Hoppa yfir valmynd

Bæjarráð #52

Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 14. apríl 2026 og hófst hann kl. 14:00

Nefndarmenn
  • Maggý Hjördís Keransdóttir (MHK) varamaður
  • Jenný Lára Magnadóttir (JLM) varaformaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
  • Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Fundargerð ritaði
  • Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Almenn erindi

1. Framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu

Sigríður Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu mætti til fundarins og fór yfir helstu verkefni sem unnin eru í samstarfi sveitarfélaga á Vestfjörðum í gegnum Vestfjarðastofu.

Rætt var m.a, um stöðu framhaldsnáms á Vestfjörðum og möguleikana á samstarfi við Menntaskólann á Ísafirði, stöðu vega í tengslum við sólmyrkva og auglýsingu á verkefnastjóra brothættra byggða á Tálknafirði.

Bæjarráð þakkar yfirferðina.

Málsnúmer6

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Brothættar byggðir - Tálknafjörður

Skipun fulltrúa Vesturbyggðar í verkefnastjórn brothættra byggða fyrir Tálknafjörð.

Bæjarráð skipar Jennýju Láru Magnadóttur sem fulltrúa í verkefnastjórn brotthættra byggða fyrir Tálknafjörð. Auglýst verður á heimasíðu Vesturbyggðar eftir fulltrúum íbúa Tálknafjarðar í verkefnastjórn.

Málsnúmer7

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Dunhagi umsókn um menningarstyrk Vesturbyggðar

Lagður fram tölvupóstur frá Guðmundi Má Ástþórssyni fyrir hönd Dunhaga Tálknafirði með umsókn um menningarstyrk Vesturbyggðar til greiðslu á álögðum fasteignagjöldum

Bæjarráð samþykkir að veita kr 200 þús í styrk samkvæmt reglum um menningarstyrk Vesturbyggðar til greiðslu á álögðum fasteignagjöldum. Heimild er að veita styrk í allt að þrjú ár en athygli er vakin á því að sækja þarf um styrk árlega.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Framkvæmdir 2026

Rætt um framkvæmdir ársins 2026.

Hafnarstjóri, sviðstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og verkefnastjóri umhverfis- og framkvæmdarsviðs komu inná fundinn til að ræða stöðu verkefna.

Unnið er að undirbúningi á niðurrifi Straumness. Með niðurrifi Straumness verða til verðmætar atvinnulóðir á hafnarsvæði Patrekshafnar.

Framkvæmdir við Bíldudalsskóla ganga vel og mun það skýrast á næstu dögum hvenær hægt verður að hefja starfsemi í húsinu. Unnið verður að fyrsta áfanga nýrrar skólalóðar í sumar.

Starfsmenn framkvæmdasviðs ræddu helstu framkvæmdir sumarsins, svo sem malbikunarframkvæmdir, gangstéttir og framkvæmdir á íþróttasvæðum.

Bæjarráð þakkar fyrir yfirferðina.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

5. Fundargerðir 2026 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Lögð fram til kynningar fundargerð 995. fundar stjórnar Sambandsins frá 10. mars 2026

Málsnúmer5

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Fundargerðir 2026 Breiðafjarðarnefndar

Lagt fram til kynningar fundargerð fyrir 240. fund Breiðafjarðarnefndar, sem haldin var 24. febrúar 2026.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


7. Fundargerðir 2026 Hafnasambands Íslands

Lögð fram til kynningar fundargerð 481. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands frá 17. mars 2026.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30