Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 21. september 2026 og hófst hann kl. 14:00
Nefndarmenn
- Hlynur Ársælsson (HÁ) aðalmaður
- Jenný Lára Magnadóttir (JLM) varamaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
- Halla Guðrún Jónsdóttir (HGJ) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði
- Halla Guðrún Jónsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Almenn erindi
1. Fjárhagsáætlun 2026 - viðaukar
Lagður fram viðauki 3 við fjárhagsáætlun 2026. Viðaukanum er ætlað að mæta hærri kostnaði en áætlaður var í fjárhagsáætlun 2026 við nýbyggingu Bíldudalsskóla.
Kostnaðurinn nemur samtals 151 m.kr. Mætir það kostnaði til að ljúka framkvæmdunum við Bíldudalsskóla. Meginástæður kostnaðarins má rekja til þess að á framkvæmdatímanum frá 2023 var hönnunar-, ráðgjafar- og eftirlitskostnaður og kostnaður við gerð útboðsgagna og byggingaeftirlit vanáætlaður. Á framkvæmdatíma voru einnig samþykkt viðbótarverk sem ekki var aflað viðeigandi fjárheimilda fyrir. Þá reyndist eftirlit með kostnaðarþróun verkefnisins ábótavant og komu því kostnaðarfrávik vegna framkvæmdarinnar ekki fram fyrr en nú.
Viðaukanum er mætt með lækkun á áður áætluðum fjárfestingarverkefnum innan fjárfestingaáætlunar ársins 2026. Þannig er lagt til að fresta fram á næst ár framkvæmdun sem ekki eru hafnar. Um er að ræða útboði á niðurrifi Straumnes, kaupum á timbri við Bíldudalshöfn þar sem kostnaðurinn mun falla til á næsta ári, kaupum á tækjum, áætluðum framkvæmdum við götur, opin svæði, ljósleiðaralagningu og framkvæmdir við félagsheimili Patreksfjarðar. Samtals nema þau fjárfestingaverkefni samtals 159,9 m. kr.
Undirbúningur og framkvæmd við Bíldudalsskóla sem og kostnaðarþróun framkvæmdarinnar hafa verið teknar til ítarlegrar skoðunar og greiningar af hálfu sveitarfélagsins og hefur sú vinna varpað ljósi á þá þætti í undirbúningi, áætlanagerð, fjárheimildastýringu og eftirfylgni sem þarfnast úrbóta. Þegar er hafin vinna við að innleiða breytingar á verklagi við undirbúning, kostnaðarmat, kostnaðareftirlit og upplýsingagjöf vegna fjárfestingarverkefna. Markmið þeirrar vinnu er að tryggja raunhæfari kostnaðaráætlanir, skilvirkara eftirlit með framvindu verkefna og skýrari upplýsingagjöf.
Samhliða er fjárheimild slökkviliðs til tækjakaupa í rekstri lækkuð um 1,2 m.kr. og hækkuð um sömu upphæð í fjárfestingu.
Rekstrarniðurstaða A-hluta og samstæðu A- og B-hluta batnar um 1,2 m.kr. Rekstrarniðurstaða A-hluta verður því 19,1 m.kr. og rekstrarniðurstaða samstæðu A- og B-hluta verður 84,0 m.kr. Handbært fé A-hluta lækkar um 87,8 m.kr. og verður 1,9 m.kr. í árslok. Handbært fé A- og B-hluta hækkar um 9,4 m.kr. og verður 102,2 m.kr.
Bæjarráð samþykkir viðaukann og vísar honum áfram til bæjarstjórnar til staðfestingar.
2. Fjárhagsáætlun 2027 - 2030
Til kynningar
3. Fundargerðir 2026 Hafnasambands Íslands
Lögð fram til kynningar fundargerð 485. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands frá 7. september 2026.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30