Hoppa yfir valmynd

Bæjarstjórn #23

Fundur haldinn í Brellum, fundarsal ráðhúsi Vesturbyggðar, 29. apríl 2026 og hófst hann kl. 16:15

Nefndarmenn
  • Friðbjörg Matthíasdóttir (FM) aðalmaður
  • Gunnþórunn Bender (GB) forseti
  • Jenný Lára Magnadóttir (JLM) aðalmaður
  • Jóhann Örn Hreiðarsson (JÖH) aðalmaður
  • Friðbjörn Steinar Ottósson (FSO) Gestur
  • Maggý Hjördís Keransdóttir (MHK) aðalmaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
  • Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Fundargerð ritaði
  • Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Hljóðupptaka
00:00 / 00:00

Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 23. fundar miðvikudaginn 29. apríl 2026 kl. 16:15 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði. Gunnþórunn Bender forseti kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.

Almenn erindi

1. Skýrsla bæjarstjóra

Bæjarstjóri Vesturbyggðar fór yfir helstu verkefni síðustu vikna.

Til máls tóku: Forseti og bæjarstjóri

Málsnúmer17

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Ársreikningur Vesturbyggðar 2025

Lagður fram til fyrri umræðu ársreikningur Vesturbyggðar og stofnana hans fyrir árið 2025.

Til máls tóku: Forseti
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa ársreikningi 2025 til seinni umræðu.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Erindi frá BsVest - slit byggðasamlags

Lagt fyrir erindi frá Byggðasamlagi Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks (BsVest) um slit byggðasamlags.

Bæjarráð samþykkti á 51. fundi sínum slit á BsVest og vísaði málinu áfram til staðfestingar bæjarstjórnar.

Til máls tók: Forseti

borið upp til samþykktar
Samþykkt samhljóða

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Sólmyrkvi 12 ágúst 2026

Á 51. fundi bæjarráðs var lögð fram eftirfarandi bókun varðandi sólmyrkvan 12. ágúst 2026:

Fyrirséð er að mikill fjöldi ferðamanna muni sækja Vestfirði heim í tengslum við sólmyrkvann 12. ágúst 2026. Sérstaklega er bent á að almyrkvinn stendur lengst á Látrabjargi, sem gerir svæðið að einum eftirsóttasta áfangastað landsins til að upplifa atburðinn.

Ljóst er að álag á innviði svæðisins verður verulegt og að aðstæður kalla á tafarlausar og markvissar aðgerðir með tilliti til öryggis vegfarenda.

Bæjarráð lýsir verulegum áhyggjum af ástandi vegarins að Látrabjargi, sem á köflum er þröngur, illa farinn og viðkvæmur fyrir auknu umferðarálagi. Vegurinn er ekki í stakk búinn til þess að taka við þeirri umferð sem fyrirsjáanleg er í tengslum við sólmyrkvann.

Bæjarráð skorar á Vegagerðina að leggja tafarlaust mat á öryggi og burðargetu vegarins með hliðsjón af fyrirséðu álagi, ráðast í nauðsynlegar úrbætur þar sem þess er kostur. Bæjarráð lýsir jafnframt áhyggjum af því að ekki liggi fyrir skýr áform eða tryggt fjármagn til að mæta þessum áskorunum, þrátt fyrir fyrirsjáanlegt álag og aukna áhættu.

Bæjarráð bendir jafnframt á að fjarskiptasamband á svæðinu, þar á meðal á leiðinni að Látrabjargi, er ófullnægjandi og hefur versnað verulega eftir að 2G og 3G sendar voru teknir úr notkun. Á köflum er ekkert samband, sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir öryggi vegfarenda.

Í ljósi þess að mikill fjöldi fólks mun sækja svæðið heim á sama tíma er óásættanlegt að ekki sé tryggt lágmarks farsímasamband þannig að hægt sé að ná sambandi við neyðaraðila í gegnum 112.

Bæjarráð skorar á Fjarskiptastofu að fara yfir stöðu fjarskipta á svæðinu með hliðsjón af öryggi vegfarenda, tryggja áreiðanlegt farsímasamband á helstu samgönguæðum og grípa til aðgerða, eftir atvikum með tímabundnum lausnum, fyrir atburðinn sjálfan.

Bæjarráð lýsir áhyggjum af því að ekki liggi fyrir skýr áform eða fjármagn til úrbóta í fjarskiptum þrátt fyrir augljósa og vaxandi öryggisþörf.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja bókun þessari eftir gagnvart Innviðaráðuneytinu, Vegagerðinni og Fjarskiptastofu, með það að markmiði að tryggja að gripið verði til nauðsynlegra aðgerða í tæka tíð.

