Hoppa yfir valmynd

Bæjarráð #60

Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 11. ágúst 2026 og hófst hann kl. 09:00

Nefndarmenn
  • Hlynur Ársælsson (HÁ) aðalmaður
  • Rebekka Hilmarsdóttir (RH) aðalmaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri

Fundargerð ritaði
  • Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri

Almenn erindi

1. Framkvæmd við lagningu ræsis yfir Sellátraá í Tálknafirði

Lögð fram beiðni um að lagning ræsis yfir Sellátraá í Tálknafirði verði sett á fjárhagsáætlun ársins 2027

Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að óska eftir svörum frá Vegagerðinni um hver ber ábyrgð viðhaldi vegarins og hvort eðlilegt geti talist að vegurinn sé á ábyrgð sveitarfélagsins, sérstaklega í ljósi þess að tekið hefur verið í notkun raforkuver á jörðinni þar sem framleidd er endurnýjanleg raforka sem afhent er inn á dreifikerfi Orkubús Vestfjarða.

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins þar til svör Vegagerðarinnar liggja fyrir.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Kjörstaðir vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026

Lagður fram tölvupóstur frá yfirkjörstjórn Vesturbyggar vegna færslu á kjörstað á Patreksfirði fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst nk. en óskar eftir að kjörstaður verði í safnaðarheimilinu, Aðalstræti 52.

Bæjarráð samþykkir að kjörstaðir í Vesturbyggð vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026 verði í samræmi við útprentaðar kjörskrár:

Safnaðarheimilið, Aðalstræti 52, Patreksfirði, Félagsheimilið Baldurshagi á Bíldudal, Félagsheimilið Birkimel á Barðaströnd og Tálknafjarðarskóli.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Patrekshöfn - Skemmtiferðaskip

Rætt um markaðssetningu á höfnum, virðisaukaskatt af leiðangursskipum og tollahafnir. Valgerður María menningar og ferðamálafulltrúi og Elfar Steinn hafnarstjóri sátu fundinn undir liðnum.

Málsnúmer6

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Fjallskil

Rætt um fjallskil 2026

Lagður fram fjallskilaseðill 2025 ásamt upplýsingum um veturfóðraðar kindur í Vesturbyggð haustið 2025. Rætt um að funda með bændum áður en uppfærður seðill verður lagður fyrir til samþykktar.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Stjórnskipan - skipan í ráð og nefndir

Skipað í ráð og nefndir skv. samþykktum um stjórn Vesturbyggðar og bókun bæjarstjórnar Vesturbyggðar frá 26. fundi bæjarstjórnar þar sem bæjarráði var falin fullnaðarafgreiðsla skv. 32. gr. samþykkta um stjórn nr. 410/2024.

Öldungaráð

Aðalmenn:

Tilnefnd af Vesturbyggð
Nanna Sjöfn Pétursdóttir - formaður
Guðlaug Sigurrós Björnsdóttir
Gunnþórunn Bender

Tilnefnd af félagi eldri borgara
Jóna Guðlaugsdóttir
Ásdís Ásgeirsdóttir
Jóna Runólfsdóttir

Tilnefnd af Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Margrét Brynjólfsdóttir

Til vara:
Tilnefnd af Vesturbyggð
Helga Gísladóttir
Jóhann Örn Hreiðarsson
Jenný Lára Magnadóttir

Tilnefnd af félagi eldri borgara
Inga Jóhannesdóttir
Þórhildur Jóhannesdóttir
Þorgerður Erla Jónsdóttir

Tilnefnd af Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Margrét Guðmundsdóttir

Málsnúmer4

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Samtök orkusveitarfélaga - Kynning til sveitarfélaga sem eru ekki aðilar að samtökunum

Lagt fram til kynningar tvö skjöl frá stjórn Samtaka orkusveitarfélaga sem stjórn samtakanna óskar eftir að verði kynnt kjörnum fulltrúum í sveitarfélaginu.

Bæjaráð samþykkir að sækja um aðild Vesturbyggðar að Samtökunum orkusveitarfélaga.

Bæjarstjóra falið að senda erindi þess efnis á samtökin.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

7. Fundargerðir 2026 Breiðafjarðarnefndar

Lagt fram til kynningar fundargerð fyrir 243. fund Breiðafjarðarnefndar, sem haldin var 7. mai 2026.

Málsnúmer7

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


8. Kynningarbréf frá stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum

Lagt fram til kynningar kynningarbréf frá stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


9. Elín H. Jónsdóttir ráðin framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands.

Lagður fram tölvupóstur með fréttatilkynningu frá stjórn Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands um ráðningu í starf framkvæmdastjóra Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands (EBÍ).

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:23