Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 10. nóvember 2026 og hófst hann kl. 09:00
Nefndarmenn
- Hlynur Ársælsson (HÁ) aðalmaður
- Rebekka Hilmarsdóttir (RH) aðalmaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
- Halla Guðrún Jónsdóttir (HGJ) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði
- Halla Guðrún Jónsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Almenn erindi
1. Álagningarhlutfall útsvars 2027
Fjallað um álagningarhlutfall útsvars á næsta ári.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að álagningarhlutfall útsvars haldist óbreytt frá fyrra ári eða 14,97%.
2. Útkomuspá 2026
Lögð fyrir útkomuspá fyrir árið 2026.
Samkvæmt spánni er gert ráð fyrir 35,2 milljóna króna hagnaði í samanteknum A- og B-hluta, samanborið við 79,5 milljóna króna hagnað samkvæmt fjárhagsáætlun. Rekstur fyrir fjármagnsliði er betri en áætlað var, meðal annars vegna hærri útsvarstekna og framlaga Jöfnunarsjóðs ásamt lægri launa- og rekstrarkostnaði. Á móti vegur töluverð hækkun fjármagnsgjalda, einkum vegna verðbóta af verðtryggðum lánum.
Í spánni eru tekjufærð eldisgjöld hjá Hafnasjóði en óvissa ríkir um innheimtu þeirra. Án þeirra tekna yrði niðurstaða samantekins A- og B-hluta neikvæð.
3. Sorpmál í Vesturbyggð
Umræða um sorpmál í Vesturbyggð. Lilja Magnúsdóttir, starfsmaður umhverfis- og framkvæmdasviðs, og Geir Gestsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, fara yfir stöðu sorpmála í Vesturbyggð og mögulegar framtíðarlausnir í málaflokknum.
Bæjarráð þakkar fyrir yfirferðina.
4. Erindi vegna fyrirhugaðra framkvæmda ofan við Sigtún og Hjalla
Lagt fram erindi frá íbúm við Sigtún 1-13 á Patreksfirði vegna fyrirhugaðra framkvæmda ofan við Sigtún.
Bæjarráð þakkar íbúum fyrir erindið og þær ábendingar sem þar koma fram.
Fulltrúar ofanflóðasjóðs hafa fundað með íbúum Sigtúns, auk almenns íbúafundar, vegna fyrirhugaðra framkvæmda og farið yfir þær áhyggjur og sjónarmið sem fram hafa komið.
Fyrir liggur að mismunandi kostir við ofanflóðavarnir á svæðinu hafa verið metnir í frumathugun og að niðurstaða þeirrar vinnu sé að varnargarður sé talinn heppilegasta lausnin til að tryggja öryggi byggðar á svæðinu.
Bæjarráð leggur áherslu á að við áframhaldandi undirbúning verði hugað að áhrifum framkvæmdarinnar á nærumhverfi og ásýnd svæðisins og að áfram verði haft gott samráð við íbúa.
5. Aðgerðir vegna endurskoðunar vatnaáætlunar - óskað eftir athugasemdum
Lagt fram erindi Umhverfis- og orkustofnunar, dags. 28. október 2026, vegna niðurstaðna álagsgreiningar vatnshlota og tillagna að aðgerðum í vatnaáætlun 2028?2033.
Samkvæmt niðurstöðunum er vatnshlotið Tálknafjörður innri (101-1279-2-C) metið í óvissu um að ná umhverfismarkmiðum. Helsta álag er talið stafa af fráveitu og fiskeldi, en umfang þess og áhrif eru enn óljós.
Í tillögunum er gert ráð fyrir vöktun á ástandi vatnshlotsins og úrbótum í fráveitumálum. Vesturbyggð er tilgreind sem ábyrgðaraðili, með lok aðgerða árið 2029, en kostnaðarmat liggur ekki fyrir.
Umhverfis- og orkustofnun óskar eftir athugasemdum sveitarfélagsins fyrir 20. nóvember 2026.
Bæjarráð Vesturbyggðar telur mikilvægt að aflað verði frekari upplýsinga um ástand vatnshlotsins Tálknafjörður innri og áhrif fráveitu og atvinnustarfsemi áður en umfang fyrirhugaðra aðgerða er ákveðið.
Bæjarráð leggur áherslu á að skýrt verði hvernig ábyrgð og kostnaður vegna vöktunar og rannsókna skiptist milli sveitarfélagsins, Umhverfis- og orkustofnunar og rekstraraðila á svæðinu.
