Fundur haldinn í Brellum, fundarsal ráðhúsi Vesturbyggðar, 18. mars 2026 og hófst hann kl. 16:15
Nefndarmenn
- Friðbjörg Matthíasdóttir (FM) aðalmaður
- Gunnþórunn Bender (GB) forseti
- Jenný Lára Magnadóttir (JLM) aðalmaður
- Jóhann Örn Hreiðarsson (JÖH) aðalmaður
- Jónas Snæbjörnsson (JS) varamaður
- Maggý Hjördís Keransdóttir (MHK) aðalmaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Hljóðupptaka
Almenn erindi
1. Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri Vesturbyggðar fór yfir helstu verkefni síðustu vikna.
Til máls tóku: Forseti og bæjarstjóri
2. Ráðning sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Lagt fyrir minnisblað bæjarstjóra Vesturbyggðar þar sem lagt er til við bæjarstjórn að Halla Guðrún Jónsdóttir verði ráðin í stöðu sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs Vesturbyggðar. Í minnisblaðinu er farið yfir ráðningaferlið.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að ráða Höllu Guðrúnu Jónsdóttur í starf sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs Vesturbyggðar.
3. Stofnframlag sveitarfélags íbúðir á Patreksfirði
Lagt fram erindi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun dags. 11. febrúar sl. varðandi umsókn Brákar um stofnframlög vegna byggingu sex íbúða á Patreksfirði. Gert hafði verið ráð fyrir framlaginu í fjárhagsáætlun ársins 2025 samanber bókun bæjarráðs á fundi ráðsins 11. mars 2025. Verkefnið fór ekki af stað á árinu 2025 og hafði ekki verið gert ráð fyrir því í áætlun ársins 2026.
Bæjarráð tók erindið fyrir á 49. fundi sínum þann 10. mars sl. og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja veitingu stofnframlags frá sveitarfélaginu vegna byggingu íbúða á Patreksfirði.
Þórkatla Soffía Ólafsdóttir vék af fundi.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn samþykkir veitingu stofnframlags frá sveitarfélaginu vegna bygginga íbúða á Patreksfirði.
Samþykkt samhljóða
Þórkatla Soffía Ólafsdóttir kom aftur inná fundinn.
4. Móttöku og inngildingaráætlun íbúa af erlendum uppruna
Lagt fyrir erindi frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur, verkefnastjóra hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða, dags. 12. desember 2025, þar sem kynnt eru drög um samræmda móttöku og inngildingu íbúa af erlendum uppruna hjá sveitarfélögum á Vestfjörðum.
Bæjarráð tók erindið fyrir á 49. fundi sínum þann 10. mars sl og vísaði því áfram til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn samþykkir móttöku og inngildingaráætlun íbúa af erlendum uppruna.
5. Fjárhagsáætlun 2026 - viðaukar
Lagður fyrir viðauki 1 við fjárhagsáætlun Vesturbyggðar 2026.
Viðauki 1 er lagður fyrir vegna stofnframlaga sveitarfélagsins við byggingu íbúða á Patreksfirði. Stofnframlag sveitarfélagsins er 34,7 millj. Hluti framlags er í formi lóðar og gatargerðargjalda, rest verði mætt með lántöku 28,8 millj.
Viðaukinn hefur áhrif á rekstrarniðurstöðu A hluta sem hækkar um 2,6 milljónir úr 15,2 milljónum í 17,9 milljónum í A og B hluta hækkar rekstrarniðurstaðan um 2,6 milljónir og fer úr 80,2 milljónum í 82,8 milljónir. Viðaukinn hefur ekki áhrif á handbært fé.
Þórkatla Soffía Ólafsdóttir vék af fundi
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann.
