Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 1. september 2026 og hófst hann kl. 09:00
Nefndarmenn
- Hlynur Ársælsson (HÁ) aðalmaður
- Rebekka Hilmarsdóttir (RH) aðalmaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
- Halla Guðrún Jónsdóttir (HGJ) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) embættismaður
Fundargerð ritaði
- Halla Guðrún Jónsdóttir Sviðsstjóri fjármála og stjórnsýslu
Almenn erindi
1. Framkvæmdir á Patreksfirði - Orkubú Vestfjarða
Fulltrúar Orkubús Vestfjarða koma inná fund bæjarráðs þar sem farið verður yfir gang framkvæmda á Patreksfirði í tengslum við framkvæmdir við fjarvarmaveitu.
Elena Dís Víðisdóttir, sérfræðingur á orkusviði hjá Orkubúi Vestfjarða, kom á fundinn og kynnti fyrirhugaðar framkvæmdir við borholur. Fyrirhugaður er íbúafundur í september þar sem OV kynnir framkvæmdir fyrir íbúum. Bæjarráð þakkar OV fyrir fundinn og aukna upplýsingagjöf til íbúa.
2. Fjallskil
Lagður fyrir til samþykktar fallskilaseðill 2026.
Lögð fram drög að fjallskilaseðli 2026 ásamt athugasemdum sem borist hafa.
Bæjarstjóra var falið að uppfæra seðilinn í samræmi við umræður á fundinum og birta á vefsíðu sveitarfélagsins.
3. Málefni fjölskyldusviðs
Rætt um málefni fjölskyldusviðs, sviðsstjóri fjölskyldusviðs situr fundinn undir liðnum.
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kom inn á fundinn og greindi frá stöðu mála. Bæjarráð þakkar yfirferðina.
4. Ofanflóðaframkvæmdir
Sviðsstjóri umhverfis og framkvæmdasviðs situr fundinn undir liðnum þar sem farið verður yfir stöðu framkvæmda við ofanflóðavarnir í sveitarfélaginu.
Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs fór yfir framkvæmdir í sveitarfélaginu. Á Patreksfirði eru áætluð verklok vegna bráðaframkvæmda við Stekkagil í lok september. Undirbúningur framkvæmda á Bíldudal hefst í haust með hreinsun trjágróðurs og lagningu ræsis og munu framkvæmdir hefjast að fullu á næsta ári.
Til kynningar
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:15