Hoppa yfir valmynd

Bæjarstjórn #25

Fundur haldinn í Brellum, fundarsal ráðhúsi Vesturbyggðar, 20. maí 2026 og hófst hann kl. 16:15

Nefndarmenn
  • Freyja Ragnarsdóttir Pedersen (FRP) varamaður
  • Gunnþórunn Bender (GB) forseti
  • Jenný Lára Magnadóttir (JLM) aðalmaður
  • Jóhann Örn Hreiðarsson (JÖH) aðalmaður
  • Friðbjörn Steinar Ottósson (FSO) varamaður
  • Maggý Hjördís Keransdóttir (MHK) aðalmaður
  • Jónas Snæbjörnsson (JS) varamaður
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri

Fundargerð ritaði
  • Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri

Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 25. fundar miðvikudaginn 20. maí 2026 kl. 16:15 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði. Gunnþórunn Bender forseti kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.

Almenn erindi

1. Ársreikningur Vesturbyggðar 2025

Lagður fram til seinni umræðu ársreikningur Vesturbyggðar og stofnana hans fyrir árið 2025.

Árið 2025 var fyrsta heila rekstrarár sameinaðs sveitarfélags Vesturbyggðar eftir sameiningu Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps sem tók gildi árið 2024. Á árinu var áfram lögð áhersla á að samræma rekstur, stjórnsýslu og þjónustu sveitarfélagsins samhliða því að halda uppi metnaðarfullri uppbyggingu innviða og þjónustu í öllum byggðarkjörnum sveitarfélagsins.

Rekstrartekjur A og B hluta sveitarfélagsins námu 3.066 millj. kr. á árinu 2025, þar af námu rekstrartekjur A hluta 2.592 millj. kr.
Rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 54,0 millj. kr. og rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 115,3 millj. kr. Veltufé frá rekstri A og B hluta nam 405 millj. kr. og handbært fé í árslok nam 33,6 millj. kr.

Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum námu alls 552,6 millj. kr. hjá A og B hluta sveitarfélagsins á árinu. Tekin voru ný langtímalán að fjárhæð 466 millj. kr. og afborganir langtímalána námu 259 millj. kr.

Heildareignir sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum ársreikningi A og B hluta námu 5.280 millj. kr. í árslok 2025 og eigið fé sveitarfélagsins nam 1.382 millj. kr.

Til máls tóku: Forseti, JÖH og FRP.

JÖH leggur fram eftirfarnadi bókun,

"Ég hef áhyggjur af raunverulegri stöðu sveitarfélagsins þótt rekstrarniðurstaða sé jákvæð upp á 115 milljónir en ef sameiningarframlög upp á 173 milljónir væru niðustaðan neikvæð.

Komandi bæjarstjórn þarf að leggja allt kapp á að efla og stækka tekjustofna, því framlag vegna sameiningar fer lækkandi og nýtur ekki lengur við eftir árið 2030.

Ég vil byrja á að þakka fráfarandi bæjarstjórn fyrir samstarfið og óska nýrri bæjarstjórn velfarnaðar. Ég óska þess að komandi bæjarstjórnarfundir verði fjörugri og ekki formsatriði eins og ég upplifði á síðasta tímabili. Ég velti fyrir mér hvort kynningarfundirnir fyrir bæjarstjórnarfundi séu að draga úr krafti sem bæjarstjórnarfundirnir eigi að vera að mínu mati. Einnig óska ég þess að upplýsingar sem eingöngu fara fram í bæjarráði séu einnig kynntar öðrum bæjarfulltrúum.

Farnist ykkur vel á komandi kjörtímabili"

Forseti leggur ársreikninginn fram til samþykktar

Bæjarstjórn samþykkir ársreikning Vesturbyggðar samhljóða.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:32