Þórkatla Soffía Ólafsdóttir kom aftur inn á fundinn
6. Reglur um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra
Lagðar fram til samþykktar nýjar reglur um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra á þjónustusvæðum velferðarsviðs Ísafjarðarbæjar, Vesturbyggðar og félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps. Reglurnar voru teknar fyrir á 14. fundi fjölskylduráðs þar sem þeim var vísað áfram til samþykktar bæjarstjórnar.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn samþykkir reglurnar
7. Öryggi vegfarenda á Raknadalshlíð
Lögð fram bókun bæjarráðs frá 49. fundi ráðsins sem haldinn var 10. mars sl. um öryggi vegfarenda á Raknadalshlíð. Bókunin var svohljóðandi:
Bæjarráð Vesturbyggðar lýsir yfir áhyggjum af öryggi vegfarenda um Raknadalshlíð í ljósi þess að samkvæmt fyrirliggjandi samgönguáætlun er ekki gert ráð fyrir fjármagni til að ráðast í aðgerðir sem miða að því að bæta öryggi á þessum vegkafla. Vesturbyggð hefur ítrekað bent á mikilvægi þess að ráðist verði í úrbætur á Raknadalshlíð og komið því skýrt á framfæri í umsögnum sveitarfélagsins um samgönguáætlun og til Vegagerðarinnar. Að mati bæjarráðs er mikilvægt að þessi mál fái nauðsynlega athygli í forgangsröðun framkvæmda. Undanfarnar vikur hefur Vegagerðin ítrekað lýst yfir hættustigi vegna snjóflóðahættu á Raknadalshlíð og hefur snjóflóð fallið á veginn með þeim afleiðingum að loka þurfti hlíðinni. Þessar aðstæður undirstrika viðkvæma stöðu samgangna á svæðinu og mikilvægi þess að unnið sé að lausnum sem auka öryggi vegfarenda. Raknadalshlíð er mikilvæg samgönguleið fyrir íbúa og atvinnulíf. Daglega fara þar um vegfarendur, þar á meðal skólabörn, starfsfólk og þjónustuaðilar. Það er því mikilvægt að tryggja að öryggismál á leiðinni séu eins góð og kostur er. Í umræðu um mögulegar úrbætur hafa meðal annars verið nefndar lausnir á borð við uppsetningu svokallaðra vegskála á þeim stöðum þar sem þekkt er að snjóflóð falli. Bæjarráð telur mikilvægt að slíkar eða aðrar raunhæfar lausnir verði skoðaðar með markvissum hætti, með það að markmiði að bæta öryggi vegfarenda til framtíðar.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn tekur heilshugar undir áhyggjur bæjarráðs af öryggi vegfarenda um Raknadalshlíð. Bæjarstjórn leggur ríka áherslu á að ráðist verði í nauðsynlegar úrbætur á vegkaflanum og að tryggt verði fjármagn til aðgerða í samgönguáætlun.
Bæjarstjórn telur brýnt að öryggi vegfarenda sé sett í forgang og að raunhæfar lausnir, svo sem uppsetning vegskála eða aðrar varnir, verði skoðaðar án tafar.
8. Snjómokstur að Bíldudalsflugvelli
Lögð fram bókun frá 17 fundi heimastjórnar Arnarfjarðar þar sem líst er áhyggjum að ástandi Bíldudalsvegar inn að Bíldudalsflugvelli.
Bókunin er svohljóðandi: Heimastjórn Arnarfjarðar lýsir áhyggjum sínum af ástandi Bíldudalsvegar inn að Bíldudalsflugvelli þar sem brýnt er að tryggja aukna vetrarþjónustu á þeim kafla og þá sérstaklega hálkuvörn sem þarf að vera hluti af vetrarþjónustunni. Á kaflanum eru tvær einbreiðar brýr auk þess sem slitlag vegarins er orðið það skemmt að um einbreiðan veg er að ræða stærstan hluta leiðarinnar. Þessi leið er gríðarlega mikilvæg fyrir samfélagið á sunnanverðum Vestfjörðum þar sem Bíldudalsflugvöllur gegnir hlutverki sjúkraflugvallar og því nauðsynlegt að tryggja samgöngur við völlinn sem allra best. Við endurbyggingu Bíldudalsvegar sem er í drögum að samgönguáætlun, er brýnt að þessi kafli verði tekinn sem hluti af þeirri framkvæmd en ekki skilinn eftir eins og lítur út fyrir í þeim drögum sem nú liggja frammi.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn tekur heilshugar undir bókun heimastjórnar Arnarfjarðar
Fundargerðir til kynningar
9. Bæjarráð - 48
Lögð fram til kynningar fundargerð 48. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 24. febrúar 2026. Fundargerðin er í 15 liðum.
Til máls tók: Forseti
10. Skipulags- og framkvæmdaráð - 18
Lögð fram til kynningar fundargerð 18. fundar skipulags- og framkvæmdaráðs, fundurinn var haldinn 25. febrúar 2026. Fundargerðin er í 3 liðum.
Til máls tók: Forseti
11. Bæjarráð - 49
Lögð fram til kynningar fundargerð 49. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 10. mars 2026. Fundargerðin er í 19 liðum.
Til máls tók: Forseti
12. Heimastjórn Patreksfjarðar - 17
Lögð fram til kynningar fundargerð 17. fundar heimastjórnar Patreksfjarðar, fundurinn var haldinn 4. mars 2026. Fundargerðin er í 6 liðum.
Til máls tók: Forseti
13. Heimastjórn Tálknafjarðar - 18
Lögð fram til kynningar fundargerð 18. fundar heimastjórnar Tálknafjarðar, fundurinn var haldinn 9. mars 2026. Fundargerðin er í 8 liðum.
Til máls tók: Forseti
14. Heimastjórn Arnarfjarðar - 18
Lögð fram til kynningar fundargerð 18. fundar heimastjórnar Arnarfjarðar, fundurinn var haldinn 11. mars 2026. Fundargerðin er í 9 liðum.
Til máls tók: Forseti
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:40
Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 22. fundar miðvikudaginn 18. mars 2026 kl. 16:15 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði. Gunnþórunn Bender forseti kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.
Forseti bar undir fundinn að tekin verði inn afbrigði á dagskrá, liður 8 málsnr. 2602023 Snjómokstur að Bíldudalsflugvelli. Dagskrárliðið 8-14 færast niður um einn lið og verða númer 9-15.
Samþykkt samhljóða.