Hoppa yfir valmynd

Bæjarstjórn #26

Fundur haldinn í Brellum, fundarsal ráðhúsi Vesturbyggðar, 9. júní 2026 og hófst hann kl. 16:30

Nefndarmenn
  • Egill Níelsson (EN) aðalmaður
  • Silja Baldvinsdóttir (SB) varamaður
  • Gunnþórunn Bender (GB) aðalmaður
  • Hlynur Ársælsson (HÁ) aðalmaður
  • Jenný Lára Magnadóttir (JLM) aðalmaður
  • Rebekka Hilmarsdóttir (RH) aðalmaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
  • Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Fundargerð ritaði
  • Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Hljóðupptaka
00:00 / 00:00

Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 26. fundar þriðjudaginn 9. júní 2026 kl. 16:30 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði. Þórkatla Soffía Ólafsdóttir setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.
Þórkatla bar undir fundinn að tekin verði inn afbrigði á dagskrá, liður 8 málsnr. 2606038 Breiðafjarðarferjan Baldur. Dagskrárliðið 8-14 færast niður um einn lið og verða númer 9-15.
Samþykkt samhljóða.

Almenn erindi

1. Stjórnskipan - skipan í ráð og nefndir

ÞSÓ lagði fram tillögu um að Rebekka Hilmarsdóttir skipi stöðu forseta bæjarstjórnar Vesturbyggðar.

Til máls tók: ÞSÓ

Samþykkt samhljóða.

Rebekka Hilmarsdóttir tók við stjórn fundarins sem forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar.

Forseti tilnefnir Þórkötlu Soffíu Ólafsdóttur og Rebekku Hilmarsdóttur sem fulltrúa í bæjarráð, Jenný Lára Magnadóttir og Gunnþórunn Bender sem varafulltrúa Nýrrar sýnar. Fulltrúi Sterkari Vesturbyggð í bæjarráði er tilnefndur Hlynur Ársælsson og Friðbjörg Matthíasdóttir sem varafulltrúi.

Til máls tók: Forseti

Samþykkt samhljóða.

Forseti leggur til að Þórkatla Soffía Ólafsdóttir skipi stöðu formanns bæjarráðs og Rebekka Hilmarsdóttir varaformanns.

Til máls tók: Forseti

Samþykkt samhljóða.

Forseti tilnefnir Jennýu Láru Magnadóttur sem fyrsta varaforseta bæjarstjórnar og Hlyn Ársælsson sem annan varaforseta.

Til máls tók: Forseti

Samþykkt samhljóða.

Kosið í ráð og nefndir skv. samþykkt um stjórn Vesturbyggðar.

Skipulags- og umhverfisráð.

Aðalmenn:
Jóhann Pétur Ágústsson (N) - formaður
Aðalsteinn Magnússon (N)
Steinunn Sigmundsdóttir (N)
Hlynur Ársælsson (V)
Þorbjörn Guðmundsson (V)

Til vara:
Friðbjörn Steinar Ottósson (N)
Jenný Lára Magnadóttir (N)
Gunnþórunn Bender (N)
Friðbjörg Matthíasdóttir (V)
Rúnar Ingi Pétursson (V)

Fjölskylduráð.

Aðalmenn:
Gunnþórunn Bender (N) - formaður
Thelma Dögg Theodórsdóttir (N)
Edda Bára Árnadóttir (N)
Silja Baldvinsdóttir (V)
Jóhann Örn Hreiðarsson (V)

Varamenn:
Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (N)
Rebekka Hilmarsdóttir (N)
Jónas Snæbjörnsson (N)
Egill Níelsson (V)
Silja Ísafoldardóttir (V)

Til máls tók: Forseti

Samþykkt samhljóða.

Jenný Lára Magnadóttir (N) er tilnefnd sem fulltrúi bæjarstjórnar í heimastjórn Patreksfjarðar og Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (N) til vara.

Gunnþórunn Bender (N) er tilnefnd sem fulltrúi bæjarstjórnar í heimastjórn Tálknafjarðar og Rebekka Hilmarsdóttir (N) til vara.

Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (N) er tilnefnd sem fulltrúi bæjarstjórnar í heimastjórn Arnarfjarðar og Jenný Lára Magnadóttir (N) til vara.

