Fundur haldinn í Brellum, fundarsal ráðhúsi Vesturbyggðar, 13. maí 2026 og hófst hann kl. 16:30
Nefndarmenn
- Friðbjörg Matthíasdóttir (FM) aðalmaður
- Gunnþórunn Bender (GB) forseti
- Jenný Lára Magnadóttir (JLM) aðalmaður
- Jóhann Örn Hreiðarsson (JÖH) aðalmaður
- Jón Árnason (JÁ) aðalmaður
- Maggý Hjördís Keransdóttir (MHK) aðalmaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Almenn erindi
1. Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri Vesturbyggðar fór yfir helstu verkefni síðustu vikna.
Til máls tóku: Forseti og bæjarstjóri
2. Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050
Beiðni frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga um samþykki tillögu að Svæðisskipulagi Vestfjarða 2025-2050
Bæjarráð tók tillöguna fyrir á 55. fundi sínum þann 12. maí sl. þar sem tillögunni var vísar áfram til staðfestingar bæjarstjórnar.
Til máls tóku: Forseti og JÖH
Borið upp til samþykktar, samþykkt með 6 atkvæðum, JÖH sat hjá.
3. Loftlagsstefna Vesturbyggðar
Lögð fyrir til samþykktar Loftlagsstefna Vesturbyggðar
Bæjarráð tók stefnuna fyrir á 55. fundi sínum þann 12. maí sl. þar sem eftirfarandi var bókað:
Loftlagsstefnan var unnin af umhverfis- og loftlagsráði og tekur mið af þeim lögum sem um þær gilda, en sveitarfélögum er gert skyld að setja sér loftlagsstefnu.
Bæjarráð leggur til að aðgerðaáætlun verði unnin á komandi kjörtímabili, þegar betur liggja fyrir forsendur um fjármögnun, umfang og forgangsröðun aðgerða. Jafnframt er lögð áhersla á að innleiðing aðgerða taki mið af fjárhagslegu svigrúmi sveitarfélagsins hverju sinni og að forgangsröðun verkefna byggi á lögbundnum skyldum og þeim aðgerðum sem skila mestum ávinningi fyrir samfélagið.
Bæjarráð samþykkir loftlagsstefnuna og vísað henni áfram til staðfestingar bæjarstjórnar.
Til mál tóku: Forseti og FM
borið upp til samþykktar, samþykkt samhljóða.
Fundargerðir til kynningar
4. Bæjarráð - 54
Lögð fram til kynningar fundargerð 54. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 29. apríl 2026. Fundargerðin er í 3 liðum.
Til máls tók: Forseti
5. Fjölskylduráð - 18
Lögð fram til kynningar fundargerð 18. fundar fjölskylduráðs, fundurinn var haldinn 5. maí 2026. Fundargerðin er í 4 liðum.
Til máls tók: Forseti
6. Umhverfis- og loftslagsráð - 14
Lögð fram til kynningar fundargerð 14. fundar umhverfis- og loftlagsráðs, fundurinn var haldinn 20. apríl 2026. Fundargerðin er í 4 liðum.
Til máls tók: Forseti
7. Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps - 16
Lögð fram til kynningar fundargerð 16. fundar heimastjórnar fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps, fundurinn var haldinn 16. apríl 2026. Fundargerðin er í 15 liðum.
Til máls tók: Forseti
8. Heimastjórn Patreksfjarðar - 19
Lögð fram til kynningar fundargerð 19. fundar heimastjórnar Patreksfjarðar, fundurinn var haldinn 6. maí 2026. Fundargerðin er í 2 liðum.
Til máls tók: Forseti
9. Heimastjórn Tálknafjarðar - 20
Lögð fram til kynningar fundargerð 20. fundar heimastjórnar Tálknafjarðarhrepps, fundurinn var haldinn 7. maí 2026. Fundargerðin er í 2 liðum.
Til máls tók: Forseti
10. Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps - 17
Lögð fram til kynningar fundargerð 17. fundar heimastjórnar fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps, fundurinn var haldinn 11. maí 2026. Fundargerðin er í 1 lið.
Til máls tók: Forseti
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 00:00
Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 24. fundar miðvikudaginn 13. maí 2026 kl. 16:15 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði. Gunnþórunn Bender forseti kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.