Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 24. nóvember 2026 og hófst hann kl. 10:00
Nefndarmenn
- Hlynur Ársælsson (HÁ) aðalmaður
- Rebekka Hilmarsdóttir (RH) aðalmaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
- Halla Guðrún Jónsdóttir (HGJ) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði
- Halla Guðrún Jónsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Almenn erindi
1. Fjárhagsáætlun 2027 - 2030
Lagt fram í fyrri umræðu frumvarp að fjárhagsáætlun 2027 og 3 ára áætlun 2028-2030.
Bæjarráð vísar frumvarpi að fjárhagsáætlun 2027 ásamt 3 ára áætlun 2028-2030 til fyrri umræðu í bæjarstjórn miðvikudaginn 25. nóvember nk.
2. Gjaldskrár 2027
Lagðar fyrir í fyrri umræðu gjaldskrár Vesturbyggðar fyrir árið 2027.
Bæjarráð vísar gjaldskrám Vesturbyggðar fyrir árið 2027 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
3. Fjárhagsáætlun 2026 - viðaukar
Lagður fram viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2026. Viðaukinn er til kominn vegna tveggja atriða.
Annars vegar er viðaukanum ætlað að mæta kostnaði vegna nauðsynlegra bráðaðgerða við húsnæði Patreksskóla. Viðaukanum er mætt með lækkun á áður áætluðum fjárfestingarverkefnum innan fjárfestingaáætlunar ársins 2026. Þannig er lagt til að fresta fram á næsta ár framkvæmdum við vatnsveitu Vesturbyggðar sem ekki eru hafnar.
Hins vegar er um að ræða tilfærslu á kostnaðar- og tekjuliðum milli málaflokka. Tilfærslan er til komin vegna breytinga á reglugerð nr. 1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga. Breytingin hefur engin áhrif á rekstrarniðurstöðu né handbært fé, aðeins er um að ræða breytingu á framsetningu málaflokka í bókhaldi sveitarfélagsins.
Rekstrarniðurstaða A-hluta og samstæðu A- og B-hluta er óbreytt og eins verða engin áhrif á handbært fé samstæðu A- og B-hluta.
Bæjarráð samþykkir viðaukann og vísar honum áfram til bæjarstjórnar til staðfestingar.
4. Beiðni ungmenna um samstarf vegna Barnamenningarhátíðarinnar Púkans 2027
Lagt fram erindi frá Ungmennaráði Vestfjarða þar sem óskað er eftir samstarfi við sveitarfélagið um vegglistaverk vestfirskra ungmenna á Barnamenningarhátíðinni Púkanum árið 2027.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að svara Ungmennaráði Vestfjarða um mögulegar staðsetningar á vegglistaverkum í sveitarfélaginu.
5. Fjallskil athugasemdir vegna fjallskila
Lagt fram erindi frá Marinó Bjarnasyni vegna framkvæmdar fjallskila í Tálknafirði.
Bæjarráð þakkar erindið og felur bæjarstjóra að svara því.
6. Svæðisbundin farsældaráætlun Vestfjarða 2026-2030
Lögð fyrir svæðisbundin forgangsröðun aðgerða vegna farsældar. Erna Lea Bergsteinsdóttir, verkefnastjóri hjá Vestfjarðastofu, kemur inn á fundinn og sagði frá forgangsröðun fimm aðgerða fyrir árið 2027.
Forgangsaðgerðirnar eru fimm talsins, þ.e. um sameiginlegt verklag, samræmda
fræðsluáætlun, sameiginlegt yfirlit yfir úrræði og þjónustu, samþættan stuðning frá
fyrstu stundu og eflingu félagsmiðstöðvastarfs. Ekki er gert ráð fyrir sérstöku
fjárframlagi til verkefnanna á árinu 2027.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að sveitarfélagið undirriti viljayfirlýsingu um forgangsaðgerðirnar fimm á farsældarþingi Vestfjarða þann 1. desember 2026.
7. Framtíðarsamkomulag um vatnsafhendingu til Pollsins í Tálknafirði
Lagt fram erindi frá Jónasi Snæbjörnssyni formanni Pollvina með beiðni um framtíðarsamkomulag um vatnsafhendingu til Pollsins í Tálknafirði.
Heimastjórn tekur jákvætt í málið, en áréttar mikivægi þess að Pollurinn sé opinn almenningi og það sé tryggt til frambúðar. Heimastjórn vísar málinu til bæjarráðs til nánari skoðunar.
Bæjarráð þakkar erindið og tekur undir að Pollurinn sé mikilvægur útivistar- og áningarstaður í Tálknafirði og að mikilvægt sé að tryggja starfsemi hans til framtíðar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vera í sambandi við bréfritara og að vinna málið áfram.
8. Styrkumsóknir til menningar- og ferðamála 2026
Lagðar fyrir styrkbeiðnir vegna menningar- og ferðamála sem bárust fyrir 2. úthlutun ársins 2026.
Menningar- og ferðamálafulltrúi situr fundinn undir liðnum.
1. Greta Lietuvninkaité í samstarfi við Skriðu bókaútgáfu sækir um fyrir ritsmiðju "Write it Out". Sótt er um 59.500 kr.
Bæjarráð samþykkir styrkbeiðni að fjárhæð 59.500 kr.
2. Erla Dóra Vogler sækir um fyrir verkefnið Ævintýri á aðventunni í grunnskólum Vesturbyggðar. Sótt er um 250.000 kr.
Bæjarráð samþykkir styrkbeiðni að fjárhæð 250.000 kr.
3. Arndís Harpa Einarsdóttir sækir um fyrir menningarviðburð með listafólki og afþreyingu, haldinn 1. ágúst 2026 í gróðurhúsinu Moshlíð. Sótt er um 200.000 kr.
Bæjarráð samþykkir styrkbeiðni að fjárhæð 200.000 kr.
4. Tómas Guðbjartsson sækir um fyrir annarri prentun bókar um Ketildali og Andahvilft í Hvestudal. Sótt er um 1 milljón króna í styrk.
Bæjarráð hafnar styrkbeiðni og vísar jafnframt til þess að verkefnið hefur áður fengið styrk.
5. Búi Baldvinsson sækir um styrk fyrir framleiðslu heimildarmyndar um snjóflóðið á Flateyri. Sótt er um 5 milljónir króna í styrk.
Bæjarráð telur verkefnið ekki vera í samræmi við úthlutunarreglur sjóðsins og hafnar styrkbeiðninni.
Til kynningar
10. Fundargerðir 2026 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram til kynningar fundargerð 1005. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30. október 2026.
11. Skipakomur, farþegafjöldi og hafnartekjur á árinu 2026
Lögð fram til kynningar samantekt Cruise Iceland á skipakomum skemmtiferðaskipa, farþegafjölda og tekjur hafna af skemmtiferðaskipum á árinu 2026.
12. Hafnasambandsþing 2026
Lögð fram til kynningar fundargerð, samþykkt ályktun og skýrsla stjórnar í framhaldi af Hafnasambandsþingi 2026 er fór fram í Reykjanesbæ 22.- 23.október sl.
13. Til umsagnar 313. mál - Stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027-2041
Lagt fram til kynningar erindi frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sem sendir til umsagnar 313. mál - Stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027-2041.
14. Til umsagnar 286. mál - Stefna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna til ársins 2031
Lagt fram til kynningar erindi frá Velferðarnefnd Alþingis sem sendir til umsagnar 286. mál - Stefna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna til ársins 2031.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00