Hoppa yfir valmynd

Bæjarráð #59

Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 14. júlí 2026 og hófst hann kl. 09:00

Nefndarmenn
  • Hlynur Ársælsson (HÁ) aðalmaður
  • Rebekka Hilmarsdóttir (RH) aðalmaður
  • Jenný Lára Magnadóttir (JLM) varamaður
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri

Fundargerð ritaði
  • Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri

Almenn erindi

1. Lagareldi 529. mál

Rebekka Hilmarsdóttir víkur af fundi við afgreiðslu málsins.

Bæjarráð Vesturbyggðar lýsir vonbrigðum með að frumvarp atvinnuvegaráðherra um lagareldi hafi ekki náð afgreiðslu á Alþingi.

Lagareldi hefur á undanförnum árum orðið ein mikilvægasta atvinnugrein Vestfjarða og haft veruleg jákvæð áhrif á atvinnulíf, verðmætasköpun og byggðaþróun. Fyrir sveitarfélög þar sem lagareldi er stunduð skiptir miklu máli að starfsemin búi við skýrt, stöðugt og fyrirsjáanlegt lagaumhverfi sem styður við ábyrga uppbyggingu og áframhaldandi fjárfestingu. Markmið frumvarpsins eru meðal annars að skapa skilyrði til sjálfbærrar uppbyggingar greinarinnar, efla atvinnulíf og byggð og tryggja skýrari umgjörð um starfsemina.

Bæjarráð telur að þrátt fyrir að einstök ákvæði frumvarpsins hafi verið umdeild hafi mikilvægt verið að ljúka málinu á grundvelli vandaðrar þingmeðferðar. Skýr og fyrirsjáanleg löggjöf er forsenda þess að atvinnugreinin geti þróast áfram með ábyrgum hætti, í sátt við samfélagið og með hagsmuni atvinnulífs, umhverfis og nærsamfélaga að leiðarljósi.

Bæjarráð skorar á atvinnuvegaráðherra og Alþingi að vinna málið áfram án tafar og tryggja að nýtt frumvarp verði lagt fram við fyrsta tækifæri, þannig að nauðsynleg lagarammi um lagareldi verði samþykktur sem fyrst.

Rebekka Hilmarsdóttir kemur aftur inn á fundinn.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Velferðarþjónusta Vestfjarða

Skipan fulltrúa Vesturbyggðar í fulltrúaráð og notendaráð Velferðaþjónustu Vestfjarðar.

Bæjarráð samþykkir að Þórkatla Soffía Ólafsdóttir skipi aðalfulltrúa í fulltrúaráði og Jóhann Örn Hreiðarsson varafulltrúa.

Bæjarráð samþykkir jafnframt að fulltrúi Vesturbyggðar í notendaráði verði Jenný Lára Magnadóttir og Friðbjörg Matthíasdóttir til vara.

Málsnúmer7

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Orkumál á Vestfjörðum,

Bæjarráð Vesturbyggðar fagnar þeim mikilvægu áföngum sem náðst hafa á undanförnum misserum í orkumálum á Vestfjörðum. Ljóst er að stjórnvöld og Alþingi hafa stigið mikilvæg skref til að styrkja innviði svæðisins, meðal annars með auknu fjármagni til jarðhitarannsókna og varmadæluverkefna, áframhaldandi undirbúningi nýrra orkukosta, breytingum á regluverki og aðgerðum sem stuðla að auknu jafnræði í raforkukostnaði. Þar ber sérstaklega að nefna breytingar á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku sem tóku gildi 1. júlí sl.

Bæjarráð fagnar jafnframt því að í drögum að þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku, sem birt hafa verið í samráðsgátt stjórnvalda, sé lögð sérstök áhersla á aukna flutningsgetu milli landshluta og bætt afhendingaröryggi raforku á Vestfjörðum með markvissri uppbyggingu flutningskerfisins og tengingu nýrra virkjana.

Þrátt fyrir þessi jákvæðu skref leggur bæjarráð ríka áherslu á að áfram verði unnið af krafti að uppbyggingu raforkukerfis Vestfjarða. Nauðsynlegt er að hraða undirbúningi og framkvæmd þeirra virkjanakosta sem þegar eru í rammaáætlun, samhliða nauðsynlegri uppbyggingu flutningskerfisins. Öruggt og öflugt raforkukerfi er forsenda atvinnuuppbyggingar, orkuskipta, byggðaþróunar og lífsgæða íbúa. Markmiðið verður að vera að Vestfirðir verði sjálfbærari um orku og búi við sambærilegt raforkuöryggi og aðrir landshlutar.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Smávirkjanir á Vestfjörðum

Uppbygging smávirkjunar í Hólsá í Tálknafirði.

Lögð fram forathugun sem unnin var af Verkís árið 2021 fyrir Tálknafjarðarhrepp.

Bæjarstjóra falið að auglýsa eftir áhugasömum aðilum til að kanna virkjanakosti í Hólsá.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Erindi vegna undanþágu fyrir löndun mótframlags byggðakvóta á Patreskfirði

Lagt fyrir erindi vegna undanþágu fyrir löndun mótframlags byggðakvóta á Patreskfirði

Bæjarráð þakkar fyrir framkomið erindi.

Þar sem fiskveiðiárinu er að ljúka og breytingar á sérreglum taka almennt nokkurn tíma í meðferð telur bæjarráð ekki tilefni til að taka efnislega afstöðu til erindisins á þessu stigi.

