Hoppa yfir valmynd

Bæjarstjórn #13

Fundur haldinn í Brellum, fundarsal ráðhúsi Vesturbyggðar, 4. júní 2025 og hófst hann kl. 16:15

Nefndarmenn
  • Friðbjörg Matthíasdóttir (FM) aðalmaður
  • Gunnþórunn Bender (GB) aðalmaður
  • Jenný Lára Magnadóttir (JLM) aðalmaður
  • Jóhann Örn Hreiðarsson (JÖH) aðalmaður
  • Guðmundur Björn Þórsson (GBÞ)
  • Páll Vilhjálmsson (PV) aðalmaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
  • Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Fundargerð ritaði
  • Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Hljóðupptaka
00:00 / 00:00

Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 13. fundar miðvikudaginn 4. júní 2025 kl. 16:15 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði. Fundurinn er aukafundur.

Gunnþórunn Bender forseti setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.

Almenn erindi

1. Ársreikningur 2024

Lagður fram til seinni umræðu ársreikningur Vesturbyggðar og stofnanna hans fyrir árið 2024.

Er þetta fyrsti ársreikningur sameinað sveitarfélags en sameining Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar gekk í gegn 19. maí 2024. Til samanburðar í ársreikningi eru samanlagðar tölur Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps eins og þær stóðu í ársreikningum sveitarfélaganna fyrir sameiningu.

Rekstrartekjur A og B hluta bæjarsjóðs voru 2.965 millj. kr., þar af voru 2.455 millj. kr. vegna A hluta.

Veltufé frá rekstri A hluta var 258,5 milljónir á árinu 2024. Veltufé frá rekstri í samanteknum ársreikningi A og B hluta var 371,9 millj. kr. Nam handbært fé í árslok 205,4 millj. kr.

Fjárfest var á árinu fyrir 464,5 millj. kr. í fastafjármunum. Tekin voru ný lán á árinu 2024 uppá 250 millj. kr. Afborganir langtímalána námu 251 millj. kr.

Rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 39,9 millj. kr. en í fjárhagsáætlun hafði verið gert ráð fyrir neikvæðri afkomu upp á 10,3 millj. kr. Fjármagnstekjur og gjöld námu 171,5 millj. kr. en gert hafi verið ráð fyrir 178,3 millj.kr.

Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 87,4 millj. kr. en í fjárhagsáætlun hafði verið gert ráð fyrir jákvæðri afkomu upp á 75,4 millj. kr. Fjármagnstekjur og gjöld námu 203 millj. kr. en gert hafi verið ráð fyrir 228 millj.kr.

Heildareignir sveitarfélagsins í samanteknum ársreikningi A og B hluta námu 4.458 millj. kr. í árslok 2024. Skuldir A hluta námu í árslok 2024 3.320 millj. kr., heildarskuldbindingar (A og B hluta) námu um 3.646 millj. kr.

Skuldaviðmiðið í árslok 2024 er 97% en gert er ráð fyrir í reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga að skuldaviðmiðið fari ekki yfir 150%.

Eigið fé sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum ársreikningi var 812 millj. kr. í árslok 2024.

Til máls tóku: Forseti og bæjarstjóri

Bæjarráð samþykkir ársreikning Vesturbyggðar samhljóða.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Stjórnskipan - skipan í ráð og nefndir

Tryggvi Baldur Bjarnason hefur óskar eftir lausn frá störfum sem kjörinn fulltrúi. Skipa þarf í hans stað varafulltrúa í bæjarráð og varamann í nefnd um Minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti

Til mál tóku: Forseti, JÖH og bæjarstjóri

Lögð fram tillaga um að Þórkatla Soffía Ólafsdóttir taki sæti varamanns í bæjarráði og í stjórn Minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer8

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:36