Fundur haldinn í Brellum, fundarsal ráðhúsi Vesturbyggðar, 22. september 2026 og hófst hann kl. 16:30
Nefndarmenn
- Egill Níelsson (EN) aðalmaður
- Friðbjörg Matthíasdóttir (FM) aðalmaður
- Gunnþórunn Bender (GB) aðalmaður
- Hlynur Ársælsson (HÁ) aðalmaður
- Jenný Lára Magnadóttir (JLM) aðalmaður
- Rebekka Hilmarsdóttir (RH) aðalmaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
- Halla Guðrún Jónsdóttir (HGJ) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði
- Halla Guðrún Jónsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Hljóðupptaka
Almenn erindi
1. Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri Vesturbyggðar fór yfir helstu verkefni síðustu vikna.
Til máls tóku: Forseti, bæjarstjóri og FM.
FM lagði til að skýrsla bæjarstjóra yrði framvegis birt á heimasíðu sveitarfélagsins, til upplýsinga fyrir íbúa.
2. Fjárhagsáætlun 2026 - viðaukar
Lagður fram viðauki 3 við fjárhagsáætlun 2026. Viðaukanum er ætlað að mæta hærri kostnaði en áætlaður var í fjárhagsáætlun 2026 við nýbyggingu Bíldudalsskóla.
Til máls tóku: Forseti, bæjarstjóri, HÁ og FM.
Bæjarstjóri kynnti kostnaðarstöðu vegna nýbyggingar Bíldudalsskóla, fór yfir helstu skýringar á kostnaðarfráviki verkefnisins, greiningu á málinu og fyrirhugaðar úrbætur á verklagi sveitarfélagsins.
Minnihluti bæjarstjórnar lagði fram eftirfarandi bókun:
Minnihluti bæjarstjórnar samþykkir viðauka 3 við fjárhagsáætlun 2026 þar sem tryggja verður nauðsynlegt fjármagn til að ljúka framkvæmdum við Bíldudalsskóla. Samþykkið felur þó hvorki í sér staðfestingu á fyrri meðferð málsins né að málið teljist að fullu upplýst eða afgreitt.
Framkvæmdir við Bíldudalsskóla hófust árið 2023. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum hækkar áætlaður heildarkostnaður úr 653 m.kr. í 804 m.kr. Kostnaðarfrávikið nemur því um 151 m.kr., eða 23% af upphaflegri kostnaðaráætlun.
Það er að mati minnihlutans óskiljanlegt að svo verulegt frávik hafi getað safnast upp á tæplega þremur árum án þess að það kæmi fyrr fram í kostnaðareftirliti og upplýsingagjöf til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Enn alvarlegra er að fram kemur að viðbótarverk hafi verið samþykkt án þess að viðeigandi fjárheimilda væri aflað.
Í 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 kemur fram að fjárhagsáætlun sveitarfélags sé bindandi fyrir allar fjárhagslegar ráðstafanir þess. Óheimilt er að víkja frá fjárhagsáætlun nema sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka. Ákvæðið tekur meðal annars til ákvarðana, samninga og annarra fjárhagslegra ráðstafana sem breyta útgjöldum eða skuldbindingum sveitarfélagsins.
Núverandi meirihluti og bæjarstjóri bera pólitíska og stjórnsýslulega ábyrgð á því að fjármálastjórn sveitarfélagsins, kostnaðareftirlit og upplýsingagjöf til kjörinna fulltrúa séu með fullnægjandi hætti.
Fyrirliggjandi gögn sýna að eftirlits- og upplýsingakerfi sveitarfélagsins brugðust í þessu máli. Meirihlutinn getur ekki látið nægja að viðurkenna almennt að verklagi hafi verið ábótavant án þess að upplýsa jafnframt hvernig þetta gat gerst, hverjir tóku einstakar ákvarðanir og hvers vegna ekki var brugðist við fyrr.
