Hoppa yfir valmynd

Fjölskylduráð #12

Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 1. september 2025 og hófst hann kl. 13:00

Nefndarmenn
  • Jóhann Örn Hreiðarsson (JÖH) aðalmaður
  • Páll Vilhjálmsson (PV) aðalmaður
  • Petrína Sigrún Helgadóttir (PSH) aðalmaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
  • Magnús Arnar Sveinbjörnsson (MAS) ritari

Fundargerð ritaði
  • Magnús Arnar Sveinbjörnsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs

Til kynningar

1. Starfsmannahald á fjölskyldusviði veturinn 2025-2026

Farið yfir stöðu mönnunar í skólum og félagsmiðstöðvum.

Mönnunarstaða í grunn- og leikskólum er almennt góð. Enn vantar starfsfólk í félagsmiðstöðvar á Patreksfirði og Tálknafirði.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Bíldudalsskóli, staða á framkvæmdum

Farið yfir stöðu framkvæmda við smíði Bíldudalsskóla.

Geir Gestsson tók sæti undir þessum lið og kynnti stöðu framkvæmda.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Innleiðing nemendagrunns og matsferils í grunnskólum veturinn 2025-2026

Kynning á áætlun um innleiðingu nýs nemendagrunns og matferils í grunnskólum næsta vetur.

Lögð fram kynning frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu um innleiðingaráætlun nýs Nemendagrunns og Matferils.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Hjúkrunarheimili á Patreksfirði, staða mála

Farið yfir stöðu varðandi fyrirhugaða byggingu hjúkrunarheimilis.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Upplýsingafundur um Samkomulag um þjónustu við börn með fjölþættan vanda

Bréf varðandi samkomulag milli ríkisins og sveitarfélaga um ábyrgð á rekstri og kostnaði vegna búsetu barna með fjölþættan vanda sem vistuð eru utan heimilis.

Lagt fram til kynningar bréf frá mennta- og barnamálaráðuneyti og Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi samkomulag milli ríkisins og sveitarfélaga um ábyrgð á rekstri og kostnaði vegna búsetu barna með fjölþættan vanda sem vistuð eru utan heimilis.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Þakkar- og hvatningarbréf mennta- og barnamálaráðherra vegna fyrirlagnar PISA 2025

Lagt fram til kynningar þakkar - og hvatningarbréf frá mennta- og barnamálaráðherra vegna fyrirlagnar PISA 2025.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00