Hoppa yfir valmynd

Bæjarráð #65

Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 28. september 2026 og hófst hann kl. 09:00

Nefndarmenn
  • Hlynur Ársælsson (HÁ) aðalmaður
  • Rebekka Hilmarsdóttir (RH) aðalmaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
  • Halla Guðrún Jónsdóttir (HGJ) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Fundargerð ritaði
  • Halla Guðrún Jónsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Almenn erindi

1. Fjárhagsáætlun 2027 - 2030

Formaður heimastjórnar Arnarfjarðar, Freyja Ragnarsdóttir Pedersen, kom inn á fundinn og kynnti áherslur í fjárhagsáætlunargerð.

Bæjarráð þakkar formanni fyrir yfirferðina.

Málsnúmer19

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Fjárhagsáætlun 2027 - 2030

Formaður heimastjórnar fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps, Elín Eyjólfsdóttir, kom inn á fundinn og kynnti áherslur í fjárhagsáætlunargerð.

Bæjarráð þakkar formanni fyrir yfirferðina.

Málsnúmer19

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Erindi til sveitarstjórnar

Lagt fram erindi frá VR, LÍV og Fagfélögnum til sveitarstjórnar.

Bæjarráð þakkar VR, LÍV og Fagfélögunum fyrir erindið. Bæjarráð vísar til ályktana og áherslna Landsþings sveitarfélaga um ábyrgan rekstur sveitarfélaga, hófsemi við álagningu gjalda og mikilvægi þess að sveitarfélög stuðli að efnahagslegum stöðugleika. Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindinu fyrir hönd sveitarfélagsins.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Áskorun frá Starfsgreinasambandi Íslands og 18 aðildarfélögum þess um þjóðarsátt um verðstöðugleika.

SGS skorar á sveitarfélög landsins að taka þátt í sameiginlegu átaki til að ná niður verðbólgu og vöxtum og stuðla þannig að því að kjarasamningar haldi.

Bæjarráð þakkar Starfsgreinasambandinu fyrir erindið. Bæjarráð vísar til ályktana og áherslna Landsþings sveitarfélaga um ábyrgan rekstur sveitarfélaga, hófsemi við álagningu gjalda og mikilvægi þess að sveitarfélög stuðli að efnahagslegum stöðugleika. Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindinu fyrir hönd sveitarfélagsins.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

5. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 5. mál, Sveitarstjórnarlög.

Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sem sendir til umsagnar 5. mál, Sveitarstjórnarlög.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum

Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sem sendir til umsagnar frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl. (markmið, nýting eigna, framkvæmdaumsjón), 4. mál.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


7. Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa 2026

Lagt fram til kynningar bréf dags. 15. september sl. frá innviðaráðuneytinu þar sem vakin er athygli á degi um fórnarlömb umferðaslysa.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


8. Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum

Lagt fyrir til kynningar boð á aðalfund Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum ásamt ársreikningi og tillögu að ársgjaldi í samtökin.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:15