Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 12. maí 2026 og hófst hann kl. 12:00
Nefndarmenn
- Friðbjörg Matthíasdóttir (FM) aðalmaður
- Jenný Lára Magnadóttir (JLM) varaformaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Almenn erindi
1. Loftlagsstefna Vesturbyggðar
Lögð fram til samþykktar loftlagsstefna Vesturbyggðar
Loftlagsstefnan var unnin af umhverfis- og loftlagsráði og tekur mið af þeim lögum sem um þær gilda, en sveitarfélögum er gert skyld að setja sér loftlagsstefnu.
Bæjaráð leggur til að aðgerðaáætlun verði unnin á komandi kjörtímabili, þegar betur liggja fyrir forsendur um fjármögnun, umfang og forgangsröðun aðgerða. Jafnframt er lögð áhersla á að innleiðing aðgerða taki mið af fjárhagslegu svigrúmi sveitarfélagsins hverju sinni og að forgangsröðun verkefna byggi á lögbundnum skyldum og þeim aðgerðum sem skila mestum ávinningi fyrir samfélagið.
Bæjarráð samþykkir loftlagsstefnuna og vísar henni áfram til staðfestingar bæjarstjórnar.
2. Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050
Beiðni frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga um samþykki tillögu að Svæðisskipulagi Vestfjarða 2025-2050
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að Svæðisskipulagi Vestfjarða 2025-2050 og vísar henni áfram til staðfestingar bæjarstjórnar.
3. Sláttur og hirðing 2026
Lagt fyrir minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs um niðurstöður verðfyrirspurnar vegna sláttar og hirðingar í Vesturbyggð.
Bæjarráð hafnar öllum tilboðum sem bárust vegna verkefnisins. Samræma þarf tíðni slátturs á milli byggðakjarna.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna málið áfram og taka nauðsynlegar ákvarðanir um framhald þess.
4. Starf eldri borgara á Bíldudal
Lögð fram bókun fjölskylduráðs varðandi húsnæðismál eldri borgara á Bíldudal. Þar er lagt er til að eldri borgarar fái húsnæðið þar sem leikskólinn Tjarnarbrekka var til húsa til afnota þegar það losnar.
Bæjarráð samþykkir að veita eldri borgurum á Bíldudal afnot af húsnæðinu þegar það losnar og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.
5. Minnisblað vegna vsk á skemmtiferðaskip
Lagt fram til kynningar minnisblað Hafnasambands Íslands vegna virðisaukaskattskyldu og tollfrelsis skemmtiferðaskipa.
Bæjarráð Vesturbyggðar lýsir yfir áhyggjum af þeim áhrifum sem afnám tollfrelsis og aukin skattlagning skemmtiferðaskipa í innanlandssiglingum getur haft á minni hafnir og þau svæði landsins sem byggja í auknum mæli á vaxandi en viðkvæmri ferðaþjónustu.
Fyrir minni hafnir geta breytingar sem þessar haft veruleg áhrif á ákvörðun skipafélaga um viðkomur, enda eru rekstrarforsendur og samkeppnisstaða slíkra hafna allt önnur en stærri áfangastaða. Þá hefur hver viðkoma skemmtiferðaskipa oft hlutfallslega mun meiri áhrif á atvinnulíf, verslun, þjónustu og tekjur sveitarfélaga á smærri stöðum.
Bæjarráð telur mikilvægt að stjórnvöld horfi sérstaklega til byggðasjónarmiða og þeirra áhrifa sem breytingar á skattlagningu og gjaldtöku geta haft á dreifingu ferðamanna um landið. Mikilvægt er að tryggja að regluverk og gjaldtaka stuðli ekki að frekari samþjöppun ferðaþjónustu á fáa staði heldur styðji áfram við uppbyggingu og atvinnusköpun í minni samfélögum um land allt.
Til kynningar
6. Fundargerðir 2026 Svæðisskipulagsnefndar Vestfjarða
7. Fundargerðir 2026 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
8. Fundargerðir 2026 stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
Lagðar fram til kynningar fundargerðir 94., 95., 96. og 97. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 23. janúar, 20. febrúar, 3. mars og 8. apríl 2026.
9. Aðalfundur Háskólaseturs Vestfjarða 22.05.2026
Lagt fram til kynningar fundarboð á aðalfund fulltrúaráðs Háskólaseturs Vestfjarða sem haldinn verður 22. mai nk.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:10