Hoppa yfir valmynd

Bæjarráð #51

Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 7. apríl 2026 og hófst hann kl. 14:00

Nefndarmenn
  • Friðbjörg Matthíasdóttir (FM) aðalmaður
  • Jenný Lára Magnadóttir (JLM) varaformaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
  • Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Fundargerð ritaði
  • Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Almenn erindi

1. Uppbygging virkjunar í Ósá á Patreksfirði

Lögð fyrir drög að samningi um virkjun Ósár í Patreksfirði.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir bæjarstjórn.

Málsnúmer4

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Atvinnulóðir

Byggingafulltrúi kom inná fundinn og fór yfir lausar atvinnulóðir í sveitarfélaginu.

Lausar lóðir eru auglýstar á heimasíðu sveitarfélagsins.
Bæjarráð þakkar byggingarfulltrúa fyrir kynninguna og felur honum að kanna áform framkvæmda á þeim lóðum sem þegar hefur verið úthlutað.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Erindi frá BsVest - slit byggðasamlags

Lagt fyrir erindi frá Byggðasamlagi Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks (BsVest) um slit byggðasamlags.

Bæjaráð samþykkir slit á BsVest og vísar málinu áfram til staðfestingar bæjarstjórnar.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Betri staða í málefnum slökkviliðs

Davíð Rúnar Gunnarsson slökkviliðsstjóri kom inn á fundinn og fór yfir málefni slökkviliðs Vesturbyggðar

Lagt var fram minnisblað frá slökkviliðsstjóra þar sem fram kemur að að mestu hafi verið brugðist við athugasemdum frá HMS sem gerðar voru árið 2014 og í úttekt á slökkviliðinu árið 2019, sem síðar hafa verið ítrekaðar.

Margt hefur verið gert á síðustu árum til að efla slökkviliðið. Þar má nefna átak í menntun og þjálfun slökkviliðsmanna, kaup á tveimur nýjum slökkvibílum, verulega aukið eldvarnareftirlit, bakvaktir stjórnenda og ráðningu slökkviliðsstjóra í fullt starf.

Bæjarráð þakkar slökkviliðsstjóra yfirferðina.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Rekstur og fjárhagsstaða 2026

Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs fór yfir rekstur sveitarfélagsins fyrir janúar til febrúar.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Sólmyrkvi 12 ágúst 2026

Fyrirséð er að mikill fjöldi ferðamanna muni sækja Vestfirði heim í tengslum við sólmyrkvann 12. ágúst 2026. Sérstaklega er bent á að almyrkvinn stendur lengst á Látrabjargi, sem gerir svæðið að einum eftirsóttasta áfangastað landsins til að upplifa atburðinn.

Ljóst er að álag á innviði svæðisins verður verulegt og að aðstæður kalla á tafarlausar og markvissar aðgerðir með tilliti til öryggis vegfarenda.

Bæjarráð lýsir verulegum áhyggjum af ástandi vegarins að Látrabjargi, sem á köflum er þröngur, illa farinn og viðkvæmur fyrir auknu umferðarálagi. Vegurinn er ekki í stakk búinn til þess að taka við þeirri umferð sem fyrirsjáanleg er í tengslum við sólmyrkvann.

Bæjarráð skorar á Vegagerðina að leggja tafarlaust mat á öryggi og burðargetu vegarins með hliðsjón af fyrirséðu álagi, ráðast í nauðsynlegar úrbætur þar sem þess er kostur. Bæjarráð lýsir jafnframt áhyggjum af því að ekki liggi fyrir skýr áform eða tryggt fjármagn til að mæta þessum áskorunum, þrátt fyrir fyrirsjáanlegt álag og aukna áhættu.

Bæjarráð bendir jafnframt á að fjarskiptasamband á svæðinu, þar á meðal á leiðinni að Látrabjargi, er ófullnægjandi og hefur versnað verulega eftir að 2G og 3G sendar voru teknir úr notkun. Á köflum er ekkert samband, sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir öryggi vegfarenda.

Í ljósi þess að mikill fjöldi fólks mun sækja svæðið heim á sama tíma er óásættanlegt að ekki sé tryggt lágmarks farsímasamband þannig að hægt sé að ná sambandi við neyðaraðila í gegnum 112.

Bæjarráð skorar á Fjarskiptastofu að fara yfir stöðu fjarskipta á svæðinu með hliðsjón af öryggi vegfarenda, tryggja áreiðanlegt farsímasamband á helstu samgönguæðum og grípa til aðgerða, eftir atvikum með tímabundnum lausnum, fyrir atburðinn sjálfan.

Bæjarráð lýsir áhyggjum af því að ekki liggi fyrir skýr áform eða fjármagn til úrbóta í fjarskiptum þrátt fyrir augljósa og vaxandi öryggisþörf.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja bókun þessari eftir gagnvart Innviðaráðuneytinu, Vegagerðinni og Fjarskiptastofu, með það að markmiði að tryggja að gripið verði til nauðsynlegra aðgerða í tæka tíð.

Málsnúmer7

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


7. Auglýsing á endurnýjun rekstarleyfis Arnarlax ehf. í Arnarfirði

Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda inn umsögn fyrir hönd Vesturbyggðar

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


8. Atvinnuveganefnd Alþingis sendir tvö mál til umsagnar 529. mál - Lagareldi 530. mál - Lax- og silungsveiði o.fl. (bætt lagaumgjörð)

Lagður fram tölvupóstur frá Atvinnuveganefnd frá 24.03.2026 með 2 mál til umsagnar 529. mál -Lagareldi og 530. mál - Lax- og silungsveiði o.fl. (bætt lagaumgjörð)

Bæjarstjóra falið að senda inn umsögn um frumvarp um Lagareldi fyrir hönd Vesturbyggðar.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

9. Umsóknir um styrki í fiskeldissjóð 2026

Lögð fram til kynningar niðurstaða úthlutanna fiskeldissjóðs 2026.

Fiskeldissjóður samþykkti styrk til tveggja verkefna. Veittur var styrkur uppá 30 milljónir vegna skólalóðar á Bíldudal og 76,8 milljónir vegna malbiksframkvæmda.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


10. Ályktun tekin á fulltrúafundi Skógræktarfélags Íslands

Tölvupóstur lagður fram til kynningar frá Skógræktarfélagi Íslands ályktun sem samþykkt var af fundarmönnum á fulltrúafundi þann 28. mars 2026

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


11. Til umsagnar 568. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis

Lagður fram til kyningar tölvupóstur frá Atvinnuveganefnd Alþingis dags. 27. mars sl. með ósk um umsögn um mál nr. 568. mál - Stofnun atvinnuveganna

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


12. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 565.mál - verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur)

Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 565.mál - verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur)

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


13. Til umsagnar 582. mál - Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits)

Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis dags. 30 mars sl.með ósk um umsögn um mál nr. 582. mál - Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits)

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


14. Fundargerðir 2026 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Lögð fram til kynningar fundargerð 996. fundar

Málsnúmer4

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00