Minnihlutinn telur nauðsynlegt að óháður aðili fari yfir framkvæmdina frá upphafi og að niðurstöður verði lagðar fyrir bæjarstjórn sem allra fyrst.
Minnihlutinn mælist einnig til þess að komið verði á mánaðarlegri skýrslugjöf til bæjarráðs vegna stærri framkvæmda þar sem fram komi samþykkt fjárheimild, bókfærður kostnaður, skuldbundinn kostnaður, samþykkt viðbótarverk og uppfærð lokakostnaðarspá.
Við teljum nauðsynlegt að ljúka framkvæmdum við Bíldudalsskóla, en það má hins vegar ekki gera með þeim hætti að viðaukinn verði látinn loka málinu eða draga úr ábyrgð þeirra sem báru ábyrgð á fjármálastjórn, framkvæmdareftirliti og upplýsingagjöf.
Bæjarbúar eiga rétt á fullnægjandi skýringum á því hvernig 151 m.kr. kostnaðarfrávik gat komið svona seint í ljós.
Meirihluti bæjarstjórnar lagði fram eftirfarandi bókun:
Lagður fram viðauki 3 við fjárhagsáætlun 2026. Viðaukanum er ætlað að mæta hærri kostnaði en áætlaður var í fjárhagsáætlun 2026 við nýbyggingu Bíldudalsskóla. Kostnaðurinn nemur samtals 151 m.kr. Mætir það kostnaði til að ljúka framkvæmdunum við Bíldudalsskóla. Meginástæður kostnaðarins má rekja til þess að á framkvæmdatímanum frá 2023 var hönnunar-, ráðgjafar- og eftirlitskostnaður og kostnaður við gerð útboðsgagna og byggingaeftirlit vanáætlaður. Á framkvæmdatíma voru einnig samþykkt viðbótarverk sem ekki var aflað viðeigandi fjárheimilda fyrir. Þá reyndist eftirlit með kostnaðarþróun verkefnisins ábótavant og komu því kostnaðarfrávik vegna framkvæmdarinnar ekki fram fyrr en nú.
Viðaukanum er mætt með lækkun á áður áætluðum fjárfestingarverkefnum innan fjárfestingaáætlunar ársins 2026. Þannig er lagt til að fresta fram á næsta ár framkvæmdum sem ekki eru hafnar. Um er að ræða útboði á niðurrifi Straumness, kaupum á timbri við Bíldudalshöfn, kaupum á tækjum, áætluðum framkvæmdum við götur, opin svæði, ljósleiðaralagningu og framkvæmdir við félagsheimili Patreksfjarðar. Samtals nema þau fjárfestingaverkefni samtals 159,9 m. kr.
Undirbúningur og framkvæmd við Bíldudalsskóla sem og kostnaðarþróun framkvæmdarinnar hafa verið teknar til ítarlegrar skoðunar og greiningar af hálfu sveitarfélagsins og hefur sú vinna varpað ljósi á þá þætti í undirbúningi, áætlanagerð, fjárheimildastýringu og eftirfylgni sem þarfnast úrbóta. Þegar er hafin vinna við að innleiða breytingar á verklagi við undirbúning, kostnaðarmat, kostnaðareftirlit og upplýsingagjöf vegna fjárfestingarverkefna. Markmið þeirrar vinnu er að tryggja raunhæfari kostnaðaráætlanir, skilvirkara eftirlit með framvindu verkefna og skýrari upplýsingagjöf.
Samhliða er fjárheimild slökkviliðs til tækjakaupa í rekstri lækkuð um 1,2 m.kr. og hækkuð um sömu upphæð í fjárfestingu.
Rekstrarniðurstaða A-hluta og samstæðu A- og B-hluta batnar um 1,2 m.kr. Rekstrarniðurstaða A-hluta verður því 19,1 m.kr. og rekstrarniðurstaða samstæðu A- og B-hluta verður 84,0 m.kr. Handbært fé A-hluta lækkar um 87,8 m.kr. og verður 1,9 m.kr. í árslok. Handbært fé A- og B-hluta hækkar um 9,4 m.kr. og verður 102,2 m.kr.
