Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 27. maí 2026 og hófst hann kl. 14:00
Nefndarmenn
- Maggý Hjördís Keransdóttir (MHK) varamaður
- Jenný Lára Magnadóttir (JLM) varaformaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Almenn erindi
1. Styrkumsóknir til menningar- og ferðamála 2026
Lagðar voru fyrir styrkumsóknir sem bárust í aðra úthlutun ársins 2026. Alls bárust sjö umsóknir sem uppfylltu skilyrði úthlutunarreglna.
Menningar- og ferðamálafulltrúi sat fundinn undir liðnum og gerði grein fyrir umsóknum í samræmi við reglur menningar- og ferðamálasjóðs Vesturbyggðar.
1. Kristín Mjöll Jakobsdóttir sækir um styrk til uppsetningar á verkinu Pétur og úlfurinn. Sótt er um 500 þúsund króna styrk.
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 400 þúsund.
2. Arnheiður Jónsdóttir sækir um styrk fyrir opinni vinnustofu og námskeiði. Sótt er um 340 þúsund króna styrk.
Bæjarráð samþykkir því styrk að fjárhæð 100 þúsund krónur vegna námskeiðshalds.
3. Sögufélag Barðastrandarsýslu sækir um styrk fyrir útgáfu árbókar Barðastrandarsýslu. Sótt er um 300 þúsund króna styrk.
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 300 þúsund krónur.
4. Félag um listasafn Samúels sækir um styrk fyrir Selárdalshátíð. Sótt er um 250 þúsund króna styrk.
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 250 þúsund krónur.
5. Ágúst Brynjarsson sækir um styrk fyrir verkefninu ÁGÚST Á FERÐINNI. Sótt er um 375 þúsund króna styrk.
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 200 þúsund krónur
6. Gísli Ægir Ágústsson sækir um styrk fyrir verkefninu Gísli Ægir Ágústsson er maður gleði, söngs og góðra veitinga. Sótt er um 500 þúsund króna styrk.
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 400 þúsund.
7. Félag um safn Gísla á Uppsölum sækir um styrk fyrir opnun Gíslasafns á Uppsölum. Sótt er um 250 þúsund króna styrk.
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 150 þúsund krónur.
Til kynningar
3. Áminning kosning í nefndir og ráð á 1. fundi nýrrar sveitarstjórnar.
Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga með áminningu um kosningu í nefndir og ráð á 1. fundi nýrrar sveitarstjórnar.
4. Boðun 71. Fjórðungsþings Vestfirðinga, á kosningaári
5. Fundargerðir 2026 Hafnasambands Íslands
Lögð fram til kynningar fundargerð 482. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands frá 13. apríl 2026.
6. Fundargerðir 2026 Breiðafjarðarnefndar
Lögð fram til kynningar fundargerð 242. fundar Breiðafjarðarnefndar, sem haldinn var 26. mars 2026.
7. Ársfundur Brákar íbúðafélags fundargerð ársfundar
8. Fundargerðir 2026 stjórnar Náttúrustofa Vestfjarða
Lögð fram til kynningar fundargerð 159. fundar stjórnar Náttúrustofu Vestfjarða frá 11. maí 2026
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00