Fundur haldinn í ráðhúsi Vesturbyggðar, 12. janúar 2026 og hófst hann kl. 13:00
Nefndarmenn
- Gunnþórunn Bender (GB) varamaður
- Jóhann Örn Hreiðarsson (JÖH) aðalmaður
- Petrína Sigrún Helgadóttir (PSH) aðalmaður
- Sandra Líf Pálsdóttir (SLP) aðalmaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
- Magnús Arnar Sveinbjörnsson (MAS) sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Fundargerð ritaði
- Magnús Arnar Sveinbjörnsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Almenn erindi
1. Foreldrasamstarf
Umræða um foreldrasamstarf í grunn- og leikskólum.
Rætt um foreldrasamstarf, foreldrafélög og þáttöku foreldra í viðburðum sem tengist formlegu skólastarfi, svo sem skólaþing og fræðslu. Ýmislegt hefur verið reynt, meða annars að breyta fundartímum og að halda fræðslu á netinu. Þátttaka foreldra í viðburðum í tengslum við hátíðir/hátíðisdaga er þó góð.
Fjölskylduráð ítrekar mikilvægi alls samstarfs foreldra og skóla og hvetur foreldra til þátttöku í að efla skólasamfélagið.
2. Skráningardagar
Farið yfir reynsluna af skráningardögum í grunn- og leikskólum.
Rætt um reynslu grunn- og leikskóla af skráningardögum síðastliðið ár.
Fjölskylduráð vísar því til skólastjórnenda að leggja könnun fyrir foreldra til að kanna hug þeirra. Í kjölfarið verði unnið úr niðurstöðum og lagðar til mögulegar breytingar á skráninardögum fyrir skólaárið 2026-2027.
3. Símanotkun í skólum
Umræða um reglur um símanotkun í skólastarfi.
Rætt um reglur símanotkun í grunnskólum. Farið yfir reynsluna í grunnskólum Vesturbyggðar.
Fjölskylduráð felur skólastjórum skólanna þriggja að skýra og samræma reglur um símanotkun.
4. Nemendagrunnur, staða innleiðingar
Staða innleiðingar Nemendagrunns í grunnskólum til kynningar.
Fyrirhugað er að fljótlega verði opnað á innritun í alla grunnskóla fyrir næsta skólaár í gegnum Nemendagrunn. Kerfið mun koma til með að tengjast skjalakerfum og nemendaumsjónarkerfum skólanna. Það mun halda utan um allar upplýsingar um nemendur og færast með þeim ef þeir flytjast milli skóla.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00