Hoppa yfir valmynd

Bæjarstjórn #30

Fundur haldinn í Brellum, fundarsal ráðhúsi Vesturbyggðar, 25. nóvember 2026 og hófst hann kl. 16:30

Nefndarmenn
  • Egill Níelsson (EN) aðalmaður
  • Friðbjörg Matthíasdóttir (FM) aðalmaður
  • Gunnþórunn Bender (GB) aðalmaður
  • Hlynur Ársælsson (HÁ) aðalmaður
  • Jenný Lára Magnadóttir (JLM) aðalmaður
  • Rebekka Hilmarsdóttir (RH) aðalmaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
  • Halla Guðrún Jónsdóttir (HGJ) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Fundargerð ritaði
  • Halla Guðrún Jónsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Hljóðupptaka
00:00 / 00:00

Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 30. fundar miðvikudaginn 25. nóvember 2026 kl. 16:30 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði. Forseti setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.

Almenn erindi

1. Skýrsla bæjarstjóra

Bæjarstjóri Vesturbyggðar fór yfir helstu verkefni síðustu vikna.

Til máls tóku: Forseti og bæjarstjóri.

Málsnúmer22

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Fjárhagsáætlun 2027 - 2030

Lögð er fram, til fyrri umræðu, tillaga að fjárhagsáætlun Vesturbyggðar 2027, auk þriggja ára áætlun fyrir árin 2028-2030.

Til máls tók: Forseti.

Bæjarstjórn vísar frumvarpi að fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030 til seinni umræðu sem verður í desember.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer24

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Gjaldskrár 2027

Lagðar fyrir í fyrri umræðu gjaldskrár Vesturbyggðar fyrir árið 2027.

Lagt er til að gjaldastuðlar á árinu 2027 verði eftirfarandi:
Fasteignaskattur A-flokkur 0,48%
Fasteignaskattur B-flokkur 1,32%
Fasteignaskattur C-flokkur 1,65%
Vatnsgjald íbúðarhúsnæði 0,20%
Vatnsgjald annað húsnæði 0,50%
Fráveitugjald íbúðarhúsnæði 0,20%
Fráveitugjald annað húsnæði 0,50%
Lóðaleiga íbúðarhúsnæði 2,50%
Lóðaleiga annað húsnæði 3,75%

Til máls tók: Forseti.

Bæjarstjórn vísar gjaldskrám 2027 til seinni umræðu sem verður í desember.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Álagningarhlutfall útsvars 2027

Lögð fyrir tillaga bæjarráðs frá 68. fundi ráðsins þar sem lagt er til að álagningarhlutfall útsvars haldist óbreytt frá fyrra ári og verði 14,97%.

Til máls tók: Forseti.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs um að útsvarshlutfall fyrir árið 2027 haldist óbreytt frá fyrra ári og verði 14,97%.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Fjárhagsáætlun 2026 - viðaukar

Lagður fram viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2026. Viðaukinn er til kominn vegna tveggja atriða.

Annars vegar er viðaukanum ætlað að mæta kostnaði vegna nauðsynlegra viðgerða við húsnæði Patreksskóla. Viðaukanum er mætt með lækkun á áður áætluðum fjárfestingarverkefnum innan fjárfestingaáætlunar ársins 2026. Þannig er lagt til að fresta fram á næsta ár framkvæmdum við vatnsveitu Vesturbyggðar sem ekki eru hafnar.

Hins vegar er um að ræða tilfærslu á kostnaðar- og tekjuliðum milli málaflokka. Tilfærslan er til komin vegna breytinga á reglugerð nr. 1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga. Breytingin hefur engin áhrif á rekstrarniðurstöðu né handbært fé, aðeins er um að ræða breytingu á framsetningu málaflokka í bókhaldi sveitarfélagsins.

Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu í A-hluta né samstæðu A- og B-hluta. Handbært fé lækkar um 8 m.kr. í A-hluta og hækkar á móti um sömu fjárhæð í B-hluta en helst óbreytt í samstæðu A- og B-hluta.

Til máls tók: Forseti.

Bæjarstjórn samþykkir viðaukann samhljóða.