Til máls tók: Forseti

Bæjarstjórn tekur heilshugar undir bókun bæjarráðs.

Málsnúmer12

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Færsla á kjörstað vegna kosninga 2026

Lagður fram tölvupóstur frá yfirkjörstjórn Vesturbyggar vegna færslu á kjörstað á Patreksfirði en óskar eftir að kjörstaður verði í íþróttahúsinu Bröttuhlíð.

Til máls tók: Forseti

Borið upp til samþykktar
Bæjarstjórn samþykkir kjörstaðinn.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Uppbygging virkjunar í Ósá á Patreksfirði

Lagður fram til samþykktar samningur um Ósárvirkjun.

Til máls tók: Forseti

borið upp til samþykktar
Samþykkt samhljóða, bæjarstjórn felur bæjarstjóra að ganga frá samningi.

Málsnúmer6

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


7. Brjánslækur - aðalskipulagsbreyting

Tekin fyrir óveruleg breyting á aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035. Breytingin var kynnt frá 17.2.2026 til 10.3.2026 þar sem óskað var eftir umsögn Framkvæmdasýslunar-Ríkiseigna. Fyrir liggur einnig umsögn frá Minjastofnun Íslands.

Skipulags- og framkvæmdaráð lagði til á 19. fundi sínum þann 27. mars s.l. að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 36 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda liggur fyrir samþykki Framkvæmdasýslunnar-Ríkiseigna.

Til máls tók: Forseti

Borið upp til samþykktar
Samþykkt samhljóða

Málsnúmer5

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fundargerðir til kynningar

8. Bæjarráð - 50

Lögð fram til kynningar fundargerð 50. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 24. mars 2026. Fundargerðin er í 10 liðum.

Til máls tók: Forseti

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


9. Bæjarráð - 51

Lögð fram til kynningar fundargerð 51. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 7. apríl 2026. Fundargerðin er í 14 liðum.

Til máls tók: Forseti

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


10. Bæjarráð - 52

Lögð fram til kynningar fundargerð 52. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 14. apríl 2026. Fundargerðin er í 7 liðum.

Til máls tók: Forseti

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


11. Bæjarráð - 53

Lögð fram til kynningar fundargerð 53. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 21. apríl 2026. Fundargerðin er í 5 liðum.

Til máls tók: Forseti

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


12. Skipulags- og framkvæmdaráð - 19

Lögð fram til kynningar fundargerð 19. fundar skipulags- og framkvæmdaráðs, fundurinn var haldinn 27. mars 2026. Fundargerðin er í 8 liðum.

Til máls tók: Forseti

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


13. Skipulags- og framkvæmdaráð - 20

Lögð fram til kynningar fundargerð 20. fundar skipulags- og framkvæmdaráðs, fundurinn var haldinn 22. apríl 2026. Fundargerðin er í 6 liðum.

Til máls tók: Forseti

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


14. Heimastjórn Patreksfjarðar - 18

Lögð fram til kynningar fundargerð 18. fundar heimastjórnar Patreksfjarðar, fundurinn var haldinn 8. apríl 2026. Fundargerðin er í 13 liðum.

Til máls tók: Forseti

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


15. Heimastjórn Tálknafjarðar - 19

Lögð fram til kynningar fundargerð 19. fundar heimastjórnar Tálknafjarðar, fundurinn var haldinn 9. apríl 2026. Fundargerðin er í 11 liðum.

Til máls tók: Forseti

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


16. Heimastjórn Arnarfjarðar - 19

Lögð fram til kynningar fundargerð 19. fundar heimastjórnar Arnarfjarðar, fundurinn var haldinn 15. apríl 2026. Fundargerðin er í 9 liðum.

Til máls tók: Forseti

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


17. Fjölskylduráð - 16

Lögð fram til kynningar fundargerð 16. fundar fjölskylduráðs, fundurinn var haldinn 20. mars 2026. Fundargerðin er í 7 liðum.

Til máls tók: Forseti

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


18. Fjölskylduráð - 17

Lögð fram til kynningar fundargerð 17. fundar fjölskylduráðs, fundurinn var haldinn 10. apríl 2026. Fundargerðin er í 4 liðum.

Til máls tók: Forseti

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


19. Almannavarnarnefnd - 9

Lögð fram til kynningar fundargerð 9. fundar almannavarnarnefndar, fundurinn var haldinn 25. mars 2026. Fundargerðin er í 6 liðum.

Til máls tók: Forseti

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:32