Jafnframt bendir bæjarráð á að sveitarfélagið hefur nýverið komið á framfæri við innviðaráðuneytið ábendingum vegna fyrirhugaðar endurskoðunar byggðakvótakerfisins og telur eðlilegt að þau álitaefni sem erindið varðar verði tekin til skoðunar í þeirri vinnu.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Kópanes, sskr. 1985. Tjón í Tálknafjarðarhöfn 25.feb 2026

Rætt um frágang og öryggi vegna staðsetningar bátsins Kópaness á geymslusvæði báta við Tálknafjarðarhöfn. Tilmæli heimastjórnar Tálknafjarðar til bæjarráðs um að tryggja stöðugleika bátsins og mengunarvarnir.

Búið er að gera ráðstafanir til að tæma olíu úr bátnum og útbúa stífur á bátinn.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og hafnarstjóra að leita leiða til að fjarlægja bátinn af svæðinu.

Málsnúmer4

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


7. Geymsluhúsnæði fyrir Minjasafn Egils Ólafssonar

Lögð fyrir fyrirspurn frá Árna Helgasyni þar sem óskað er eftir viðræðum um skipti á gamla kaupfélagshúsinu í Örylggshöfn sem í dag hýsir geymslu á safnmunum fyrir minjasafnið á Hnjóti og nýju geymsluhúsnæði sem stendur til að byggja.

Bæjarráð þakkar bréfritara erindið og vísar því áfram til stjórnar safnsins til afgreiðslu.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


8. Brjánslækur - aðalskipulagsbreyting

Lagt er fram afgreiðslubréf Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS), dagsett 21. maí 2026, vegna innsendrar tillögu um óverulega breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar vegna Brjánslækjar (stækkun á verslunar- og þjónustusvæði VÞ8). Í bréfi sínu fellst HMS ekki á að breytingin teljist óveruleg skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga, þar sem fyrirhuguð fjölgun gistirúma og umfang starfsemi telst vera veruleg viðbót við núverandi ferðaþjónustu á svæðinu. Stofnunin vísar til þess að fara skuli með málið sem verulega aðalskipulagsbreytingu skv. 30.-32. gr. skipulagslaga, en telur unnt að sleppa kynningu lýsingar þar sem málið hafi þegar verið kynnt. Lögð eru fram uppfærð skipulagsgögn þar sem málsmeðferðinni hefur verið breytt í verulega aðalskipulagsbreytingu í samræmi við ákvörðun HMS. Í gögnunum er jafnframt brugðist við athugasemdum stofnunarinnar, þ.á m. varðandi umhverfisáhrif, ásýnd, innviði, áskilnað jarðalaga vegna landbúnaðarlands, ásamt fyrirkomulagi fráveitu og vatnsöflunar.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á 1. fundi sínum þann 30. júní að breyta málsmeðferðinni í samræmi við afgreiðslu HMS og samþykkir hina uppfærðu tillögu til auglýsingar skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð samþykkir uppfærða tillögu til auglýsingar skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer7

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


9. Stekkagil mat á umhverfisáhrifum

Bæjarráð samþykkir að óska eftir því við Ofanflóðanefnd að hafið verði mat á umhverfisáhrifum vegna fyrirhugaðra ofanflóðavarna við Stekkagil á Patreksfirði, í samræmi við verklag Ofanflóðanefndar um stuðning við framkvæmdir.

Bæjarstjóra er falið að senda formlega beiðni til Ofanflóðanefndar og vinna málið áfram af hálfu sveitarfélagsins.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


10. Vegna samkomulags við ríkið varðandi börn með fjölþættan vanda

Lagður fram tölvupostur frá Sambandi íslenskra sveitarfélag vegna samkomulags við ríkið varðandi börn með fjölþættan vanda.

Bæjarráð Vesturbyggðar lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á hópnum sem skilur þannig eftir ábyrgð og kostnað hjá sveitarfélögum sem á grundvelli samkomulagsins á heima hjá ríkinu.

Bæjarráð telur breytinguna óásættanlega, án fullnægjandi faglegra raka og fela í sér alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögum. Skorað er á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og taki ábyrgð á þeirri skuldbindingu sem samið var um.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

11. Fundargerð aðalfundar 2026

Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar Félags skógarbænda á Vestfjrðum þann 27.06.2026

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


12. Ársreikningur 2025 Samtök Sjávarútvegssveitarfélaga

Lagður fram til kynningar ársreikningur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga fyrir 2025.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


13. Fjárhagsáætlun 2027 - 2030

Forsendur fjárhagsáætlunar 2026 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga lagðar fram til kynningar.

Málsnúmer6

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


14. Erindi til nýkjörinna sveitarstjórna landsins

Lagt fram tölvupóstur frá LEB varaðndi skipun í Öldungaráð sveitarfélaga

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


15. 71. Fjórðungsþings Vestfirðinga, á kosningaári

Lögð fram til kynningar þinggerð 71. Fjórðungsþings Vestfirðinga á kosningaári sem haldið var í fjarfundi 24. júní 2026

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


16. Samtök sjávarútvegssveitarfélaga Kynningarbréf

Lagt fyrir kynningarbréf á Samtökum Sjávarútvegssveitarfélaga.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


17. Ábendingar til sveitarfélaga vegna búfjárbeitar og ágangs búfjár

Lagður fram til kynningar tölvupóstur og bréf atvinnuvegaráðuneytisins til þeirra sveitarfélaga þar sem málefni búfjárbeitar og ágangur búfjár kunna að koma upp.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:13