Meirihluti bæjarstjórnar telur mikilvægt að dreginn verði lærdómur af verkefninu og leggur ríka áherslu á að stjórnendur sveitarfélagsins tryggi að þær úrbætur sem nú hefur verið ákveðið að ráðast í verði innleiddar.
Viðauki 3 var borinn upp til samþykktar og var samþykktur samhljóða.
3. Aðalskipulagsbreyting - Strengfell og Krossholt
Lögð fram skipulagslýsing vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035, dags. ágúst 2026. Breytingin fjallar annars vegar um að skilgreina nýtt afþreyingar- og ferðamannasvæði við Strengfell ofan Bíldudals vegna fyrirhugaðs áningar- og útsýnisstaðar og hins vegar um stækkun íbúðarsvæðis ÍB17 við Krossholt vegna einnar nýrrar íbúðarlóðar.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkti skipulagslýsinguna á 3. fundi sínum þann 26. ágúst með viðbótum þar sem gera skuli ráð fyrir fjórum nýjum lóðum í heildina á Krossholtum og fól skipulagsfulltrúa að kynna hana í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og leita umsagna HMS og annarra umsagnaraðila eftir því sem við á.
Til máls tók: Forseti.
Bæjarstjórn samþykkir skipulagslýsinguna og felur skipulagsfulltrúa að kynna hana í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fundargerðir til kynningar
4. Bæjarráð - 61
Lögð fram til kynningar fundargerð 61. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 1. september 2026. Fundargerðin er í 6 liðum.
Til máls tók: Forseti.
5. Bæjarráð - 62
Lögð fram til kynningar fundargerð 62. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 8. september 2026. Fundargerðin er í 4 liðum.
Til máls tók: Forseti.
6. Bæjarráð - 63
Lögð fram til kynningar fundargerð 63. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 15. september 2026. Fundargerðin er í 6 liðum.
Til máls tók: Forseti.
7. Skipulags- og umhverfisráð - 3
Lögð fram til kynningar fundargerð 3. fundar skipulags- og framkvæmdaráðs, fundurinn var haldinn 26. ágúst 2026. Fundargerðin er í 5 liðum.
Til máls tók: Forseti.
8. Fjölskylduráð - 19
Lögð fram til kynningar fundargerð 19. fundar fjölskylduráðs, fundurinn var haldinn 2. september 2026. Fundargerðin er í 5 liðum.
Til máls tók: Forseti.
9. Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps - 20.
Lögð fram til kynningar fundargerð 20. fundar heimastjórnar fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps, fundurinn var haldinn 10. september 2026. Fundargerðin er í 2 liðum.
Til máls tók: Forseti.
10. Heimastjórn Tálknafjarðar - 23
Lögð fram til kynningar fundargerð 23. fundar heimastjórnar Tálknafjarðar, fundurinn var haldinn 3. september 2026. Fundargerðin er í 2 liðum.
Til máls tók: Forseti.
11. Heimastjórn Patreksfjarðar - 22
Lögð fram til kynningar fundargerð 22. fundar heimastjórnar Patreksfjarðar, fundurinn var haldinn 2. september 2026. Fundargerðin er í einum lið.
Til máls tók: Forseti.
12. Heimastjórn Arnarfjarðar - 22
Lögð fram til kynningar fundargerð 22. fundar heimastjórnar Arnarfjarðar, fundurinn var haldinn 14. september 2026. Fundargerðin er í einum lið.
Til máls tók: Forseti.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:15
Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 28. fundar þriðjudaginn 22. september 2026 kl. 16:30 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði. Forseti setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.
Forseti bar undir fundinn að tekin verði inn afbrigði á dagskrá, liður 3 málsnr. 2608077 Aðalskipulagsbreyting - Strengfell og Krossholt. Dagskrárliðið 3-12 færast niður um einn lið og verða númer 4-13.
Samþykkt samhljóða.