Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 21. apríl 2026 og hófst hann kl. 14:00
Nefndarmenn
- Friðbjörg Matthíasdóttir (FM) aðalmaður
- Jenný Lára Magnadóttir (JLM) varaformaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Almenn erindi
1. Erindi vegna byggðakvóta
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að óska eftir undanþágu við ráðherra í samræmi við erindið.
2. Akstursþjónusta
Magnús Arnar Sveinbjörnsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir akstursþjónustu í sveitarfélaginu. Akstur á milli félagsmiðstöðva og pöntunarakstur á Barðaströnd.
Samþykkt er að ráðast í tilraunaverkefni á Barðaströnd þar sem boðið verður upp á pöntunarakstur einu sinni í viku.
Varðandi akstur milli félagsmiðstöðva þá er það hluti af verkefnum nýs tómstundafulltrúa sem tekur til starfa í sumar að taka saman þörfina og gera ráðstafanir varðandi ferðir ungmenna á vegum félagsmiðstöðva.
Bæjarráð þakkar fyrir yfirferðina.
Til kynningar
3. Erindi til fjallskilastjóra sveitarfélaga.
Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Matvælastofnun þar sem athygli er vakin á því að komin er ný reglugerð um flutning sauð- og geitfjár yfir varnarlínur nr 253/2026.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:20