Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 11. júní 2025 og hófst hann kl. 15:00
Nefndarmenn
Starfsmenn
- Arna Margrét Arnardóttir (AMA) áheyrnafulltrúi
- Hafdís Helga Bjarnadóttir () embættismaður
- Jónína Helga Sigurðard. Berg (JB) embættismaður
- Magnús Arnar Sveinbjörnsson () sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Fundargerð ritaði
- Magnús A. Sveinbjörnsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Til kynningar
1. Mat á starfsáætlunum grunn- og leikskóla
Mat á starfsáætlunum grunn- og leikskóla lagt fram til kynningar.
Jónína Helga Sigurðardóttir, skólastjóri tók sæti undir þessum lið og kynnti mat á starfsáætlun Patreksskóla veturinn 2024-2025. Magnús A. Sveinbjörnsson fór lauslega yfir mat á starfsáætlunum Bíldudalsskóla og Arakletts í fjarveru Lilju R. Rúnarsdóttur og Bergdísar Þrastardóttur.
2. Innra mat grunnskóla Vesturbyggðar
Skýrslur úr innra mati grunnskóla Vesturbyggðar lagðar fram til kynningar.
Jónína Helga Sigurðardóttir, skólastjóri og Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson frá Ásgarði tóku sæti undir þessum lið og kynntu innra mat innra mat Patreksskóla og Tálknafjarðarskóla fyrir skólaárið 2024-2025. Magnús A. Sveinbjörnsson fór lauslega yfir innra mat Bíldudalsskóla í fjarveru Lilju R. Rúnarsdóttur. Innra mat fyrir Araklett hefur ekki verið klárað.
Almenn erindi
3. Skipan í vinnuhóp vegna íþrótta- og tómstundastefnu
Lagt er til að eftirtalin taki sæti í hópnum:
Gerður B. Sveinsdóttir, bæjarstjóri og Hafdís H. Bjarnadóttir, tómstundafulltrúi fyrir hönd Vesturbyggðar. Hafdís verði jafnframt starfsmaður hópsins.
Þórkatla S. Ólafsdóttir, formaður fjölskylduráðs.
Páll Vilhjálmsson, Sandra Líf Pálsdóttir, Jóhann Örn Hreiðarsson og Guðmundur Björn Þórsson, bæjarfulltrúar.
Fulltrúi frá HHF.
Samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00