Hoppa yfir valmynd

Bæjarráð #66

Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 13. október 2026 og hófst hann kl. 09:00

Nefndarmenn
  • Hlynur Ársælsson (HÁ) aðalmaður
  • Rebekka Hilmarsdóttir (RH) aðalmaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
  • Halla Guðrún Jónsdóttir (HGJ) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Fundargerð ritaði
  • Halla Guðrún Jónsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Almenn erindi

1. Hitaveita Krossholti

Lagður fyrir dómur Landsréttar í máli landeigenda að Krossi gegn Vesturbyggð. Björn Jóhannesson lögmaður fer yfir.

Björn Jóhannesson, lögmaður, reifaði dóm Landsréttar og þýðingu hans.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Golfklúbbur Patreksfjaraðar - Virkjun í landi Vestur Botns

Fulltrúar Golfklúbbs Patreksfjarðar koma inn á fund bæjarráðs til að ræða virkjun í landi Vestur-Botns.

Fulltrúar Golfklúbbsins fóru yfir áform um byggingu 12kW virkjunar í Botnsá til að rafvæða aðstöðu klúbbsins. Fjallað var um fjármögnun verkefnisins og óskað eftir aðkomu sveitarfélagsins að því. Rafvæðing svæðisins hefur einnig þýðingu fyrir öryggissjónarmið en hægt væri að skoða nýtingu á rafmagninu til að auka símasamband á svæðinu.
Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna og fagnar frumkvæðinu. Tekið er jákvætt í að skoða þátttöku sveitarfélagins í fjármögnun verkefnisins og verður málið tekið fyrir í fjárhagsáætlunarferli.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Héraðssambandið Hrafna Flóki

Fulltrúar HHF koma inná fundinn í samræmi við samstarfssamning HHF og Vesturbyggðar.

Birna Hannesdóttir kom inn á fundinn fyrir hönd Héraðssambandsins Hrafna-Flóka (HHF) og fjallaði um áherslur í starfi félagsins, helstu verkefni og áskoranir. Fjallað var um eftirspurn eftir íþrótta- og hreyfistarfi og framtíðarþörf varðandi húsnæði. Bæjarráð þakkar yfirferðina.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Farsældarráð Vestfjarða

Tekin fyrir skipan bæjarfulltrúa úr Vesturbyggð í farsældarráð Vestfjarða.

Bæjarráð tilnefnir Gunnþórunni Bender sem fulltrúa Vesturbyggðar í farsældarráð Vestfjarða.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Gjaldtaka af eldisfiski

Rætt um gjaldtöku af eldisfiski.

Hafnarstjóri kom inn á fundinn undir liðnum.
Fyrir liggur að áframhaldandi tafir verða á að endurskoðun hafnarlaga ljúki. Fiskeldisfyrirtæki sem starfa í Vesturbyggð hafa óskað eftir að gerður verði samningur við hafnarsjóð um eldisgjöld. Bæjarráð felur bæjarstjóra að kynna drög að samningi um gjaldtöku af eldisfiski til fyrirtækja í atvinnugreininni á svæðinu.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Akstursstyrkur

Lagt fram minnisblað tómstundafulltrúa um tillögu að akstursstyrk fyrir börn og ungmenni í Vesturbyggð til að auðvelda þeim að sækja skipulagt félags- og tómstundastarf óháð búsetu. Fjölskylduráð fjallaði um málið á fundi sínum 7. október 2026 og hvatti bæjarráð til að skoða möguleika á upptöku akstursstyrksins.

Bæjarráð vísar málinu í fjárhagsáætlunarferli og felur bæjarstjóra að skoða mögulegar útfærslur og meta kostnað vegna akstursstyrks.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


7. Umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2026

Opið er fyrir umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Umsóknarfrestur er til 27. október 2026.

Valgerður María Þorsteinsdóttir, menningar- og ferðamálafulltrúi Vesturbyggðar, kom inn á fundinn undir liðnum og fjallaði um umsóknir í sjóðinn.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


8. Skráningardagar

Fjallað um tillögu fjölskylduráðs um breytingu á opnunartímum á leikskólum sveitarfélagsins.

Bæjarráð samþykkir að fresta gildistöku fyrirhugaðra breytinga á opnunartíma leikskóla sveitarfélagsins. Jafnframt óskar bæjarráð eftir gögnum sem liggja að baki tillögunni.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

9. Fundargerðir 2026 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Lögð fram til kynningar fundargerð 1003. fundar stjórnar Sambandsins frá 23. september 2026.

Málsnúmer12

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


10. Fundargerðir 2026 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Lögð fram til kynningar fundargerð 1002. fundar stjórnar Sambandsins frá 11. september 2026.

Málsnúmer12

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


11. Boðun 71. Fjórðungsþings Vestfirðinga, Félagsh. Patreksf, 27. og 28. október

Lagt fyrir til kynningar boð á 71. fjórðungsþing Vestfirðinga að hausti.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


12. Fundargerðir 2026 stjórnar Náttúrustofa Vestfjarða

Lögð fram til kynningar fundargerð 160. fundar stjórnar Náttúrustofu Vestfjarða frá 28. september 2026.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


13. Stöðumat á verkefninu Gott að eldast

Lagður fram til kynningar tölvupóstur með stöðumati á verkefninu Gott að eldast.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


14. Fundargerðir 2026 stjórnar Vestfjarðastofu

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 80 og 71 2026 frá stjórnarfundum Vestfjarðarstofu.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


15. Til umsagnar 156. mál - frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun, nr. 1061999 (lagfæringar).

Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sem sendir til umsagnar 156. mál, frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun, nr. 106/1999 (lagfæringar).

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


16. Ársfundur Náttúrustofu Vestfjarða 2026

Lagt fram til kynningar fundargerð samráðsfundar aðildarsveitarfélaga Náttúrustofu Vestfjarða 2026 ásamt þeim kynningum sem Smári Haraldsson, fráfarandi formaður, flutti.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00