Rebekka Hilmarsdóttir (N) er tilnefnd sem fulltrúi bæjarstjórnar í heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps og Gunnþórunn Bender (N) til vara.

Til máls tók: Forseti

Samþykkt samhljóða

Samkvæmt 36. gr. samþykktar um stjórn Vesturbyggðar kýs bæjarstjórn formann úr hópi kosinna aðalmanna í heimastjórnir.

Lögð er fram tillaga um að:

Gunnar Sean Eggertsson skipi formann heimastjórnar Patreksfjarðar.
Jónas Snæbjörnsson skipi formann heimastjórnar Tálknafjarðar.
Freyja Ragnarsdóttir Pedersen skipi formann heimastjórnar Arnarfjarðar.
Elín Eyjólfsdóttir skipi formann heimastjórnar fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps.

Til máls tók: Forseti

Samþykkt samhljóða.

Fulltrúaráð EBÍ - Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands 2026-2030.

Lögð fram tillaga um að Friðbjörg Matthíasdóttir verði fulltrúi Vesturbyggðar.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Fastur fundartími bæjarstjórnar

Lagt er til að fastur fundartími bæjarstjórnar Vesturbyggðar verði þriðja miðvikudag hvers mánaðar klukkan 16:30. Fundarstaður er ráðhús sveitarfélagsins, Aðalstræti 75, Patreksfirði nema annað verði auglýst.

Til mál tók: Forseti

Forseti ber tillöguna upp til samþykktar.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Ráðning bæjarstjóra

Ráðning bæjarstjóra, sbr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga og 69. gr. samþykktar um stjórn Vesturbyggðar, í samræmi við fyrirliggjandi ráðningarsamning.

Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri vék af fundi undir liðnum.

Til máls tóku: Forseti og HÁ

Bæjarstjórn samþykkir ráðningu Gerðar Bjarkar Sveinsdóttur sem bæjarstjóra Vesturbyggðar kjörtímabilið 2026-2030 með fjórum atkvæðum, HÁ, EN og SB sátu hjá.

Gerður Björk Sveinsdóttir kom aftur inná fundinn.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Siðareglur kjörinna fulltrúa

Siðareglur kjörinna fulltrúa lagðara fram, þær voru samþykktar árið 2013 og hafa haldið gildi sínu síðan. Í upphafi hvers kjörtímabils skal sveitarstjórn meta hvort ástæða sé til að endurskoða siðareglurnar sbr. 1. mgr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga 138/2011.

Til máls tók: Forseti

Bæjarstjórn telur siðareglur kjörinna fulltrúa í Vesturbyggð ekki þarfnast endurskoðunar.

Forseti ber siðareglurnar upp til samþykktar.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer7

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Kjörnefnd Fjórðungssambands Vestfirðinga 2026-2030.

Tillaga forseta um kosningu í kjörnefnd Fjórðungssambands Vestfirðinga 2026-2030

Til máls tók: Forseti

Forseti leggur fram tillögu um að Gunnþórunn Bender verði fulltrúi í kjörnefnd.

Forseti ber tillöguna upp til samþykktar.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða 2026-2030

Tillaga forseta um kosningu í svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða 2026-2030.

Til máls tók: Forseti

Forseti leggur fram tillögu um að Friðbjörn Steinar Ottósson og Jenný Lára Magnadóttir verði aðalmenn og Hlynur Ársælsson og Fríða Matthíasdóttir varamenn.

Forseti ber tillöguna upp til samþykktar.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


7. Sumarleyfi bæjarstjórnar

Forseti lagði fram tillögu um sumarleyfi bæjarstjórnar 2026. Með vísan til 3. mgr. 8. gr. og 4. mgr. 32. gr. samþykktar um stjórn Vesturbyggðar nr. 410/2024, er lagt til að sumarfrí bæjarstjórnar verði frá 10. júní til og með 18. ágúst nk. og á þeim tíma hafi bæjarráð Vestubyggðar heimild til fullnaðarafgreiðslu skv. 32. gr. samþykktar um stjórn Vesturbygðar. Næsti fundar bæjarstjórnar er 19. ágúst nk.

Til máls tók: Forseti

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


8. Breiðafjarðarferjan Baldur

Forseti leggur fram tillögu að eftirfarandi bókun.

