að Áhugafélag um rekstur Maríu Júlíu BA-36 hafi verið stofnað árið 2004 af Byggðasafni Vestfjarða og Minjasafni Egils Ólafssonar með það að markmiði að vinna að endurgerð og rekstri skipsins. Hins vegar liggi ekki fyrir með skýrum hætti hvernig staðið var að rekstri félagsins né hver tók ákvarðanir um þann kostnað sem síðar féll til vegna skipsins. Af fyrirliggjandi gögnum verði ráðið að utanumhald og ákvarðanir um útgjöld hafi að mestu verið í höndum Byggðasafns Vestfjarða og/eða Ísafjarðarbæjar.

Einnig liggi fyrir vísbendingar um að eignarhald skipsins hafi á sínum tíma verið fært til Ísafjarðarbæjar vegna þeirrar skuldar sem hafði safnast upp vegna þess, þó ekki liggi fyrir formleg gögn um að gengið hafi verið frá þeirri ráðstöfun með skriflegum hætti.

Í minnisblaðinu er jafnframt bent á að möguleg krafa vegna þessa sé að langstærstum hluta fyrnd.

Með hliðsjón af framangreindu telur bæjarráð ekki forsendur fyrir því að Vesturbyggð taki þátt í greiðslu þeirrar kröfu sem sett hefur verið fram. Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindinu á þeim grundvelli.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


9. Brothættar byggðir - Tálknafjörður

Stjórn Byggðastofnunar hefur samþykkt beiðni Vesturbyggðar um þátttöku Tálknafjarðar í byggðaþróunarverkefninu Brothættar byggðir. Umsókn Vesturbyggðar byggði á bókunum Heimastjórnar Tálknafjarðar og bæjarstjórnar Vesturbyggðar þar sem lögð var áhersla á mikilvægi þess að styrkja byggðaþróun, efla atvinnulíf og styðja við samfélagslega uppbyggingu í Tálknafirði.

Bæjarráð fagnar þeirri ákvörðun stjórnar Byggðastofnunar að Tálknafjörður verði þátttakandi í verkefninu Brothættar byggðir. Verkefnið skapar mikilvægt tækifæri til að efla samfélagið, styrkja stoðir atvinnulífs og vinna markvisst að framtíðarsýn og sjálfbærri þróun byggðarlagsins í samvinnu við íbúa og aðra hagaðila.

Bæjarráð bindur vonir við að þátttakan muni styðja við jákvæða þróun samfélagsins í Tálknafirði og skapa grunn að áframhaldandi uppbyggingu og fjölbreyttari tækifærum til búsetu og atvinnu. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samningi við Byggðastofnun um þátttöku sveitarfélagsins í verkefninu.

Málsnúmer5

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


10. Stofnframlag sveitarfélags íbúðir á Patreksfirði

Lagður fram tölvupóstur frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun dags. 11. febrúar sl. varðandi stofnframlög sveitarfélagsins við byggingu íbúða á Patreksfirði.

Þórkatla Soffía Ólafsdóttir vék af fundi

Gert hafði verið ráð fyrir framlaginu í fjárhagsáætlun ársins 2025 samanber bókun bæjarráðs á fundi ráðsins 11. mars 2025. Verkefnið fór ekki af stað á árinu 2025 og hafði ekki verið gert ráð fyrir því í áætlun ársins 2026.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja veitingu stofnframlags frá sveitarfélaginu vegna byggingu íbúða á Patreksfirði og gerður verði viðauki við fjárhagsáæltun sem tekur mið af því.

Málsnúmer4

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


11. Fjárhagsáætlunn 2026 - viðaukar

Lagður fyrir viðauki 1 við fjárhagsáætlun Vesturbyggðar 2026.

Viðauki 1 er lagður fyrir vegna stofnframlaga sveitarfélagsins við byggingu íbúða á Patreksfirði. Stofnframlag sveitarfélagsins er 34,7 millj. Hluti framlags er í formi lóðar og gatargerðargjalda, rest verði mætt með lántöku 28,8 millj.

Viðaukinn hefur áhrif á rekstrarniðurstöðu A hluta sem hækkar um 2,6 milljónir úr 15,2 milljónum í 17,9 milljónum í A og B hluta hækkar rekstrarniðurstaðan um 2,6 milljónir og fer úr 80,2 milljónum í 82,8 milljónir. Viðaukinn hefur ekki áhrif á handbært fé.

Bæjarráð samþykkir viðaukann og vísar honum áfram til samþykktar bæjarstjórnar.

Þórkatla Soffía kom aftur inná fundinn.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

12. Fundargerðir 2026 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Lögð fram til kynningar fundargerð 993. fundar stjórnar Sambandsins frá 18. febrúar 2026

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


13. Áskorun frá Siglingasambandi Íslands

Lagt fram til kynningar áskorun frá Siglingasambandi Íslands um verndun og aðgengi að strandlengju Íslands

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


14. Fundarboð aðalfundar Lánasjóðs sveitarfélaga 2026

Lagt fram til kynningar fundarboð á aðalfund Lánasjóðs Sveitarfélaga 2026. Fundurinn verður haldinn síðdegis fimmtudaginn 20. mars 2026 á Grand Hotel Reykjavik

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


15. Fundargerðir 2026 Hafnasambands Íslands

Lögð fram til kynningar fundargerð 480. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands frá 16. febrúar 2026

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


16. Ársreikningur Fjórðungssambands Vestfirðinga 2025

Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjórðungssambands Vestfirðinga fyrir árið 2025

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


17. Til umsagnar 505. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis Sveitarstjórnarlög

Lagt fram til kynningar tölvupóstur frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis til umsagnar 505. mál, Sveitarstjórnarlög

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


18. Til umsagnar 499. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis

Lagt fram til kynningar tölvupóstur frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis til umsagnar 499. mál - varnir gegn sjóflóðum og skriðuföllum og Vegagerðin, framkvæmdastofnun samgöngumála (markmið nýting eigna, framkvæmdaumsjón)

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


19. Fundargerðir 2026 Breiðafjarðarnefndar

Lagt fram til kynningar fundargerð fyrir 240. fund Breiðafjarðarnefndar, sem haldin var 20. janúar 2026,

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00