Fundur haldinn í Brellum, fundarsal ráðhúsi Vesturbyggðar, 18. febrúar 2026 og hófst hann kl. 16:15
Nefndarmenn
- Friðbjörg Matthíasdóttir (FM) aðalmaður
- Gunnþórunn Bender (GB) forseti
- Jenný Lára Magnadóttir (JLM) aðalmaður
- Jóhann Örn Hreiðarsson (JÖH) aðalmaður
- Einar Helgason (EH) varamaður
- Maggý Hjördís Keransdóttir (MHK) aðalmaður
- Jónas Snæbjörnsson (JS) varamaður
Starfsmenn
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Hljóðupptaka
Almenn erindi
1. Endurskoðun húsnæðisáætlana 2026
Lögð fram endurskoðuð Húsnæðisáætlun Vesturbyggðar 2026. Áætluninni er skilað rafrænt og á stöðluðu formi til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Markmið með þessu formi húsnæðisáætlana er að auðvelda sveitarfélögum gerð þeirra ásamt því að auðvelda samanburð á milli sveitarfélaga og þannig bæta yfirsýn um stöðu og horfur á húsnæðismarkaði.
Húsnæðisáætlun Vesturbyggðar 2026 var unnin með hliðsjón af stefnuskjölum bæjarstjórnar Vesturbyggðar s.s. áætlun um mannfjöldaþróun skv. fjárhagsáætlun 2026-2029. Bæjarstjóri ásamt sviðsstjórum Vesturbyggðar héldu utan um öflun upplýsinga í áætlunina í samstarfi við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkir samhljóða endurskoðaða húsnæðisáætlun Vesturbyggðar. Samkvæmt húsnæðisáætluninni er gert ráð fyrir að íbúar sveitarfélagsins verði 20,6% fleiri að 10 árum liðnum samkvæmt miðspá, þ.e. fjölgun um 271 íbúa og er áætluð íbúðaþörf í samræmi við það 150 íbúðir. Vesturbyggð leggur því áherslu á að fjölga lóðum samkvæmt skipulagi í öllum byggðakjörnum og í dreifbýli.
2. Stjórnskipan - skipan í ráð og nefndir
Skipan nýs aðalmanns í skipulags- og framkvæmdaráð í stað Ólafs Byrons Kristjánssonar sem hefur óskað eftir því að stíga til hliðar.
Tillaga liggur fyrir um að Freyja Ragnarsdóttir Pedersen komi inn sem aðalmaður og Ásdís Snót Guðmundsdóttir til vara
Til máls tók: Forseti
Borið upp til samþykktar
Samþykkt samhljóða.
3. Fjarskiptasamband í Patreksfirði
Lögð fyrir bókun heimastjórnar fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps þar sem fjarskiptasamband í Patreksfirði og á Kleifaheiði voru til umfjöllunar.
Bókunin var eftirfarandi:
"Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps leggur mikla áherslu á nauðsyn þess að sett verði upp fjarskiptasamband í innanverðum Patreksfirði og á vestanverðri Kleifaheiði þar sem nánast ekkert samband er á þeirri leið. Vakin er athygli á að á þessum vegi er ofanflóðahætta, bæði grjóthrun og snjóflóð og ekki hægt að ná sambandi ef slys eða óhöpp verða. Um þennan veg fara skólabörn á Barðaströnd daglega og öryggi þeirra getur því verið í hættu ef ekki er hægt að kalla eftir aðstoð ef eitthvað kemur upp. Um þennan veg er einnig mikil umferð íbúa og flutningabíla alla daga þar sem vegurinn um Kleifaheiði er aðalleið flutninga að og frá sunnanverðum Vestfjörðum. Heimastjórn hvetur bæjarstjórn Vesturbyggðar til að beita sér fyrir því að fjarskiptasamband verði sett upp á þessari leið sem allra fyrst með öryggi allra vegfarenda að leiðarljósi. Samþykkt samhljóða."
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn tekur heilshugar undir bókun heimastjórnar og felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir.
Fundargerðir til kynningar
4. Bæjarráð - 45
Lögð fram til kynningar fundargerð 45. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 27. janúar 2026. Fundargerðin er í 6 liðum.
Til máls tók: Forseti
5. Bæjarráð - 46
Lögð fram til kynningar fundargerð 46. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 3. febrúar 2026. Fundargerðin er í 6 liðum.
Til máls tók: Forseti
6. Bæjarráð - 47
Lögð fram til kynningar fundargerð 47. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 10. febrúar 2026. Fundargerðin er í 7 liðum.
Til máls tók: Forseti
7. Skipulags- og framkvæmdaráð - 17
Lögð fram til kynningar fundargerð 17. fundar skipulags- og framkvæmdaráðs, fundurinn var haldinn 28. janúar 2026. Fundargerðin er í 6 liðum.
Til máls tók: Forseti
8. Fjölskylduráð - 15
Lögð fram til kynningar fundargerð 15. fundar fjölskylduráðs, fundurinn var haldinn 12. janúar 2026. Fundargerðin er í 4 liðum.
Til máls tók: Forseti
9. Heimastjórn Tálknafjarðar - 17
Lögð fram til kynningar fundargerð 17. fundar heimastjórnar Tálknafjarðar, fundurinn var haldinn 5. febrúar 2026. Fundargerðin er í 5 liðum.
Til máls tók: Forseti
10. Heimastjórn Arnarfjarðar - 17
Lögð fram til kynningar fundargerð 17. fundar heimastjórnar Arnarfjarðar, fundurinn var haldinn 11. febrúar 2026. Fundargerðin er í 4 liðum.
Til máls tók: Forseti
11. Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps - 14
Lögð fram til kynningar fundargerð 14. fundar heimastjórnar fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps, fundurinn var haldinn 22. janúar 2026. Fundargerðin er í 5 liðum.
Til máls tók: Forseti
12. Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps - 15
Lögð fram til kynningar fundargerð 15. fundar heimastjórnar fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps, fundurinn var haldinn 12. febrúar 2026. Fundargerðin er í 5 liðum.
Til máls tók: Forseti
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:25
Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 21. fundar miðvikudaginn 18. febrúar 2026 kl. 16:15 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði. Gunnþórunn Bender forseti kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.