Bæjarstjórn Vesturbyggðar gerir alvarlegar athugasemdir við ákvörðun Vegagerðarinnar að taka ferjuna Baldur úr áætlunarsiglingum yfir Breiðafjörð í þriðja sinn á skömmum tíma. Bæjarstjórn Vesturbyggðar hefur fullan skilning á þeirri erfiðu stöðu sem uppi er með áætlunarsiglingar Herjólfs til Vestmannaeyja og alvarlegt er að stjórnvöld hafi ekki tryggt þar fullnægjandi samgöngur.
Á sama tíma telur bæjarstjórn það með öllu óboðlegt að þessi staða sem uppi er komi niður á þjónustu í heilum landsfjórðungi sem ekki nýtur samkeppnishæfra innviða, skerðingu á fjölda flugferða og situr uppi með eilífar tafir í vegaframkvæmdum. Hefur þessi ákvörðun Vegagerðarinnar því mjög slæm áhrif á árstíðarbundna ferðaþjónustu á sunnanverðum Vestfjörðum sem er viðkvæm og lítið má út af bregða.

Samráð Vegagerðarinnar við sveitarfélagið eða fyrirtæki á Vestfjörðum var lítið sem ekkert og tilkynnt um að ákvörðun hafi verið tekin án þess að fram hafi farið mat á áhrifum þess.
Í samningi Vegagerðarinnar er að finna heimild til að nýta ferjuna Baldur sem varaskip í þeim tilvikum sem Herjólfur getur ekki siglt, en hvergi í samningnum kemur fram að heimilt sé að nýta Baldur sem varaskip þegar Herjólfur er einnig að sigla og Baldur aðeins nýttur í þeim tilgangi að auka flutningsgetu og þar með þjónustu við Vestmannaeyjar á kostnað Vestfirðinga og íbúa í Flatey.

Krefst Bæjarstjórn Vesturbyggðar þess að Vegagerðin falli frá ákvörðun sinni sem ekki er í samræmi við samning um ferjuna Baldur á meðan Herjólfur er að sigla á milli lands og eyja.

Til máls tók: Forseti

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


9. Landsþing Sambandsins á Akureyri 23-25 september

Lagður fram tölvupóstur frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga vegna landsþings sem haldið verður á Akureyri dagana 23-25. september. Tilnefna ber tvo landsþingsfulltrúa.

Til máls tók: Forseti

Forseti leggur fram tillögu um að Þórkatla Soffía Ólafsdóttir og Hlynur Ársælsson verði landsþingsfulltrúar Vesturbyggðar.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


10. Bjarkargata 9, Patreksfirði. Lóð og byggingaráform

Tekið fyrir eftir grenndarkynningu óveruleg breyting á á deiliskipulagi íbúðabyggðar og ofanflóðvarnargarða Urðir-Mýrar. Tillagan var grenndarkynnt frá 10. apríl til 8. maí 2026. Fyrir liggur umsögn frá Minjastofnun Íslands sem gerði ekki athugasemdir við breytinguna.

Skipulags- og framkvæmdaráð lagði til við heimastjórn Patreksfjarðar á 21. fundi sínum þann 27. maí að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Þar sem nýjar heimastjórnir hafa ekki tekið til starfa eftir kosningar er málinu vísað til bæjarstjórnar Vesturbyggðar.

Þórkatla Soffía Ólafsdóttir vék af fundi undir liðnum. Friðbjörn Steinar Ottósson kom inn á fundinn.

Til máls tók: Forseti

Bæjarstjórn samþykkir að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Þórkatla Soffía Ólafsdóttir kom aftur inn á fundinn.

Friðbjörn Steinar vék af fundi.

Málsnúmer5

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


11. Umsókn um framkvæmdaleyfi - Vegagerð Miklidalur.

Tekið fyrir erindi Vegagerðarinnar dagsett 21. maí 2026. Í erindinu er óskað eftir framkvæmdaleyfi vegna styrkingar og endurbyggingar Bíldudalsvegar (63): Um Mikladal, 2 áfangi. Fyrirhuguð framkvæmd er á um 3,9 km kafla og liggur um lönd Geirseyrar og Höfðadals. Framkvæmdin felur í sér breikkun og styrkingu vegarins, nýlögn ræsa ásamt nýlögn bundins slitlags.

