Fundur haldinn í Brellum, fundarsal ráðhúsi Vesturbyggðar, 21. október 2026 og hófst hann kl. 16:30
Nefndarmenn
- Egill Níelsson (EN) aðalmaður
- Silja Baldvinsdóttir (SB) varamaður
- Gunnþórunn Bender (GB) aðalmaður
- Hlynur Ársælsson (HÁ) aðalmaður
- Jenný Lára Magnadóttir (JLM) aðalmaður
- Friðbjörn Steinar Ottósson (FSO) varamaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
- Halla Guðrún Jónsdóttir (HGJ) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði
- Halla Guðrún Jónsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Hljóðupptaka
Almenn erindi
1. Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri Vesturbyggðar fór yfir helstu verkefni síðustu vikna.
Til máls tóku: Varaforseti og bæjarstjóri.
2. Endurskoðun á reglum um úthlutun lóða í Vesturbyggð.
Fyrir liggur tillaga skipulags- og umhverfisráðs um breytingu á 2. gr. reglna Vesturbyggðar um úthlutun lóða. Breytingin felur í sér að bæjarstjórn verði heimilt að úthluta lóð án auglýsingar þegar umsækjandi hefur að eigin frumkvæði óskað eftir afmörkun nýrrar lóðar eða byggingarréttar á óskipulögðu eða óúthlutuðu svæði.
Í tillögu skipulags- og umhverfisráðs kemur fram að ráðið telji breytinguna stuðla að auknu frumkvæði og uppbyggingu innan sveitarfélagsins. Þá kemur fram að ráðið telji að breytingin geri sveitarfélaginu kleift að bregðast við nýjum hugmyndum og verkefnum sem verða til að frumkvæði einstaklinga eða fyrirtækja.
Til máls tók: Varaforseti.
Bæjarstjórn fjallaði um tillögu skipulags- og umhverfisráðs um breytinguna. Tilefni breytingarinnar er að skýra og rýmka heimildir sveitarfélagsins til úthlutunar lóða í þeim tilvikum þegar umsækjandi hefur að eigin frumkvæði óskað eftir afmörkun nýrrar lóðar eða byggingarréttar á óskipulögðu eða óúthlutuðu svæði.
Bæjarstjórn telur breytinguna auka stuðning sveitarfélagsins við frumkvæði einstaklinga og fyrirtækja og samþykkir breytinguna samhljóða. Bæjarstjórn felur byggingarfulltrúa að uppfæra og birta reglurnar.
Fundargerðir til kynningar
3. Bæjarráð - 65
Lögð fram til kynningar fundargerð 65. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 28. september 2026. Fundargerðin er í 8 liðum.
Til máls tók: Varaforseti.
4. Bæjarráð - 66
Lögð fram til kynningar fundargerð 66. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 13. október 2026. Fundargerðin er í 16 liðum.
Til máls tók: Varaforseti.
5. Skipulags- og umhverfisráð - 4
Lögð fram til kynningar fundargerð 4. fundar skipulags- og umhverfisráðs, fundurinn var haldinn 23. september 2026. Fundargerðin er í 8 liðum.
Til máls tók: Varaforseti.
6. Fjölskylduráð - 20
Lögð fram til kynningar fundargerð 20. fundar fjölskylduráðs, fundurinn var haldinn 7. október 2026. Fundargerðin er í 7 liðum.
Til máls tók: Varaforseti.
7. Heimastjórn Arnarfjarðar - 23
Lögð fram til kynningar fundargerð 23. fundar heimastjórnar Arnarfjarðar, fundurinn var haldinn 12. október 2026. Fundargerðin er í 3 liðum.
Til máls tók: Varaforseti.
8. Heimastjórn Patreksfjarðar - 23
Lögð fram til kynningar fundargerð 23. fundar heimastjórnar Patreksfjarðar, fundurinn var haldinn 7. október 2026. Fundargerðin er í 4 liðum.
Til máls tók: Varaforseti.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:50
Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 29. fundar miðvikudaginn 21. október 2026 kl. 16:30 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði.
Varaforseti setti fundinn í fjarveru forseta og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.