Hoppa yfir valmynd

Bæjarráð #63

Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 15. september 2026 og hófst hann kl. 09:00

Nefndarmenn
  • Hlynur Ársælsson (HÁ) aðalmaður
  • Rebekka Hilmarsdóttir (RH) aðalmaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
  • Halla Guðrún Jónsdóttir (HGJ) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Fundargerð ritaði
  • Halla Guðrún Jónsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Almenn erindi

1. Fjárhagsáætlun 2027 - 2030

Formaður heimastjórnar Patreksfjarðar kom inn á fundinn og kynnti áherslur í fjárhagsáætlunargerð.

Bæjarráð þakkar formanni heimastjórnar Patreksfjarðar fyrir yfirferð á áherslumálum heimastjórnarinnar í fjárhagsáætlunargerð.

Málsnúmer16

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Bréf og minnisblöð er varða lagabreytingar vegna niðurfellingar Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða.

Lagt fram bréf og minnisblað frá Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða sem fjalla um lagabreytingar og niðurfellingu Heilbrigðiseftirlitsins og áhrif þess á sveitarfélög. Einnig lagt fram minnisblað frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra um framtíðarfyrirkomulag verkefna eftirlitsins á því svæði eftir að ný lög taka gildi.

Lilja Magnúsdóttir kom inn á fundinn fyrir hönd heilbrigðisnefndar Vestfjarða og fór yfir málið. Bæjarráð þakkar yfirferðina.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

3. Fundargerðir 2026 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Lögð fram til kynningar fundargerð 1001. fundar stjórnar Sambandsins frá 28. ágúst 2026

Málsnúmer10

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Fundargerðir 2026 Hafnasambands Íslands

Fundargerð 484. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands var lögð fram til kynningar.

Málsnúmer6

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Fundargerðir 2026

Lagt fram til kynningar fundargerð aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga sem var haldin 21.08.2026

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Notendaráð sveitarfélaga

Lagt fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um lögbundin notendaráð sveitarfélaga

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00