Á fundi sínum þann 27. maí s.l. tók Skipulags- og framkvæmdaráð undir mikilvægi þess að bæta burð, styrk og breidd Bíldudalsvegar í samræmi við markmið framkvæmdarinnar og þau veghönnunarviðmið sem fram koma í umsókn Vegagerðarinnar um veg af tegund C8.

Á fundinum vildi ráðið þó koma á framfæri verulegum áhyggjum af fyrirhuguðum langhalla vegarins. Samkvæmt framlögðum gögnum er langhalli á köflum um 9-10% og mestur 11,6%, sem verður að teljast verulega mikill fyrir almennan þjóðveg og umfram þau viðmið sem almennt eru höfð til hliðsjónar við hönnun þjóðvega innanlands.

Ráðið telur mikilvægt að sérstaklega verði farið yfir áhrif þessa mikla langhalla með tilliti til umferðaröryggis, vetrarþjónustu, umferðar þungaflutninga og þjónustustigs vegarins til framtíðar. Þá óskar ráðið eftir því að Vegagerðin geri nánari grein fyrir þeim hönnunarforsendum og mótvægisaðgerðum sem liggja að baki þessari útfærslu.

Skipulags- og framkvæmdaráð lagði til við heimastjórn Patreksfjarðar og heimastjórn Tálknafjarðar að erindið verði samþykkt og að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir framkvæmdinni. Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir með tilvísan í 8. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og 44.gr skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna ofangreinda umsókn um framkvæmdaleyfi. Fyrir liggur samþykki landeigenda.

Þar sem nýjar heimastjórnir hafa ekki tekið til starfa eftir kosningar er málinu vísað til bæjarstjórnar Vesturbyggðar.

Til máls tók: Forseti

Bæjarstjórn samþykkir erindið að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir framkvæmdinni. Bæjarstjórn samþykkir með tilvísan í 8. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og 44.gr skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna ofangreinda umsókn um framkvæmdaleyfi.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


12. Deiliskipulag hafnar- og þjónustusvæðis á Patreksfirði - Breyting.

Tekið fyrir afgreiðslubréf Skipulagsstofnunar dagsett 18. maí 2026 ásamt leiðréttum skipulagsgögnum þar sem tekið hefur verið tillit til athugasemda Skipulagsstofnunar.

Gerðar hafa verið nokkrar breytingar á skipulagsgögnum sem fela í sér eftirfarandi atriði. Uppdráttur og greinargerð hafa verið aðskilin og breytingar númeraðar. Skráðar minjar færðar inn á uppdrátt. Gert grein fyrir umfangi landfyllingar, gert grein fyrir áhrifum á vatnshlot og uppdráttur yfirfarinn.

Skipulags- og framkvæmdaráð lagði til við heimastjórn Patreksfjarðar á 21. fundi sínum þann 27. maí að breytingarnar sem gerðar hafa verið á tillögunni verði samþykktar og skipulagsfulltrúa falin fullnaðarafgreiðsla á deiliskipulaginu í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að undangenginni óverulegri breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar.

Þar sem nýjar heimastjórnir hafa ekki tekið til starfa eftir kosningar er málinu vísað til bæjarstjórnar Vesturbyggðar.

Til máls tók: Forseti

Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar og felur skipulagsfulltrúa fullnaðarafgreiðslu á deiliskipulaginu í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að undangenginni óverulegri breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar.

Málsnúmer9

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

13. Sveitarstjórnarkosningar 2026 úrslit

Niðurstöður sveitarstjórnarkosninga 2026 og niðurstöður í heimastjórnarkosningum 2026 ásamt greinargerð yfirkjörstjórnar og kosningaskýrslu lagðar fram til kynningar.

Til máls tóku: Forseti og bæjarstjóri

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fundargerðir til kynningar

14. Bæjarráð - 56

Lögð fram til kynningar fundargerð 56. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 27. maí 2026. Fundargerðin er í 9 liðum.

Til máls tók: Forseti

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


15. Skipulags- og framkvæmdaráð - 21

Lögð fram til kynningar fundargerð 21. fundar skipulags- og framkvæmdaráðs, fundurinn var haldinn 27. maí 2026. Fundargerðin er í 3 liðum.

Til máls tók: Forseti

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:15