Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 24. mars 2026 og hófst hann kl. 14:00
Nefndarmenn
- Maggý Hjördís Keransdóttir (MHK) varamaður
- Jenný Lára Magnadóttir (JLM) varaformaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Almenn erindi
1. Hafnarsamningur - Ískalk
Lögð fram drög að samningi milli Hafnasjóðs Vesturbyggðar og Íslenska Kalkþörungafélagsins vegna vörugjalda af afurðum félagsins.
Bæjarráð samþykkir drögin og felur hafnastjóra að ganga frá samningi.
2. Bjarkargata 9, Patreksfirði. Lóð og byggingaráform
Fyrir liggur erindi frá Oddi Þ. Rúnarssyni, f.h. Skemmunar Vatneyri ehf. dags 20. mars 2026, þar sem óskað er eftir úthlutun lóðar á Patreksfirði, nánar tiltekið á túninu bak við Rauðakrosshúsið, Bjarkargötu 9.
Upphaflega hafði umsækjanda verið úthlutað lóð að Bölum 2 með það að markmiði að reisa þar fjölbýlishús í samstarfi við HMS með stofnframlagi. Undirbúningur verkefnisins var hafinn, þar á meðal vinna við deiliskipulag. Nú hafa forsendur verkefnisins hins vegar breyst og stendur til að reisa minna hús með sex íbúðum í stað stærra fjölbýlishúss.
Að mati umsækjanda er lóðin að Bölum 2 betur til þess fallin að hýsa stærri byggingu. Í framhaldi hefur umsækjandi skoðað aðrar lóðir á Patreksfirði og telur að umrætt svæði við Rauðakrosshúsið henti betur fyrir fyrirhugaða uppbyggingu, bæði með tilliti til stærðar og umfangs byggingar.
Óskað er eftir því að bæjarráð taki afstöðu til erindisins og úthlutunar lóðar í samræmi við framangreint.
Þórkatla Soffía Ólafsdóttir vék af fundi
Samkvæmt reglum Vesturbyggðar um úthlutun lóða skal auglýsa nýjar lóðir áður en þeim er úthlutað í fyrsta sinn, Sveitarfélaginu er þó heimilt í í sérstökum tilvikum vegna ríkra hagsmuna sveitarfélagsins að úthluta lóðum án auglýsingar til lögaðila vegna stærri uppbyggingarverkefna, enda liggi fyrir samningur milli sveitarfélagsins og viðkomandi aðila.
Sveitarfélagið hefur sótt um stofnframlag vegna verkefnisins.
Í dag er lóðin skilgreind sem opið svæði í deiliskipulagi ofanflóðagarða ofan Urða og Mýra á Patreksfirði og byggðar neðan þeirra.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðar án auglýsingar skv. reglum Vesturbyggðar að undangenginni skipulagsbreytingu.
Þórkatla Soffía Ólafsdóttir kom aftur inn á fundinn
3. Umferðarreglur í Vesturbyggð, í þéttbýli
Lögð fram bókun heimastjórnar Arnarfjarðar varðandi umferðaröryggi á Hafnarbraut þar sem því er beint bæjarstjórnar að huga að gönguleiðum og gangstéttum meðfram götunni.
Geir Gestsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdarsviðs sat fundinn undir liðnum
Rætt um bætta lýsingu og aðgengi gangandi vegfarenda að skólanum.
Bæjarstjóra falið að fylgja verkefninu eftir.
4. Fegrun umhverfis
Rætt um fegrun umhverfis
Geir Gestsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdarsviðs sat fundinn undir liðnum.
Bæjarráð leggur áherslu á að unnið verði markvisst að fegrun og umhirðu umhverfis í öllum byggðarkjörnum sveitarfélagsins, í samræmi við áherslur allra heimastjórna. Gert var ráð fyrir auknu fjármagni til verkefnisins í fjárhagsáætlun 2026.
Fyrirhugað er að halda verkfund með starfsmönnum þjónustumiðstöðva eftir páska þar sem farið verður yfir forgang verkefna, verkaskiptingu og verklag. Bæjarráð hvetur jafnframt íbúa og fyrirtæki til að taka virkan þátt í fegrun og umhirðu í sínu nærumhverfi.
5. Almenningssamgöngur í Vesturbyggð
Rætt um almenningssamgöngur og pöntunarakstur í Vesturbyggð
Magnús Arnar Sveinbjörnsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs sat fundinn undir liðnum
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram og leggja aftur fyrir bæjarráð
6. Fjarskiptasamband í Vesturbyggð í ljósi lokunar á 2G og 3G
Rætt um fjarskiptasamband í Vesturbyggð í ljósi lokunar á 2g og 3g.
Bæjarráð telur ljóst að símasamband og gæði farsímaþjónustu hafi versnað á tilteknum svæðum innan sveitarfélagsins, enda hafa ítrekaðar ábendingar þess efnis borist frá íbúum. Bæjarráð leggur sérstaka áherslu á að meðal annars sé um ræða svæði þar sem ekið er með skólabörn í skólabíl.
Bæjarráð bendir á að skýrt hefur komið fram af hálfu Fjarskiptastofu að lokun eldri kerfa, svo sem 2G og 3G, eigi ekki að leiða til þess að þjónusta, útbreiðsla eða símasamband skerðist. Í ljósi þess telur bæjarráð brýnt að staða fjarskipta á þeim svæðum sem um ræðir verði könnuð sérstaklega. Bæjarráð óskar því eftir því að Fjarskiptastofa komi að málinu með formlegum hætti og láti framkvæma mælingar á þeim svæðum þar sem fram hafa komið ábendingar um skert símasamband og lakari fjarskiptaþjónustu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir
Til kynningar
7. Svæðisskipulag Vestfjarða auglýsingatillaga
Lögð fram tillaga að Svæðisskipulagi Vestfjarða ásamt forsendum og umhverfismati hennar. Kynningartíminn stendur yfir frá 16. febrúar 2026 til 7. apríl 2026.
8. Fundargerðir 2026 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögðar fram til kynningar fundargerðir 994. og 995. funda stjórnar Sambandsins íslenskra sveitarfélaga.
9. Ársreikningur 2025 NAVE
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00