Hoppa yfir valmynd

Bæjarráð #57

Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 16. júní 2026 og hófst hann kl. 13:00

Nefndarmenn
  • Hlynur Ársælsson (HÁ) aðalmaður
  • Rebekka Hilmarsdóttir (RH) aðalmaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
  • Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Fundargerð ritaði
  • Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Almenn erindi

1. Stjórnskipan - skipan í ráð og nefndir

Skipað í ráð og nefndir skv. samþykktum um stjórn Vesturbyggðar og bókun bæjarstjórnar Vesturbyggðar frá 26. fundi bæjarstjórnar þar sem bæjarráði var falin fullnaðarafgreiðsla skv. 32. gr. samþykkta um stjórn nr. 410/2024.

Fasteignir Vesturbyggðar
Skv. samþykkt um stjórn Vesturbyggðar myndar bæjarráð stjórn Fasteigna Vesturbyggðar og varafulltrúar bæjarráðs eru varamenn félagsins.

Fasteignafélagið 101 Tálknafjörður
Skv. samþykkt um stjórn Vesturbyggðar myndar bæjarráð stjórn Fasteignafélagsins 101 Tálknafjörður og varafulltrúar bæjarráðs eru varamenn félagsins.

Almannavarnarnefnd
Skv. samþykkt um stjórn Vesturbyggðar er almannavarnanefnd skipuð sex aðalmönnum og jafnmörgum til vara skv. 9. og 11. gr. laga um almannavarnir nr. 82/2008. Nefndina skipa bæjarstjóri, slökkviliðsstjóri, fulltrúi embættis lögreglustjóra Vestfjarða, Rauða kross deild Vestur-Barðastrandarsýslu, Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og fulltrúi svæðisstjórnar björgunarsveita á svæði sex ásamt varamönnum þeirra. Nefndin kýs sér sjálf formann og varaformann.

Vestur Botn
Aðalmenn:
Þórkatla Soffía Ólafsdóttir - formaður
Hlynur Ársælsson
Rebekka Hilmarsdóttir

Til vara:
Jenný Magnadóttir
Friðbjörg Matthíasdóttir
Gunnþórunn Bender

Stjórn Náttúrustofu Vestfjarða
Aðalmaður:
Lilja Magnúsdóttir

Varamaður:
Þórkatla Soffía Ólafsdóttir

Stjórn Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða
Aðalmaður:
Lilja Magnúsdóttir

Varamaður:
Gerður Björk Sveinsdóttir

Bæjarráð samþykkir ofangreindar skipanir, en ráðinu var falin fullnaðarafgreiðsla í samræmi við 32. gr. samþykkta um stjórn nr. 410/2024 á 26. fundi bæjarstjórnar þann 9. júní sl.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Fjárhagsáætlunn 2026 - viðaukar

Lagður fyrir viðauki 2 við fjárhagsáætlun Vesturbyggðar 2026

Viðauki 2 er lagður fyrir vegna stofnlagnar vatnsveitu í Strandgötu á Patreksfirði kr. 73.4 millj. Ljósastaura við Urðargötu 3,6 millj. Malbik á bílastæði við Sigtún 49-55 hlutur Fasteigna Vesturbyggðar kr. 1,9 millj. Millilofts á bæjarskrifstofu kr 1,5 millj. og hlutafjáraukningar í Hvetjandi hf kr. 682 þús.
Viðaukanum er mætt með fjármagni sem ætlað var í malbikum og gangstétt á Strandgötu Patreksfirði kr. 62.8 millj. tilfærslu á fjármagni sem ætlað var í lokahús og stækkun afkastagetur í vatnsveitu Patreksfirði kr. 19,5 millj.

Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu A hluta né A og B hluta. Handbært fé í A hluta hækkar um 57 millj. og verður 89,7 millj. Handbært fé í A og B hluta hækkar um 1,3 millj og verður 92,8.

Bæjarráð samþykkir viðaukann á grundvelli fullnaðarafgreiðslu í samræmi við 32. gr. samþykkta um stjórn nr. 410/2024 sem ráðinu var veitt á 26. fundi bæjarstjórnar þann 9. júní sl.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Fjárhagsáætlun 2027 - 2030

Lagðar fram reglur um fjárhagsáætlunarferlið 2026 vegna áætlunar 2027 - 2030 ásamt drögum að dagsetningum við vinnu fjárhagáætlunar.

Bæjarráð staðfestir reglurnar.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Sviðsstjóri Fjölskyldusviðs - ráðning

Lagt fyrir minnisblað Hagvangs þar sem lagt er til við bæjarráð að Anna Vilborg Rúnarsdóttir verði ráðin í stöðu sviðsstjóra fjölskyldusviðs Vesturbyggðar.

Bæjarráð samþykkir ráðningu Önnu Vilborgar Rúnarsdóttir í stöðu sviðstjóra fjölskyldusviðs skv. fullnaðarafgreiðslu sem ráðinu var falin á 26. fundi bæjarstjórnar í samræmi við 32. gr. samþykkt um stjórn nr. 410/2024.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Til samráðs mál nr. 932026 - Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum

Lagður fram tölvupóstur frá Innviðaráðuuneytinu með boð um þátttöku í samráði: Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum (Gjaldaákvæði hafnalaga)

Bæjarráð felur bæjarstjóra að skila umsögn um áformin í samræmi við umræður á fundinum.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


7. Endurskoðun á byggðakvótakerfinu

Lagt fyrir erindi Innviðaráðuneytisins þar sem fram kemur að lnnviðaráðuneytið hafi hafið heildarendurskoðun ó byggðakvótakerfinu þ.m.t. með það að markmiði að móta skýrari, markvissari og skilvirkari umgjörð um ráðstöfun þeirra aflaheimilda sem ætlaðar eru til stuðnings sjávarbyggðum. í því skyni er óskað eftir umsögn sveitarfélaga sem hafa notið almenns og/eða sértæks byggðakvóta um áhrif þessara veiðiheimilda á sveitarfélagið og einstök byggðarlög innan þess.