Málsnúmer7

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Svæðisbundin farsældaráætlun Vestfjarða 2026-2030

Lögð fyrir svæðisbundin forgangsröðun aðgerða vegna farsældar.

Forgangsaðgerðirnar eru fimm talsins, þ.e. um sameiginlegt verklag, samræmda fræðsluáætlun, sameiginlegt yfirlit yfir úrræði og þjónustu, samþættan stuðning frá fyrstu stundu og eflingu félagsmiðstöðvastarfs. Ekki er gert ráð fyrir sérstöku fjárframlagi til verkefnanna á árinu 2027.

Lagt er til að sveitarfélagið undirriti viljayfirlýsingu um forgangsaðgerðirnar fimm á farsældarþingi Vestfjarða þann 1. desember 2026.

Til máls tóku: Forseti, FM og bæjarstjóri.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer5

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


7. Aðalskipulag - Bíldudalslína. Óveruleg breyting á þéttbýlis- og dreifbýlisuppdrætti.

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035 vegna fyrirhugaðrar lagningar Bíldudalslínu í jarðstreng í tengslum við framkvæmdir við ofanflóðavarnir ofan Bíldudals, ásamt greinargerð og gátlista vegna mats á því hvort breytingin geti talist óveruleg.

Breytingin felur í sér að um 1,5 km kafli núverandi loftlínu verður lagður í um 2 km langan jarðstreng. Lega línunnar verður færð til á skipulagsuppdrætti til samræmis við fyrirhugaða staðsetningu ofanflóðavarnargarða.

Skipulags- og umhverfisráð fjallaði um málið á fundi sínum 28. október 2026 og taldi að breytingin gæti talist óveruleg samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ráðið samþykkti tillöguna fyrir sitt leyti og lagði til við bæjarstjórn Vesturbyggðar að hún yrði samþykkt og send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til staðfestingar.

Heimastjórn Arnarfjarðar tók málið fyrir á fundi sínum 29. október 2026. Heimastjórnin tók undir mat skipulags- og umhverfisráðs um að fyrirhuguð breyting á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035 geti talist óveruleg samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Heimastjórnin gerði ekki athugasemdir við tillöguna og tók undir tillögu skipulags- og umhverfisráðs um að bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykki breytinguna og sendi hana Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til staðfestingar.

Til máls tók: Forseti.

Bæjarstjórn samþykkir breytinguna samhljóða og felur byggingafulltrúa að senda hana til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til staðfestingar.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


8. Norður-Botn, Tálknafirði. Nýtt skotíþróttasvæði.

Lögð fram skipulags- og matslýsing, dags. 15. október 2026, vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Tálknafjarðarhrepps 2019-2039 og deiliskipulagi Norður-Botns í Tálknafirði.

Breytingarnar eru unnar vegna áforma Skotíþróttafélags Vestfjarða um uppbyggingu skotíþróttasvæðis í Botnsdal, þar sem fyrirhugað er að koma fyrir leirdúfu- og riffilskotvöllum ásamt tilheyrandi aðstöðu.

Skipulags- og umhverfisráð fjallaði um málið 28. október 2026 og samþykkti lýsinguna fyrir sitt leyti. Ráðið lagði til við bæjarstjórn og heimastjórn Tálknafjarðar að hún yrði samþykkt til kynningar og umsagnar í samræmi við skipulagslög.

Heimastjórn Tálknafjarðar fjallaði í kjölfarið um málið á fundi sínum 5. nóvember 2026 þar sem heimastjórnin tók jákvætt í fyrirhugaða skipulagsvinnu og samþykkti skipulags- og matslýsinguna fyrir sitt leyti. Lagði heimastjórnin til við bæjarstjórn að lýsingin verði samþykkt til kynningar og umsagnar í samræmi við skipulagslög.

Málið er lagt fram til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Til máls tók: Forseti.

Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkir framlagða skipulags- og matslýsingu vegna fyrirhugaðra breytinga á Aðalskipulagi Tálknafjarðarhrepps 2019-2039 og deiliskipulagi Norður-Botns í Tálknafirði.

Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að kynna lýsinguna og óska umsagna í samræmi við 1. mgr. 30. gr. og 40. gr., sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer5

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


9. Brjánslækur - aðalskipulagsbreyting

Lögð fram til afgreiðslu uppfærð tillaga að deiliskipulagi fyrir Brjánslæk 1 á Barðaströnd, ásamt umsögnum sem bárust á auglýsingartíma tillögunnar frá 24. ágúst til 5. október 2026 og bókun skipulags- og umhverfisráðs og heimastjórnar fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps.

Umsagnir bárust frá Slökkviliði Vesturbyggðar, Náttúruverndarstofnun, Vegagerðinni og Minjastofnun Íslands. Brugðist hefur verið við framkomnum ábendingum í uppfærðum skipulagsgögnum, meðal annars varðandi brunavarnir, fornleifar, aðkomu, bílastæði og aðlögun mannvirkja að umhverfi.

Skipulags- og umhverfisráð telur að brugðist hafi verið við umsögnum með fullnægjandi hætti og að breytingar á tillögunni kalli ekki á endurauglýsingu. Ráðið samþykkti tillöguna fyrir sitt leyti og vísaði henni til heimastjórnar til afgreiðslu, samhliða breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035 vegna verslunar- og þjónustusvæðis VÞ8.

Á 21. fundi heimastjórnar fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps þann 19. nóvember 2026 tók heimastjórnin undir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs og telur að brugðist hafi verið við framkomnum umsögnum með fullnægjandi hætti.

Til máls tók: Forseti.

Bæjarstjórn samþykkir uppfærða tillögu að deiliskipulagi fyrir Brjánslæk 1 á Barðaströnd. Samhliða tekur bæjarstjórn undir álit skipulags- og umhverfisráðs og heimastjórnar fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps um að brugðist hafi verið við umsögnum með fullnægjandi hætti og að breytingar á tillögunni kalli ekki á endurauglýsingu. Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að annast framhald málsins og lögformlega afgreiðslu þess.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer9

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fundargerðir til kynningar

10. Bæjarráð - 67

Lögð fram til kynningar fundargerð 67. fundar bæjarráðs. Fundurinn var haldinn 30. október 2026 og er fundargerðin í 15 liðum.

Til máls tók: Forseti.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


11. Bæjarráð - 68

Lögð fram til kynningar fundargerð 68. fundar bæjarráðs. Fundurinn var haldinn 10. nóvember 2026 og er fundargerðin í 17 liðum.

Til máls tók: Forseti.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


12. Skipulags- og umhverfisráð - 5

Lögð fram til kynningar fundargerð 5. fundar skipulags- og umhverfisráðs. Fundurinn var haldinn 28. október 2026 og er fundargerðin í 11 liðum.

Til máls tók: Forseti.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


13. Fjölskylduráð - 21

Lögð fram til kynningar fundargerð 21. fundar fjölskylduráðs. Fundurinn var haldinn 11. nóvember 2026 og er fundargerðin í 5 liðum.

Til máls tók: Forseti.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


14. Heimastjórn Arnarfjarðar - 24

Lögð fram til kynningar fundargerð 24. fundar heimastjórnar Arnarfjarðar. Fundurinn var haldinn 29. október 2026 og er fundargerðin í 3 liðum.

Til máls tók: Forseti.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


15. Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps - 22

Lögð fram til kynningar fundargerð 22. fundar heimastjórnar fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps. Fundurinn var haldinn 19. nóvember 2026 og er fundargerðin í 2 liðum.

Til máls tók: Forseti.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


16. Heimastjórn Tálknafjarðar - 24

Lögð fram til kynningar fundargerð 24. fundar heimastjórnar Tálknafjarðar. Fundurinn var haldinn 5. nóvember 2026 og er fundargerðin í 3 liðum.

Til máls tók: Forseti.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


17. Bæjarráð - 69

Lögð fram til kynningar fundargerð 69. fundar bæjarráðs. Fundurinn var haldinn 24. nóvember 2026 og er fundargerðin í 15 liðum.

Til máls tóku: Forseti, FM, bæjarstjóri og GB.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:21