Hoppa yfir valmynd

Fjölskylduráð #9

Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 14. apríl 2025 og hófst hann kl. 13:00

Nefndarmenn
  • Jóhann Örn Hreiðarsson (JÖH) aðalmaður
  • Páll Vilhjálmsson (PV) aðalmaður
  • Freyja Ragnarsdóttir Pedersen (FRP) varamaður
  • Klara Berglind Hjálmsdóttir (KH) varamaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
  • Magnús Arnar Sveinbjörnsson (MAS) ritari

Fundargerð ritaði
  • Magnús Arnar Sveinbjörnsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs

Almenn erindi

1. Umhverfisstefna Vesturbyggðar

Bréf frá formanni umhverfis- og loftslagsráðs varðandi áherslur fræðslumála í umhverfis- og loftslagsmálum vegna vinnu við umhverfisstefnu Vesturbyggðar.

Fjölskylduráð felur sviðsstjóra að taka saman viðeigandi gögn og koma þeim til umhverfis- og loftslagsráðs.

Málsnúmer13

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Stefnumótun í íþróttum og tómstundum

Umræða um stefnu íþróttum og tómstundum. Tómstundafulltrúi, Hafdís Helga Bjarnadóttir tekur sæti undir þessum lið.

Fyrir liggur að farið verði í stefnumótun í íþróttamálum. Tómstundafulltrúi leggur til að tómstundir verði hluti af heildstæðri stefnumótun í íþrótta- og tómstundamálum.

Fjölskylduráð samþykkir tillöguna.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Tillaga að breytingum á reglum um ungmennaráð

Umræða um ungmennaráð. Tómstundafulltrúi, Hafdís Helga Bjarnadóttir tekur sæti undir þessum lið.

Tillögur að breytingum á reglugerð um ungmennaráð voru kynntar. Nokkrar breytingar voru gerðar á orðalagi og breytingar á reglugerðinni samþykktar.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Gott að eldast, samstarfssamningur og staða verkefnis

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti stöðu verkefninsins Gott að eldast. Til stendur að Vesturbyggð og Heilbrigðisstofnun fundi á næstunni um framgang verkefnisins og samstarfsins.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Farsældarþing í Vesturbyggð

Arnheiður Jónsdóttir greinir frá farsældarþingi sem haldið var í lok mars.

Á farsældarþing mættu fulltrúar skóla og félagsþjónustu, lögreglu, foreldrafélaga, svæðisfulltrúi UMFÍ og ÍSÍ á Vestfjörðum og verkefnastjóri farsældarráðs hjá Vestfjaraðstofu. Nokkrar stuttar kynningar voru haldnar og sköpuðust góðar umræðaur um forvarnir og hagi barna og ungmenna í Vesturbyggð.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


7. Stuðningsfjölskyldur barna af Barðaströnd

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti stöðuna varðandi stuðningsfjölskyldur barna af Barðaströnd. Fyrir liggur að við upphaf næsta skólaárs verði búið að finna börnum af Berðaströnd stuðningsfjölskyldur á Patreksfirði ef til þess kemur að þau komist ekki heim í lok skóladags vegna færðar eða veðurs.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

6. Skólamál, farsæld og stuðningsþarfir

Arnheiður Jónsdóttir kynnti ýmis verkefni í skólamálum sem lúta að farsæld barna, m.a. Heillaspor.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00