Frestur var veittur til 26. maí til að senda inn umsögnina en frestur fékkst til 16. júní.

Unnin hafa verið drög að umsögn Vesturbyggðar sem eru meðal fundargagna.

Bæjarráð felur bæjarstjóra ganga frá og senda umsögnina til innviðaráðuneytis.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


8. Flugsamgöngur til Bíldudals

Lagt fyrir svar Vegagerðarinnar vegna fyrirspurnar Vesturbyggðar um aukningu flugferða til Bíldudals.

Í svari Vegagerðarinnar kemur fram að stofnunin telji sig ekki geta orðið við beiðni sveitarfélagsins um fjölgun flugferða um Bíldudalsflugvöll yfir sumartímann vegna fjárhagsstöðu málaflokks almenningssamgangna, þrátt fyrir að greiningar Vegagerðarinnar staðfesti góða nýtingu flugsins um Bíldudalsflugvöll og að þörf fyrir fleiri ferðir geti aukist á komandi árum.

Síðustu ár hafa íbúar á ákveðnum dögum getað farið samdægurs til Reykjavíkur vegna læknisþjónustu, opinberrar þjónustu og annarra erinda án þess að þurfa að gista fjarri heimili með tilheyrandi kostnaði. Sá möguleiki er nú ekki til staðar.

Bæjarráð bendir jafnframt á að gögn Vegagerðarinnar skv. minnisblaðinu sýna að nýting flugsins er góð og að við áframhaldandi fólksfjölgun á svæðinu muni þörfin fyrir flugþjónustuna aukast. Þá telur bæjarráð að í mati á þjónustustigi flugsamgangna til dreifðra byggða verði ekki einungis horft til fjölda farþega og fjárveitinga heldur einnig til jafnræðis íbúa landsins til aðgengis að grunnþjónustu og heilbrigðisþjónustu, sem sækja þarf á höfuðborgarsvæðinu.

Bæjarráð telur því að rök Vegagerðarinnar svari ekki með fullnægjandi hætti þeim sjónarmiðum sem Vesturbyggð lagði fram. Bæjarráð ítrekar fyrri afstöðu sína og skorar á Vegagerðina og innviðaráðuneytið að leita leiða til að endurheimta þær ferðir sem felldar voru niður við gildistöku núverandi samnings þannig að íbúar sunnanverðra Vestfjarða geti á ný sótt nauðsynlega þjónustu á höfuðborgarsvæðinu yfir sumartímann án þess að þurfa að gista þar yfir nótt.

Bæjarráð bendir jafnframt á að þessi skerðing á flugsamgöngum kemur ofan á aðrar skerðingar á samgöngum við sunnanverða Vestfirði. Á undanförnum misserum hefur ferjan Baldur ítrekað verið tekin úr áætlunarsiglingum yfir Breiðafjörð til að sinna öðrum verkefnum, með verulegum áhrifum á íbúa, atvinnulíf og ferðaþjónustu á svæðinu. Þegar horft er til þessara þátta í heild blasir við að aðgengi íbúa sunnanverðra Vestfjarða að grunnþjónustu og samgöngukerfi landsins hefur farið versnandi. Bæjarráð telur mikilvægt að stjórnvöld og Vegagerðin horfi á þessar samgöngur sem eina heild og tryggi að íbúar svæðisins búi við sambærilegt aðgengi að þjónustu eins og aðrir landsmenn.

Málsnúmer6

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

6. Hlutafjáraukning Hvetjandi

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 31.05.2026 þar sem er tilkynning er til hluthafa um fyrirhugaða hlutafjárhækkun í Hvetjanda hf

Neil Shiran Þórisson stjórnarformaður Hvetjanda kom inná fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.

Bæjarráð þakkar Neils Shiran yfirferðina

Bæjarráð samþykkir að taka þátt í hlutafjáraukningu til samræmis við erindið og vísar hlutarfjáraukningunni til gerðar viðauka.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


9. Orkubú Vestfjarða Hleðslustöðvar

Lagt fram til kynningar samkomlag milli Vesturbyggðar og Orkubús Vestfjarða um staðsetningar hleðslustöðva í sveitarfélaginu.
Vesturbyggð leggur fram land undir bílastæði sem nú þegar eru afmörkuð við stofnanir sveitarfélagsinns, á móti skuldbindur Orkubú Vestfjarða sig til uppsetningar á hleðslustöðvum við þær stofnanir sem fram koma í samkomulaginu, um er að ræða mis öflugar stöðvar.
Engar fjárhagsskuldbindingar eru í þessu samkomulagi fyrir Vesturbyggð.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


10. Ársfundur Starfsendurhæfingar Vestfjarða 27.05.2026 Ársskýrsla

Lagt fram til kynningar ársskýrsla og ársreikningur 2025 frá Starfsendurhæfingu Vestfjarða

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


11. Aflúsun 2026

Lagt fram til kynningar 2 tölvupóstar frá 20.05 og 27.05. 2026 frá Arnarlaxi vegna aflúsunar á Eyri Patreksfirði og Laugardal í Tálknafirði

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


12. Fundargerðir 2026 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Lögð fram til kynningar fundargerð 999. fundar stjórnar Sambandsins frá 28. mai 2026

Málsnúmer8

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:22