Jafnframt óskar bæjarráð eftir nánari skýringum á þeim aðgerðum í fráveitumálum sem lagðar eru til vegna vatnshlotsins, á hvaða forsendum þær byggja og hvernig þær tengjast skyldum sveitarfélagsins samkvæmt gildandi regluverki. Mikilvægt er að umfang, kostnaður og fjármögnun aðgerðanna liggi fyrir áður en endanleg afstaða er tekin til þeirra og fyrirhugaðs framkvæmdafrests.
6. Eldisgjöld - samningar við eldisfyrirtækin
Lagt fram erindi Hafnarsjóðs Vesturbyggðar til Arnarlax og Arctic fish þar sem fyrirtækjunum er boðin samningur um greiðslu eldisgjalda sbr. bókun bæjarráðs Vesturbyggðar á fundi ráðsins 13. október sl. Jafnframt er lagt fram svar Arnarlax við erindinu.
Í framhaldi af fyrri umfjöllun bæjarráðs voru Arnarlaxi og Arctic Fish send samningsdrög þann 19. október sl. um eldisgjald. Arnarlax hefur svarað erindinu. Ljóst er að samningsviðræðurnar hafa ekki skilað tilætluðum árangri og enn ber verulega í milli.
Arctic Fish hefur óskað eftir frekari upplýsingum.
Eldisgjald er þegar innheimt samkvæmt gildandi gjaldskrá Hafnasjóðs. Lagt er til að breyta fyrirkomulagi gjaldtökunnar úr verðmætatengdu gjaldi í fasta fjárhæð á hvert kílógramm eldisfisks, á grundvelli heimilda hafnalaga og kostnaðargreiningar Hafnasjóðs.
Bæjarráð telur að viðræðurnar, sem þó hafa átt sér stað síðan 2020, hafi ekki skilað tilætluðum árangri og að enn beri verulega í milli um fjárhæð gjaldsins.
Bæjarráð telur því rétt að breyta fyrirkomulagi eldisgjalds í gildandi gjaldskrá Hafnasjóðs þannig að gjaldið miðist við fasta fjárhæð á hvert kílógramm eldisfisks í stað hlutfalls af verðmæti hans.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og hafnarstjóra að undirbúa tillögu að breytingu á gjaldskrá Hafnasjóðs Vesturbyggðar, með hliðsjón af kostnaðargreiningu og forsendum gjaldtökunnar, og leggja hana fyrir bæjarráð til afgreiðslu eins fljótt og unnt er.
Bæjarráð felur jafnframt lögmanni sveitarfélagsins að svara bréfi Arnarlax.
Meirihluti bæjarráðs samþykkir bókunina.
Fulltrúi minnihlutans samþykkir ekki bókunina og leggur áherslu á að reynt verði til þrautar að ná málamiðlun með fyrirvara um afturvirka leiðréttingu þegar ný hafnalög hafa verið afgreidd á Alþingi.
Til kynningar
8. Fjárhagslegur stuðningur vegna áskriftarkostnaðar sem fellur til hjá sveitarfélögum við samræmda grunnskráningu í þjónustukerfum fyrir stuðnings- og stoðþjónustu
Lagður fram tölvupóstur frá Félags- og húsnæðismálaráðuneyti vegna vinnu við framtíðarsýn um stafræna þróun og gagnamál í félagsþjónustu sveitarfélaga.
9. Endurskoðun húsnæðisáætlana 2027
Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Húsnæðis-, mannvirkja-, og skipulagsstofnun (HMS) um endurskoðun húsnæðisáætlana 2027.
10. Fundargerðir 2026 stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
Lögð fram til kynningar fundargerð 101 fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 2. október 2026
11. Fundargerðir 2026 Hafnasambands Íslands
Lögð fram til kynningar fundargerð 487. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands frá 21. október 2026.
12. Ágóðahlutagreiðsla 2026
Lagt fram til kynningar bréf til aðildarsveitarfélaga EBÍ er varðar ákvörðun stjórnar EBÍ um ágóðahlutagreiðslu
13. Verum viðbúin - upplýsingar til sveitarfélaga
Lagður fram til kynningar tölvupóstur með kynningu á bækling þar sem er að finna hagnýtar upplýsingar um hvernig einstaklingar og fjölskyldur geta undirbúið sig fyrir aðstæður þar sem daglegu lífi er raskað og hvert leita megi upplýsinga.
14. Fundargerðir 2026 Breiðafjarðarnefndar
Lagðar fram til kynningar fundargerðir 244. og 245. Breiðafjarðarnefndar,frá 23.06.2026 og 31.08.2026
15. Ársfundur Náttúrustofu Vestfjarða 2026
16. Nýr rammasamningur um höfundaréttargjöld vegna tónflutnings sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar tölvupóstur þar sem kynntur er nýr rammasamningur um höfundaréttargjöld vegna tónflutnings sveitarfélaga.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:15